Morgunn - 01.12.1986, Qupperneq 34
Hugmyndafræði dulspekinnar felst í því „að styðja sam-
eiginlega viðleitni félaga til andlegs þroska og tímanlegrar
velgengni“, og þessar nýju stefnur vildu efla anda kær-
leika og bræðralags meðal félagsmanna. Ætla má, að í
þessu andrúmslofti hafi þátttaka í félögunum stuðlað að
því, að menn reyndu að kynnast sjónarmiðum og viðhorf-
um hver annars. Einnig má ætla, að hún hafi aukið vilja
þeirra til að leita sátta og málamiðlunar, er „félagsbróðir"
átti í hlut. Leynd Frímúrarareglunnar og háleit markmið
Guðspekifélagsins hafa án efa skapað jákvætt umhverfi
að þessu leyti og þannig eflt samstöðu og samkennd inn
á við. Þessi samstaða var á þjóðríkisgrundvelli (nationcd
brotherhood), en um leið var hún einnig skilgreind í víðara
samhengi. Þessir menn voru hluti af bræðralagi allra
manna og Island viðurkennt meðal ríkja heims (universal
brotherhood). Nýalisminn, sem kallaður hefur verið íslensk
heimspeki, sameinar þessi tvö ólíku viðhorf, hlutverk Is-
iendinga og íslenskrar menningar í alheiminum.
Það var „bjart yfir alheimi" í augum hinnar nýju borg-
ara- og millistéttar, og dulhyggjan varð henni skuggsjá
yfir í gósenlandið, hið nýja ísland, virkjað tækni og vís-
indum, með óendanlega þróunarmöguleika. f grein, sem
birtist í Morgunblaðinu í október 1919, undir fyrirsögninni
Vormerki íslensku þjóðarinnar, stendur eftirfarandi:
Og mörg eru þau vormerki íslensku þjóðarinnar, með-
an aðrar þjóðir víðs vegar á hnettinum hafa særst holund-
arsárum. Verkföll, allskonar byltingar ytri og innri afla,
uppþot og ofsóknir, styrjaldarhörmungar margvíslegar,
hafa sundrað og eyðilagt framfarir fjölda þjóða og lamað
þeirra lífstrú, meðan hér hafa vaxið þeir frjóangar, er
síðar munu verða vegleg tré.... Mannsandinn krefst rétt-
ar síns. Hann er sjálfur straumur, sem brýtur sér nýja
farvegi. Þess vegna er farið að leika um okkur lífsloft
nýrra skoðana og auðugri trúarhugsana. Þjóðin er farin
32
MORGUNN