Morgunn - 01.12.1986, Qupperneq 70
LESENDABREF
GIFTINGARHRINGURINN
Fyrri hluta maímánaðar 1986 var starfandi hér á veg-
um Sálarrannsóknarfélagsins ensk kona, Gladys Field-
house, þekktur miðill í sínu heimalandi. Þessi kona hélt
nokkra einkafundi í húsakynnum Sálarrannsóknarfélags-
ins í Garðastræti. Þann 7. maí fékk ég fund hjá þessari
konu, en auk mín var þar starfsmaður félagsins, Auður
Hafsteinsdóttir, sem þýddi orð miðilsins jafnóðum, en sjálf-
ur hef ég takmarkaða þekkingu á ensku máli.
Það kom fljótlega í ljós, að þarna var margt fólk mér
nákomið. Miðillinn sagði strax í upphafi, að þarna væru
þrjár konur: ein af þeim væri konan mín, (Guðný M.
Björnsdóttir d. 1953), vinkona hennar, sem dáið hefði úr
krabbameini og móðir mín. 1 byrjun mundi ég ekki eftir
þessari vinkonu Guðnýjar, en það rif jaðist þó upp fyrir mér
síðar, að kona þessi væri Kristín Þórarinsdóttir kennari, en
hún dó úr krabbameini í janúar 1958. Þá sagði miðillinn,
að móðir mín væri að sýna sér sveitabæ, þar sem margt
fólk væri í heimili, og að hún hefði þurft að baka mikið
af brauðum og núna væri hún að hnoða brauð og bretti
ermarnar upp fyrir olnboga. Allt var þetta rétt. Þá sagði
miðillinn, að bræður mínir væru þarna, en ekki fékk ég
neitt frekara samband við þá. Miðillinn sagði, að konan
mín væri oft hjá okkur og kæmi oft til dóttur okkar og
barnabarnanna, sem væru mjög efnileg. Hún lét þess getið,
að drengirnir ættu eftir að verða lærdómsmenn.
68
MOHGUNN