Sjómaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 23

Sjómaðurinn - 01.12.1943, Blaðsíða 23
S JÓMAÐURINN 5 sprengingarnar jafnari og vélin gekk nú undir sjálfri sér um líma. En þessi framför var lil lílils. Dag og nótt allt árið 1894 vann Diesel mcð óþreytandi áhuga að fullkomnun vélar sinnar. Allar mögulegar breyt- ingar voru gíörðar, en fyrst í apríl 1895 fékkst vélin til að framleiða afl, og enginn efi var á, að liér var um mikla framför að ræða. Á þessum tíma var Diesel að leita að nafni á vél sína. Bela, Delta eða Exelsior komu til greina. En til allrar hamingju, fyrir áeggjan konu sinnar, ákvað hann að lála vélina hara lieita Dieselvél. I júni 1895, tveimur árum eftir að fyrsta til- raunin var gjörð, var afl vélarinnar reynt nieð hemli. Eftir þeirri reynslu, sem þá fékkst, voru tvær nýjar vélar byggðar. Þessar vélar sýndu mikla olíueyðslu. Þetta lag- aðist fyrst i janúar 1897, er vélin, sem tilraunin var gerð með, sýndi 258 grömm á hestafls-tíma. Þelta var mikil framför. Diesel varð nú frægur í heimi vélamenningar- innar fyrir sína nýuppfundnu vél; hann fékk heini- boð frá vélafræðingum margar landa. Diesel hafði fengið einkaleyfi í flestum menn- ingarlöndum heimsins utan Þýzkalands. Margir vildu kaupa leyfi til að byggja hina nýuppfundnu sparsöniu vél, svo að miklir peningar streymdu að Diesel á þessum tima. Frá U. S. A. komu milljún mörk, frá Rússlandi átta hundruð þúsund. frá Englandi og víðar og víðar komu miklir peningar. Haustið 1898 alls um fimm milljónir marka. En mesl af þessum peningum voru verðbréf. Diesel stofnaði nú félag „Allgemeine Ceiell fúr Dieselmótorin A. G. in Augsburg1' lil að sjá um öll einkaleyfin, sölu og verzlun. Hann var stór hlulhafi sjálfur, en fékk ef lil vill litla peninga í höndurnar til að verzla með. Erfiðleikarnir við að fá vélina til að ganga voru nú að nqkkru leyti yfirunnir, en nýir og þeir ekki betri spruttu nú upp í öllum áttum. Diesel var hlaðinn störfum. Varð liann að ferðasl mikið ti! að greiða úr óenclanlegum umkvörtunum sem einkaleyfin höfðu í för með sér. Þetta varð til þess að Diesel missli heilsuna, var veikur i sex mánuði, og gat hans þvi ekki notið við, sem var þó svo nauðsynlegt, meðan verið var að hyrja að byggja fyrstu vélarnar í svo mörgum verksmiðjum. Uppdrættir af Diesel-vélum lil margvíslegrar notkunar höfðu verið gjörðir í Augsburg. En erf- iðleikar á að halda vélunum í gangi voru miklir. Diesel kom nú til að standa andspænis nýjum óvini. Skemmdarstarfsemi „anti Diesel ]iarlies“ voru selt í gang í mörgum af vélsmiðjunum sem hyggði mótorana., jafnvel í sjálfri Augshnrg. Sum- um vélunum var skilað aftur, og nokkrar verk- smiðjur sem höfðu hyrjað að smíða þær, gáfust alveg upp við það. Kvartanir komu úr öllum átt- um. Það var sagt, að Diesel hefði ekki getað séð erfiðleikana fvrir fram og hann hefði ekki átt að selja einkaleyfin fyrr en vél hans væri fullkomin. I bókinni er talað um að þessar þrálátu kvart- anir og erfiðleikar sem Diesel hafi átt við að stríða, hafi haft mjög djúp áhrif á hann. Eftir veikindin tók hann oft lítið tillil til heilsu sinnar. Gekk hann þá hart fram þar sem erfið leikarnir vorn mestir og fékk þá ofl mikið lagfært. En erfiðleikarnir, sem sagt er frá, vildu ekki minnka. Diesel hafði eignast hitra óvini, sem not uðu hvert tækifæri sem bauðst lil að finna að og- skapa honum og þeim, sem unnu að áhugamálum hans, alla þá erfiðleika sem þeir gátu. Það var ofl haft í hótunum við hann. Mörg mál voru höfðuð gegn honum, þar sem spursmálið var, hvort uppfunding Dieselvélanna væri lians eign. Dipsel hafði lagt fé í ýmis fyrirtæki, svo sem vélsmiðjur til að hyggja Dieselvélar, olíulindir o. fl. í þcssi fyrirtæki er sagt að hann hafi tapað miklu fé, sem hafi valdið honum miklum erfið- leikum. Er því sumstaðar haldið fram að Dicscl hafi að síðustu verið kominn í fjárþröng, þó það væri mjög útrúlegt, jafnmarga gciða og fjárhags- lega sterka vini sem stóðu við hlið hans, enda hefir það verið horið til baka af þeim sem vel þekktu lil Diesels. En hvað sem rétt er í þvi, er erfitt að liugsa sér að Diesel hafi þurft að efast um getu sina til að ráða við þá erfiðleika er fyrir lágu, jafn miklu sem hann hafði þcgar komið í framkvæmd. Þess er getið í bókinni, að allur kostnaður við uppfunding Dieselvélarinnar, frá byrjun og þar til i júní 1900 er reiknaður að hafa verið 413.335 ríkismörk. En það þykir hverfandi lítið móts við það sem síðar hefir verið lagt fram lil tilrauna sem gjörðar hafa verið bæði til að fullkomna el- vélina, og til að framleiða nýjar vélatégunmr. í mai 1902 höfðu 359 Dieselvélar verið smíðaðar, sem framleiddu 12,307 hestöfl, svo hiigsanlegt var að hið mikla erfiði sem útheimtisf við bygging fvrstu vélanna yrði létt af Diesel að mestu leyti. En þó er frá þvi sagt, að Diesel h'afi alltaf verið fullur áhuga fyrir smíði og fullkoninun vélar sinn- ar, og oft gengið nær likamskröftum sínum en skvnsamlegt var. 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.