Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 29

Morgunn - 01.12.1986, Page 29
gáfu ofurmenna, þ. e. a. s. innblástur snillinga. Taldi hann, að slíkir menn, sem bæru af öðrum í einhverju tilliti, hefðu sérgáfu til að virkja krafta, sem byggju í dulvitundinni, og tjá þá í búningi meðvitundarinnar. En hann taldi ekki hægt að skýra sköpunargáfu og innsæi snillinga með tilvísun til mannlegrar dulvitundar einnar, hér hlytu einnig að vera æðri öfl að verki. Þetta taldi Myers einkum og sér í lagi vera einkenni á dulspekingum og trúarbragðahöfundum, en ætti einnig við, þegar um væri að ræða skáld, rithöfunda og vísindamenn.5 6 Hann benti einnig á, að bænin (hug- leiðsla) væri mikilvægt tæki til þess að greiða æðri öflum leið að vitund mannsins. Hér er komið mjög nærri rómantískum þankagangi um gildi hins góða og fagra og um eðli hugsjóna og upptök í hinu guðlega eða a. m. k. í því yfirmannlega. Það er í sjálfu sér ekkert undarlegt, að menn, sem voru að gefast upp við að halda raunsæisstefnunni til streitu í þjóðfélagi, sem ekki átti yfir að ráða neinni hefð eða félagslegum grundvelli fyrir þá hugmyndafræði, skyldu leita á vit slíkra hug- mynda sem koma fram í bók Myers. Bókin er auk þess vel skrifuð, með innsæi skáldsins og nákvæmni vísindamanns- ins. Þessar hugmyndir voru heidur ekki svo fjarlægar við- fangsefnum þeim, sem einkenndu íslenska heimspekihugs- un, ef hægt er að tala um slíkt, hvort heldur á 19. eða 20. öld. Má þar nefna höfunda eins og Björn Gunnlaugsson (Njóla) og Brynjólf Jónsson frá Minnanúpi (Saga hugsun- ar minnar). Rómantísk ,,guðspeki“ hefur og verið rauður þi’áður í ljóðum þjóðskálda okkar eins og Bjarna Thoraren- sens, Jónasar Hallgrímssonar, Gríms Thomsens, Steingríms Thorsteinssonar, Matthíasar Jochumssonar og Einars Benediktssonar. 'William James var allra þekktasti vísindamaðurinn, sem sálarrannsóknamenn og spíritistar vitnuðu til. Hann var Pi’ófessor við Havardháskólann í Bandaríkjunum, upphaf- 5. F.W.H. Myers op. cit., bls. 70 og áfram. 6. Ibid., bls. 219. MORGUNN 27

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.