Morgunn


Morgunn - 01.12.1938, Side 23

Morgunn - 01.12.1938, Side 23
MORGUNN 149 sjálfur sagði um Harald Níelsson, þegar við sáum honum á bak. Hann sagði þá: »Hann var ekki eingöngu okkar ástsælasti maður, hann var okkur svo mikið, að við getum ekki áttað okkur á því, hvernig við eigum að vera án hans«. Og þetta á nú enn framar við. Þá misstum við Harald, en áttum Einar Kvaran eftir; nú eru þeir báðir horfnir. Guð einn má vita, hvernig við fáum það skarð bætt. Við sjáum það ekki sem stendur. En hvað höfum við þá misst? Eitt blað sem birti andlát hans sagði: »Með Einari H. Kvaran er fallinn í valinn maður, sem í 50—60 ár hefur haft áhrif á menning, hugsunarhátt og andlegt líf íslend- inga«. Þetta var vel sagt, það sem það náði. En mér fannst þá þegar, að við hefði mátt bæta: meira en nokkur annar, sem nú ritar fyrir þjóðina. Hann var að minni hyggju, og ég held dómi alls þorra manna, fjölhæfasta nútíðarskáld okkar. Hann ritaði Ijóð og leikrit, skáldsögur og smásögur og var ágætur rithöfundur á fleiri sviðum um almenningsmál og menningarmál; mátti segja, að ekkert mannlegt teldi hann sér óviðkomandi. Við eigum afkastameiri og þróttmeiri ljóðskáld. En ég veit engan, sem leggur fyrir sig svo margar greinar skáldskapar og ritmennsku, og jafnvígur á allt með því listarmarki, að lítt mun finnast ljóður eða lýti á. Ekkert óvandað lét hann frá sér fara. Það hefur verið gert orð á, hve glöggan skilning hann hefði á sálarlífi manna, næma tilfinning fyrir því, sem hefði menningargildi og djúpa samkennd með hinum minnimáttar og olnbogabörnum lífsins.. Og jafnan er undirstraumurinn hjá honum að vera málsvari þess, sem göfugt er og gott og sýna og berjast móti ljótleik og skaðsemd þess, sem gagnstætt er. í þessu lýsir sér lund hans sjálfs og lífsskoð- un. Enda sagði hann sjálfur: »Mér er sannarlega ekki Ijóst, á hverju skáldskapur á að grundvallast, ef ekki á lífs- skoðun höfundar, hver sem hún nú er«. Og þannig var lífsskoðun hans. Orðtak hans var ekki: Listin fyrir listina,
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.