Morgunn - 01.12.1986, Síða 12
urðu á heimili Foxfjölskyldunnar í þorpi einu, Hydesville,
í Norðausturhluta Bandaríkjanna.7
Flestar kenningar og tilgátur spíritismans eru þó beint
framhald fyrri hugmynda. Ýmsar leynireglur og dultrú-
arfélög hafa einnig haft sín áhrif á trúarhugmyndir og
heimspeki spíritismans og má þar nefna Frímúrararegluna
og Rósakrossaregluna. Hér má einnig nefna kristna dul-
hyggju og kraftaverkatrú, sem greinilega hefur verið hug-
myndalegt baksvið hreyfingarinnar, þó áhrifin á spíritis-
mann væru fremur óbein en bein.8 9
Það er ekki tilviljun, að spíritisminn skuli koma fram
sem fjöldahreyfing um og eftir miðja síðustu öld. Þá höfðu
kirkjulegar valdastofnanir sett mjög niður og höfðu ekki
aðstöðu til að einoka eða fordæma þau yfirnáttúrulegu
fyrirbrigði, sem voru kjarninn í hreyfingunni.
Þau óvenjulegu fyrirbrigði, sem voru upphafið að spíri-
tismanum, voru einnig mikilvæg fyrir guðspekina, a. m. k.
í byrjun. Höfundur hennar, frú H. P. Blavatsky, sem var
af rússneskum ættum, var upphaflega miðill og fékk visku
sína úr öðrum heimi. Síðar varð hún fráhverf hinum sér-
stöku aðferðum spíritista og lagði meiri áherslu á dul-
hyggju og heimspeki. Hún varð jafnvel andstæð spíritis-
manum og kvaðst heldur vilja stunda anda þess, er lifir en
umgangast þau dauðu.1' Bent hefur verið á, að hinir svo-
kölluðu „mahatmar“, eða hinir miklu andar, er frúin hafði
samneyti við og gegndu miklu hlutverki við upphaf guð-
spekinnar, séu náskyldir þeim verum, sem meðal spíritista
eru kallaðar „stjórnendur að handan“.10 Frú Blavatsky
stofnaði fyrsta guðspekifélagið árið 1875 og naut til þess
aðstoðar bandaríska hei’shöfðingjans H. S. Alcotts. Árið
1879 var félagið endurskipulagt og hallaðist síðan meira að
7. Jón Auðuns, Aldarminning sálarrannsóknanna og spíritismans. 1
Morgni XXIX 1948.
8. Nelson, op. cit., bls. 55.
9. Bryan Wilson, Religiösa sekter. Aldus/Bonniers 1970, bls. 171.
10. E. Briem, Moderna Religionssurrogat, Spiritismen, Teosofien och
Chrísticen Science. Hugo Gebers förlag, Stockholm 1926, bls. 72.
10
MORGUNN