Morgunn - 01.12.1938, Blaðsíða 110
234
MORGUNN
fengið nafntogaða brautryðjendur spíritismans til þess að halda
fyrirlestra á sínum vegum, og nú vekja alþjóða-athygli rannsóknir
þær á fjarhrifum, sem Dr. Rhine er að gera við Duke University.
Við Lundúnaháskóla hefir verið myndað svonefnt sálarrannsókna-
ráð (University of London Council for Psychical Investigation).
Má vera, að alt þetta bendi til vaknandi skilnings á mikilvægasta
málinu, en vissast er þó að spenna ekki vonabogann altof hátt
Hafi nokkurn tíma verið nokkrir þeir tveir
hlutir, sem segja mátti að ekki ættu saman
nema nafnið, þá er það blaðamenska á Eng-
landi annarsvegar og á Islandi hinsvegar. Al-
ment verður vitaskuld ekki út í þá sálma farið í Morgni, heldur
aðeins minst á eitt atriði.
Líklega ekki eitt einasta þjóðmálablað né alment fræðiblað
enskt leiðir með öllu hjá sér umræður um andleg mál. Þar í
landi eru andlegu málin, og hafa öldum saman verið, eitt af hin-
um daglegu umræðuefnum, sem allir láta til sín taka. Þau mál
gætu því blöðin ekki látið liggja í þagnargildi jafnvel þótt þau
vildu, því þar með væru þau að hrinda frá sér athygli fólksins —
en þar eins og annarstaðar er hún vitanlega lífsuppspretta blað-
anna. Á síðari tímum er spíritisminn æ meir og meir að verða
þáttur í þessum umræðum. Fyrir utan stakar greinar eru blöðin
sí og æ að flytja um hann langa greinaflokka. í rauninni má
segja, að sá þáttur hef jist fyrir nálega aldarf jórðungi, þegar North-
cliffe lávarður birti í Weekly Dispatch hinn fræga greinaflokk eftir
prestinn George Vale Owen (þ. e. a. s. hann skrifaði greinarnar
ósjálfrátt) um lífið fyrir handan. Á þeim greinum græddi North-
cliffe stórfé, því að kaupendatala blaðsins jókst svo, að slíkt var
með öllu dæmalaust, og auglýsingarnar vitanlega að sama skapi,
því að á Englandi fer auglýsingamagn blaðanna eftir útbreiðslu
þeirra. En ný alda, sem enn er að hækka, reis með greinunum í
Daily News 1929. Það blað lét þá fara fram atkvæðagreiðslu um
spíritismann meðal lesenda sinna, með þeim árangri, að 58%
reyndust að vera spíritistar, en 42% hölluðust til andstöðu. Aftur
tók Daily Sketch atkvæði meðal sinna kaupenda 1936, og töldust
53% þeirra spíritistar, 46% andvígir, en 1% á báðum áttum. —
Eitt af því, sem þarna er athyglisvert er það, að hundraðstala
spíritista er til muna hærri hjá því blaðinu, sem hefir svo miklu
mentaðri lesendur.
Nú í seinni tíð hefir hvert blaðið eftir annað gert út menn til
þess að rannsaka kenningar spíritista, og valið til þess þá eina,
sem áður voru málinu ókunnugir. Sunday Pictorial gerði út Victor
að svo komnu.
Barnsleg ósér-
plægni? Sálar-
svefn? Eða hvað?