Morgunn - 01.12.1938, Qupperneq 44
168
MORGUNN
ins, er ég aldrei hefi augum litið, en ei að síður komist í
vináttusamband við, hefi ég eignast nýjan himin og nýja
jörð, nýja og örugga lífsskoðun, og með þá sannfæringar-
vissu í huga get ég tekið undir játningu og yfirlýsingu þá,
er skáldið Einar H. Kvaran orðar svo fagurlega í sálmin-
um: »Þín náðin Drottinn nóg mér er«, gert hvert orð hans
þar að minni eigin játningu, athugusemdalaust.
En þó að ég hafi hér að eins brugðið upp ófullkominni
leifturmynd úr mínu eigin lífi, þá veit ég og það, að minn-
ingamyndir þær, er ég á eftir frá samverustundunum með
honum, eiga sér margar hliðstæður í hugum þeirra mörgu,
er borið hafa gæfu til að hagnýta sér vegsögu hans í þess-
um efnum, er skilið hafa mikilvægi og gildi þeirrar fræðslu,
er hann á umliðnum árum miðlaði þjóð sinni svo örlátlega.
Og þeir hinir mörgu minnast hans með svipuðum þakkar-
hugsúnum. Ég hefi átt tal við fjölda mætra manna víðs-
vegar um land, er töluðu um hann með lotningu og ein-
lægu þakklæti fyrir allt það, er hann hefir unnið í þágu
íslenzkrar menningar og ekki sízt fyrir fræðslu þá um ei-
lífðar málin, er hann hefír veitt í ræðu og riti.
Einn af þessum mörgu minnist þeirra verka hans í bréfi
til mín fyrir nokkru síðan með svofeldum orðum: »Ef
dimmir fyrir augum og tómleiki saknaðar sezt að huga
mínum, þá tek ég bækurnar hans Einars H. Kvarans, þá
grip ég Morgunn. Og við ljós þeirrar þekkingar, sem þar
er að finna, hafa tárin inín þornað og rökkur saknaðartóm-
leikans breyzt í sólbjartan sumardag«. Annar segir: »Fræðsla
hans um eilífðarmálin hefir orðið mér vegljós um eyði-
merkur óvissu og efa. Guði sé lof sem gaf oss hann«.
Og svipað þessu hafa margir komist að orði. En miklu
fleiri eru þeir, sem vér kunnum engin deili á og sem
sennilega hafa aldrei fest slíkar hugsanir á pappírinn,
en þessa dagana hafa sent og senda hinum látna forseta
vorum hugheilar og innilegar þakkir, og vafalaust eru það
hlýjustu og ástúðlegustu þakkarhugsanirnar, sem aldrei
verða skráðar í orð. Þær endurspegla æfinlega hið dýpsta