Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 42

Morgunn - 01.12.1986, Page 42
Það er allt að því eins og mannkynið hafi innsæi á alheimsorku, innsæisleg uppgötvun sem finnur sér útrás í hugmyndum, hvort sem er hjá vísinda- eða leikmönn- um, eins og straumur sem kemur fram í ýmsum menn- ingarsamfélögum á tilteknum tímabilum. Aðalstraumar vestrænna menningar hafa verið andsnúnir kenningunni um lífsorkuna. Eftir sem tíminn hefur liðið, hefur sú almenna skoðun að efnið hafa ekki „innra líf“ orðið sí- fellt meir og meir aðþrengdri og er að gefa upp önd- ina m. a. vegna tilkomu smásjárinnar. En þó aðeins ný- lega hafa komið fram hugmyndir í eðlisfræði sem orðið hafa til þess að vísindagreinar hafa byrjað að líta nýju ljósi gamlar og gleymdar hugmyndir um innra líf efnisins. Ef rifjuð er upp gleymd saga hugmyndarinnar um lífsork- una á Vesturlöndum, þá byrjar hún með gulllistamönnum. Þó sagan geri grín að þessum gullgerðarmönnum og álíti að framlag þeirra hafi eingöngu verið frumstætt framlag til efnafræði nútímans, verður að líta þá augum síns tíma. Gullgerðarmenn voru jafn vel heima í heimsspeki og í heimi efnislegra vísinda þeirra tíma og staðhæfa má að þeir hafi gengt sömu stöðu á þeim tíma og vísindamenn gegna nú til dags í samfélaginu hvað hæfileika og þekkingu áhrærir. En ólíkt síðari vísindamönnum, þá höfðu þeir ekki tak- markaða sérþekkingu eða skiptingu sem vamaði þeim víð- ari fræðimennsku. Svissneskur herlæknir og háskólafyrirlesari Paracelsus (f. árið eftir að Coiumbus fann Ameríku) að nafni var nægilega á undan sinni samtið til þess að geta gefið nýja stefnu í vísindum og lyfjagerð. Þessi faðir Anesthesia og nútíma efnafræði, trúði því að allsstaðar í kringum okkur og í alheiminum væri orka, eterisk í eðli sínu og ósýnileg, en þó skuggamynd hins efnislega. Hann lýsti þessu svo ,,ef líkaminn er heilbrigður er hann í jafnvægi við hina innri byggingu, þar sem hann sækir þá næringu sem fer í efnis- lega orku og hæfileikar sérhvers hluta eterisks líkama mannsins endurspegla eðli efnislega hluta hans“. Hann taldi að þessi orka væri ekki innilokuð í manninum, heldur innra 40 MORGUNN

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.