Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Page 65

Morgunn - 01.12.1986, Page 65
gervi samfélagslegra verðmæta losnar hinn takmarkaði einstaklingur úr tengslum við takmarkanir sínar og verð- ur ómennskur". Grimmdarverk hins pólitíska ofstækis- manns renna stoðum undir sannleiksgildi þessara orða. Hann er einungis að „framfylgja skipunum“. Djúpsálar- fræðin hefur einnig tekið hina fornu kristnu kenningu um erfðasyndina upp á sína arma í gervi hins svokallaða „skugga“, hinnar ómeðvituðu illsku í manninum (sem birtist greinilega í hinum pólitísku grimmdarverkum). Ein stærsta hættan í sambandi við skuggann er að maðurinn ber ekki kennsl á hann í sjálfum sér heldur varpar honum út frá sér og yfir á óvini sína: „Herferðin gegn villu- trúarmönnunum, hinum pólitísku andstæðingum, óvinum þjóðarinnar er í raun réttri baráttan við trúarlegan efa okkar, ótrygga stjórnmálalega stöðu okkar, einstrenginsleg viðhorf þjóðar okkar“, segir Neumann. Gagnkvæmar ásak- anir og tortryggni risaveldanna er gott dæmi um þetta; bæði þykjast skynja hótunina sem fellst í vonskufullum áformum hins án þess að gera sér grein fyrir ógninni sem felst í vopnum þeirra sjálfra. Djúpsálarfræðin leggur ríka áherslu á þroskun og siðferðilega ábyrgð einstaklingsins. Horfast verður í augu við vonskuna í sjálfum sér og takast á við hana en ekki varpa henni óvitandi út frá sér og yfir á einhvern „óvin“ til að réttlæta eigin hroka og sjálfsbyrg- ing. Vitundarþensla leiðir til víðtækari samúðar og sál- rænn þroski og siðferðisvitund fara saman. Nútímaeðlisfræði hefur hnekkt möi’gum tilgátum hins vélræna skóla. Þannig hefur Skammtafræðin sýnt fram á að orsakatengsl eru einungis gild þar sem stórar tölur eiga í hlut: þau hverfa þegar komið er að innviðum atómsins. Mörk tíma og rúms hafa gufað upp. Það er ekki lengur hægt að greina athugandann frá kenningunni; þau eru af- stæð og hvort öðru háð. Sýnt hefur verið fram á að efni getur breytst í orku; það hagar sér stundum eins og ögn og stundum eins og alda, allt eftir því hvernig er spurt. Bohm hefur fært rök fyrir því að aðgreining sé einungis ytri- sýnd, undir yfirborðinu ríki eining; það er alveg eins rök- morgunn 63

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.