Morgunn - 01.12.1986, Qupperneq 67
ar.. Hin opinberandi augu gera hann að óskeikulum dóm-
ara sjálfs sín. Hið eigingjarna, persónulega viðhorf yfirgef-
ur hann. I fyrsta sinn ef til vill hér hann sjálfan sig ekki ein-
ungis eins og aðrir sjá hann heldur eins og hið ópersónu-
lega karma afl sér hann. Hann sér hvaða afleiðingu gerðir
hans hafa haft fyrir aðra......Dómarinn er eins konar
samviska sem sér ekki einungis afleiðingar athafna heldur
einnig hugsana. Segir ekki Jesús að sá maður hafi drýgt
hór, sem líti konu girndaraugum? Svo virðist að í dómun-
um upplifi einstaklingurinn áhrif hugsana sinna og athafna
á aðra, hvort heldur jákvæð eða neikvæð. Ábyrgð okkar
er miklu meiri en við höfum ef til vill gert okkur grein
fyrir.
Nú erum við komin að eðli mystiskrar upplifunar sem
margir rdd-menn hafa orðið fyrir. Þegar J. T. upplifði
dóminn varð hún vör við annað Sjálf sem hún kallar „út-
víkkaða ég-vitund eða vitund um aðra návist“. Áþekkar
lýsingar er að finna hjá öðrum: „Mér fannst ég vera miðja
alheimsins sem í senn var allstaðar“, „allan tímann, sem
þetta ástand varði, virtist það óendanlegt. Það var hafið
yfir tíma. Ég var óendanleg og fullkomin verund“. Til er
útvíkkun sjálfsins og ég-vitundarinnar sem nær langt út
yfir venjulegar hugmyndir okkar um pei’sónuleikann, upp-
lifun óendanleika, eilífðar, elsku og friðar — fullkominnar
einingar. Indverjinn kallar það upplifun Atman, hins guð-
lega eðlisþáttar eða miðju okkar í sjálfinu. Eðlisfræðing-
uiánn Schi’odinger kemst að áþekki’i niðurstöðu þegar hann
talar um einn heim sambræddan úr hugrænni reynslu
margra egóa: „Sameining mai’gi'a huga eða vitunda. Að-
greining þeirra er einungis ytri sýnd, í sannleika er að-
eins til einn hugur“. Eins og við sáum í sambandi við dóm-
inn talar Paul Brunton hér um einstaklingsbundið Yfir-
sjálf, hinn yfiregóiska stofn pei'sónuleikans. Yfii’sjálfið er
hluti eða þáttur í alheimshuganum. „Hinn mystiski sam-
einingai'punktur eða Yfirsjálfið er hástig meðvitaði’ar hlut-
deildar hins endanlega sjálfs í fullkomnum veruleika. Það
er brot af Guði, brot sem hefur allai’ eigindir og mikilleik
MORGUNN
65