Morgunn


Morgunn - 01.12.1986, Side 68

Morgunn - 01.12.1986, Side 68
Guðs þó án þess að ráða yfir öllum mætti hans. Rökrétt afleiðing er að „sérhvert Yfirsjálf er i sjálfu sér eitt með öllum öðrum Yfirsjálfum. Sérhvert Yfirsjálf er m. ö o. í sérstöku sambandi við Guð og einhvern endanlegan pers- ónuleika; munurinn er engu að síður ekki eðlislœgur. Sérhvert Yfirsjálf er sérstakt en ekki aðgreint; það er eitt með öllum hinum en ekki eins. Þessi hárfíni munur skiptir öllu máli: innst inni eigum við öll hlutdeilcL í sömu verunni; við erum bókstaflega hvert annað. Frá þessu sjón- armiði er velferð hvers einstaklings ófrávíkjanlega bundin velferð allra annarra einstaklinga: að elska náunga sinn er að elska sjálfan sig og að særa náunga sinn er að særa sjálfan sig. Þetta er það sem við upplifum í dóminum eða yfirlitinu. Hugmyndin um einingu verunnar er hornsteinn- inn í siðfræði Alberts Schweitzers. Innri fullkomnun ein- staklingsins og sameining við Guð næst með kærleika og hjálpfýsi við lífið. Eining Yfirsjálfanna er hin háspekilega forsenda boðorðsins um að elska náunga sinn eins og sjálfan sig. Með því að virða þetta lögmál að vettugi köll- um óhjákvæmilega yfir okkur þjáningu. öll helstu trúarbrögð kenna að eðli lífsins eftir dauðann (hvort heldur um er að ræða endurfæðingu í öðrum jarð- iíkama eða ekki) sé komið undir eðli einstaklingsins. Á hugrænu tilverustigi eftir jarðlífið endurspeglast langanir og hugsanir einstaklingsins, helstu hugðarefni hans í eðli umhverfis hans. Brunton skýrir þetta sem rökrétta af- leiðingu andlegs þyngdarlögmáls eða andlegs skyldleika. Einstaklingurinn hefur samneyti við þá sem samsvara innra sjálfi hans. Paradísarstigin virðast endurspegla Ein- ingu, Ljós og Kærleika en eftir því sem neðar dregur um- breytast þessar eigindir í andhverfur sínar. Endurfæðingar- lögmálið er útvíkkun hins andlega þyngdarlögmáls. Því er lýst í Tíbesku Dauðabókinni, í bókum Pauls Bruntons og bókinni Hægur Dauði eftir Da Free John. Á dauðastundinni gefst sjálfinu kostur á að hefja sig yfir takmarkanir sínar og nema land í ljósríki verundar og sælu. En hinn ófull- komni persónuleiki stingur við fæti, hann kýs heldur að 66 MORGUNN

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.