Morgunn - 01.12.1938, Page 108
232
MORGUNN
Sálfarir.
að dr. Geley látnum árið 1924. Rit hans eru mörg og öll gagn-
merkileg. Má einkum nefna (í enskri þýðingu) Lucidity and Intui-
tion, auk þeirrar bókar, sem að ofan getur.
Merkustu bókina, sem til er um sálfarir (The
Case for Astral Projection) rituðu þeir í félagi
hinir nafntoguðu sálarrannsóknamenn Sylvan Muldoon og Here-
ward Carrington. Nú er Muldoon að vinna að nýju riti um þetta
rannsóknaratriði og hefir snúið sér til blaða og tímarita sálar-
rannsóknamanna um víða veröld um að skora á þá lesendur sína,
sem einhverja reynslu hafi af því haft, að hafa farið úr líkaman-
um, að þeir skýri honum frá þeirri reynslu sinni, hvort sem hún
hefir verið mikil eða lítil. Utanáskrift hans er: Sylvan Muldoon,
Muldoon Building, Darlington, Wisconsin, U. S. A.
Nokkur ástæða er til að ætla, að hæfileikinn til sálfara sé einmitt
óvenjulega aigengur á íslandi. Eg vildi nú mjög eindregið skora á
hvern þann lesanda þessarar greinar, sem orðið hefir var við hann
hjá sér, að skrifa Sylvan Muldoon sem allra-ítarlegast um reynslu
sína. Þeir, sem ekki geta skrifað á ensku, þýzku eða frönsku,
verða að skrifa á íslenzku, og mun hann án efa geta fengið ein-
hvern í Ameríku til að þýða fyrir sig. Athugið það, lesendur góð-
ir, að með því að verða við þesari ósk eruð þið að stuðla að því,
að mannkyninu aukist vísindaleg þekking á þessu merkilega úr-
lausnarefni, og minnist þess, að beðið er um frásögn ykkar hversu
litla reynslu sem þið hafið á þessu sviði, ef hún aðeins er ein-
hver. Setjið því ekki ljós ykkar undir mæliker.
Eftir Hereward Carrington, sem nefndur var hér að ofan, er
enn nýkomið út mikið rit og merkilegt, The Psychic World (Heimur
sálarinnar. Verð 12/6).
Eitt af viðfangsefnum sálarrannsóknanna er
blik (aura) mannsins. Sumir skygnir menn hafa
sérstakan hæfileika til að sjá blikið. Á meðal þeirra er hinn frægi
enski miðill Mrs. Bertha Harris. Hún hefir gert mjög merkilegar
athuganir á þessu sviði og skýrði frá þeim í fyrirlestri, sem hún
hélt í sumar í British College of Psychic Science í Lundúnum og
vakti mikla athygli (sjá Light 14. júlí). Eitt af því eftirtektar-
verðasta var það, sem hún sagði um blik geðbilaðra manna. Blikið
segir til um eðli sjúkdómsins. Þegar um andsetni er að ræða er
blikið tvöfalt, eða réttara sagt blikin tvö og ganga á víxl. í floga-
veiki hverfur blikið af neðri hluta líkamans, og virðist það vera í
góðu samræmi við skilning (því væntanlega má tala hér um skiln-
ing) læknavísindanna á því, sem þau nefna aura epileptica (floga-
veikisblik). Bertha Harris getur lesið út úr bliki mannsins skap-
Blik mannsins.