Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 12

Morgunn - 01.12.1986, Side 12
urðu á heimili Foxfjölskyldunnar í þorpi einu, Hydesville, í Norðausturhluta Bandaríkjanna.7 Flestar kenningar og tilgátur spíritismans eru þó beint framhald fyrri hugmynda. Ýmsar leynireglur og dultrú- arfélög hafa einnig haft sín áhrif á trúarhugmyndir og heimspeki spíritismans og má þar nefna Frímúrararegluna og Rósakrossaregluna. Hér má einnig nefna kristna dul- hyggju og kraftaverkatrú, sem greinilega hefur verið hug- myndalegt baksvið hreyfingarinnar, þó áhrifin á spíritis- mann væru fremur óbein en bein.8 9 Það er ekki tilviljun, að spíritisminn skuli koma fram sem fjöldahreyfing um og eftir miðja síðustu öld. Þá höfðu kirkjulegar valdastofnanir sett mjög niður og höfðu ekki aðstöðu til að einoka eða fordæma þau yfirnáttúrulegu fyrirbrigði, sem voru kjarninn í hreyfingunni. Þau óvenjulegu fyrirbrigði, sem voru upphafið að spíri- tismanum, voru einnig mikilvæg fyrir guðspekina, a. m. k. í byrjun. Höfundur hennar, frú H. P. Blavatsky, sem var af rússneskum ættum, var upphaflega miðill og fékk visku sína úr öðrum heimi. Síðar varð hún fráhverf hinum sér- stöku aðferðum spíritista og lagði meiri áherslu á dul- hyggju og heimspeki. Hún varð jafnvel andstæð spíritis- manum og kvaðst heldur vilja stunda anda þess, er lifir en umgangast þau dauðu.1' Bent hefur verið á, að hinir svo- kölluðu „mahatmar“, eða hinir miklu andar, er frúin hafði samneyti við og gegndu miklu hlutverki við upphaf guð- spekinnar, séu náskyldir þeim verum, sem meðal spíritista eru kallaðar „stjórnendur að handan“.10 Frú Blavatsky stofnaði fyrsta guðspekifélagið árið 1875 og naut til þess aðstoðar bandaríska hei’shöfðingjans H. S. Alcotts. Árið 1879 var félagið endurskipulagt og hallaðist síðan meira að 7. Jón Auðuns, Aldarminning sálarrannsóknanna og spíritismans. 1 Morgni XXIX 1948. 8. Nelson, op. cit., bls. 55. 9. Bryan Wilson, Religiösa sekter. Aldus/Bonniers 1970, bls. 171. 10. E. Briem, Moderna Religionssurrogat, Spiritismen, Teosofien och Chrísticen Science. Hugo Gebers förlag, Stockholm 1926, bls. 72. 10 MORGUNN

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.