Morgunn - 01.12.1938, Síða 87
MORGUNN
211
Þess er innilega að vænta, að Morgunn megi enn um
langt skeið verða leiðarsteinn spíritisku hreyfingarinnar
hér á landi. En þörfinni fyrir blað hefir hann aldrei full-
nægt og getur aldrei fullnægt, jafnvel þó að hann væri
tvöfaldur að stærð. Þetta liggur svo augljóslega í hlut-
arins eðli, að það þarfnast væntanlega engra skýringa.
Ætla mætti að óþarft væri að brýna fyrir mönnum, sem
skilja mikilvægi málsins, hve afarnauðsynlegt það er að
lesa mikið um það. En samt hefi ég grun um að svo sé
því miður ekki. Þannig hefi ég grenslast eftir því í þeirri
bókaverzlun, sem lang-mestan mun hafa innflutning
enskra bóka og blaða, sem er helzti tengiliður okkar við
enskan bókmentaheim, hvort margir væru þar áskrifend-
ur spíritiskra blaða og tímarita á ensku. Mér var sagt, að
nokkrir væru þeir, en ekki næsta margir. Þá spurði ég
um tölu presta á meðal þeirra. „Mjög fáir,“ var svarið.
Ekki stafar þetta þó af því, að ekki skilji margir prestar
mikilvægi spíritismans, en hitt skilja þeir líklega miður,
hve nauðsynlegt þeim er að lesa sí og æ nýjar bókmentir
breyfingarinnar, ef þeir vilja gera hana arðbæra í starfi
sínu. En arðbæra geta þeir gert hana. Þannig er það all-
víða kunnugt um einn prest, að síðan hann fyrir nokkr-
um árum fór að lesa bækur um þetta efni og halda enskt
blað um það og nota málið í þágu kristindómsins, hefir
kirkjusókn aukist hjá honum, og var hún þó ávallt sæmi-
leg, enda er þetta maður, sem lifað hefir fyrir köllun
sína.
Meðan við höfum ekki blað sjálfir, verðum við að lesa
erlend blöð spíritista, svo framarlega sem okkur er málið
alvörumál og við erum þess megnugir að lesa erlendar
tungur, en það eru þó a. m. k. allir prestar og geysilega
margir aðrir. 1 mörgum tilfellum mundu tveir eða fleiri
geta sameinað sig um eitt blað og á þann hátt sparað út-
gjöld sín. Það sagði mér áður umræddur bóksali að sumir
gerðu nú þegar.
En þá er spurningin, hvaða blöð og tímarit menn eigi
14*