Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 31

Morgunn - 01.12.1986, Side 31
raun á öðrum stað til þess að fjalla um þetta hugtak, eins og það birtist oftast í ræðum og ritum íslenskra spíritista.10 Hugmyndafrœði borgara- og millistéttar Eins og bent var á í fyrsta hluta þessarar ritgerðar, varð til stétt innlendra kaupmanna og stóratvinnurekenda á fyrsta áratug þessarar aldar. Utanríkisviðskipti og sam- band við útlönd var þó enn að miklu leyti um Kaupmanna- höfn, en þetta breyttist í fyrri heimsstyrjöldinni, sérstak- lega í kjölfar þess, að Islendingar tóku þessa málaflokka í auknum mæli í sínar hendur og stofnuðu til sjálfstæðra verslunarsambanda við önnur ríki, einkum Bretland og Bandaríki Norður-Ameríku. Þessi þróun á efnahags- og stjórnmálasviði, samfara vaxandi þéttbýlismyndun, hafi í för með sér gjörbyltingu á islensku samfélagi. Aldagamlar undirstöður og forsendur bændaþjóðfélagsins brustu, en Reykjavík varð miðstöð hins nýja þjóðfélags. Þessar grundvallarbreytingar birtust ekki síst í hinni „andlegu yfirbyggingu", þ. e. a. s. trúarlífi þjóðarinnar. Sá þáttur, sem hér er til umræðu, dultrúarhreyfingin, er eitt skýrasta dæmið um þessa byltingu í andlegu lífi þjóðarinnar. 1 þessu ljósi verður að skoða hugmyndafræðilegan grund- völl nýju stéttanna í Reykjavík og hlutverki dultrúarhreyf- ingarinnar. Stjórnmálaþróun áranna, sem hér um ræðir, sýnir það best, hversu hugmyndafræðilegur grundvöllur þessara stétta var óljós. Sem stjórnmálaafl gátu þær ekki skapað sér eigin ímynd i krafti sameiginlegra hagsmuna eða skip- að sér í einn stjórnmálaflokk. Að þessu leyti er annar ára- tugur aldarinnar eins konar millibilsástand í íslenskri stjórnmálasögu, ástand sem einkennir í raun fyrstu þrjá áratugina meira eða minna. Sú tilgáta skal sett fram hér, að á þessu tímabili hafi dultrúarhreyfingin gengt ákveðnu hugmyndafræðilegu hlutverki fyrir borgara- og millistétt- ina. Það millibilsástand, sem einkennir þessar stéttir sér- staklega, er, að þær voru þessi ár að brjóta af sér gamlar morgunn oq

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.