Morgunn - 01.12.1938, Síða 86
210
MORGUNN
ingar, en mér hugkvæmdust þær ekki nógu fljótt áður en
tækifærið var liðið. En þó þótti mér fundurinn hafa orðið
góður og ekki bregðast vonum mínum, að gefa mér sann-
anir. Flest atriðin voru rétt, án þess að hugsanlegt væri,
að miðillinn gæti nokkuð um þau vitað, önnur nærri sanni,
svo sem blómailmurinn og merkið á leiðinu og ekkert, sem
væri fjarstæða. Það sem ósvarað er, vænti ég ef til vill að
geta fengið svar við síðar.
Ég hefi að vísu ekki ritað þetta fyrri en sex vikum eftir
að fundurinn var haldinn, svo að auðveldlega gæti mig
misminnt. En ég vil taka fram, að ég hefi ekkert tekið hér
með nema það, sem ég man fyrir víst og fleiri fundar-
menn munu geta vitnað með mér, eða ég hefi látið þess
getið að mig minni það. Kr. D.
Ensk blöð og tímarit um spíritisma.
íslenzkir spíritistar halda ekki úti neinu blaði, og þó að
slíkt megi vandræði heita, er hætt við að ekki verði úr
því bætt í nánustu framtíð. Til þess að svo mætti verða,
þyrftu þeir að þjappa sér ærið miklu betur saman og
sýna almennari áhuga á málefni sínu, en þeir hafa enn
gert. Tímarit hafa þeir heldur ekki annað en Morgun.
Engin tök eru á því, að gera sér Ijóst hvert gagn það hef-
ir unnið málinu; það er án efa allsendis ómetanlegt. Tíma-
ritið hefir verið aflvaki og líftaug hreyfingarinnar hér á
landi, og á meðan þeir stóðu báðir að því Haraldur Níels-
son og Einar H. Kvaran, mun það sanni næst, að það hafi
borið af flestum hliðstæðum tímaritum. Jafnvel eftir þann
mikla missi, sem það beið við fráfall Haralds, mun því
varla verða mótmælt með rökum, að Einari H. Kvaran
tækist að halda því í allra fremstu röð. Er það meira af-
rek en líklegt er að menn geri sér almennt ljóst.