Sjómaðurinn - 01.12.1943, Síða 24

Sjómaðurinn - 01.12.1943, Síða 24
6 SJÓMAÐURINN Á árunum frá 1902 lil 1912 voru vélarnar, þrátt fyrir alla erfiðleika sem þvi fylgdu, smiðaðar af fleiri verksmiðjum. Mestur áliugi liafði þó mynd- asl fyrir byggingu vélarinnar á tveim stöðum, hjá „Sulzer Bros“ i Sviss og „Burmeister Wain“ i Kaupmannahöfn. Það var frá B. W. í Kaupmannahöfn 1912 að fyrstu tvær stóru skipavélarnar komu með þessu merki. Þær voru 1350 hestöfl liver vél og voru látnar í skipið Selandia. Skipið var 4950 smál. og gekk 10 Y> mílu. Það fór fyrstu ferð sina frá Kaupmannahöfn i febrúar 1912, til Bangkok og til haka aftur án þess að nokkuð kæmi fyrir. Dieselvélarnar höfðu reynst hér svo vel að óvin- ir Diesels og þeirra, komust í hinn mesta vanda, þó var alll gert sem í þeirra valdi stóð til að setja slúðursögur í gang um Selandiu og ferð hennar. Frá báðum þessum Dieselvélasmiðjum og starfi þeirra að framleiðslu og fullkomnun Dieselvél- anna, verður sagt síðar í ritgerðinni. Ennfremur frá fyrstu ferð Selandiu og livaða straumhvörf- um liún iiefir valdið í heiminum, en þó sér i lagi á Norðurlöndum. Potor Rudolf Diesel lifði rúmt ár eftir þetta. Svo að hinn glæsilegi sigur Dieselvélarinnar á þessurn tíma, sér í lagi hin framúrskarandi afkoma sem vélin í Selandiu sýndi, hæði i eldsneytis- sparnaði, og svo live litið fór fyrir iienni i skipinu, ásamt margra annara yfirburða, sem hún sýndi fram yfir þáverandi gufuvél. Ilefði mátt búast við að þetta liefði skapað Diesel það traust á sjálfum sér að í framtíðinni finndi liann sig öruggan. Það er þvi næsta ótrúlegt að hann hafi fallið fyrir eigin hendi eins og oftast er getið sér til, þar sem iians er minnst og sagt er fiú hvarfi lians. Árið 1913, 29. september, liafði Rudolf Diesel tekið sér far, ásamt tveim öðrum mönnum sem voru fylgd með honum, á gufuskipinu „Dresden“, sem átti að flytja þá frá Antwerpen lil Harwiph. Það er haft cftir Rudolf Diesel, að hann liafi boðið þeim „góða nótt“ og sagt, „við sjáumst á morgun". Síðan hefir hans ekki orðið vart. Þannig endaði líf þessa manns, sem með skarpskyggni sinni og framúrskarandi dugnaði hefir lagt einn stærsta steininn í byggingu vélamenningar nútímans. Það myndi naumast vera rétt að lcenna Diesel þá erfiðleika, cr hlóðust stöðugt upp kringum hann. Senilega hafa þeir margir verið hein af- leiðing af uppfindingu lians, Dieselvélinni og starfi hans henni til fullkomnunnar, sem bitrustu and- stæðingar hans liafa álitið sér beint hættulega. Formælendur gufuvélarinnar, sem þá voru marg- ir og sterkir, en gufuvélarnar þá í miklu áliti, munu haa þótt Diesel og vél hans ljötur þrándur í götu sinni. Ekki sízt fyrir það, að Diesel hélt því stöðugt fram, að vél sín mundi taka eimvélinni fram og ætti að koma í hennar stað. Þetta var líka þegar farið að rætast. Diesel iiafði líka látið það sjásl eftir sig á prenti, að Iiann væri annarar skoðunár i stjórnmálum en fleslir áhrifamerin þáverandi stjórnskipulags. Þetta má reikna með að liafi valdið ekki litlum óþæg- indum fyrir liann, sem þurfti að hafa svo mikil viðskipti við þá, og stundum ef til vill þurft heint á þeim að halda. Eins er um smíðið á vélunum. Það hefir þurft mikið meiri nákvæmni við smíði á vél Diesels en vanalegt var, með svo háum þrýstingi, einkum á eimvélinn, sem gat gengið þó hægt væri að stinga fingrunum niður með stimplinum í cylindernum. Góðir og reyndir smiðir, sem á fullorðins-árum áttu allt í einu að fara að smíða pakkningslausar dælur og annað álíka sem tilheýrði Dieselvélunum og sem ællazt var til að ynni með fleiri þúsund kílóa þrýsting, hafa efalaust átl erfitt með að átta sig á livað þetta ætti allt saman að þýða. Ef til vill liafa margir verið vantrúaðir á að það mundi vera nokkuð annað en fálm út í loftið. Enda er þess getið, að sumar vélaverksmiðjurnar liafi alveg gef- ist upp við snriði vélanna. Er ekki ósennilegt að þetta meðal annars hafi verið hentugt vopn hjá andstæðingum Diesels. En það her viða á þeim þar sem hans er getið og iivað þeir hafi verið fyrirferðamiklir. Það er enn, og verður víst ósannað mál, hvern- ig lrið óvænla og sorglega fráfall Diesels har að. En ekkert er líklegra en óvinir lians, heint eða óbeint, hafi valdið því. Ilafa þeir óefað reiknað sér það slóran sigur þegar Diesel var horfinn. Sig- urinn hefir líka verið algjör og hragð-mikill þegar hægl var að fæi'a likur fyrir því að Diesel hafi fyrirfarið sér, þvi sá lýgur sem liggur. En sem hetur fór var ekki allt húið fyrir það. Sigurinn er stundum falinn í ósigrinum. Diesel sjálfur hafði heðið líkamlegan ósigur. En vélinni lians var elcki liægt að fyrirfara, eða láta hana gjöra það sjálfa. Því finnst mér vísa sem til er á íslenzku eftir Þorstein Erlingsson, vera viðeigandi eftirmæli eftir Rudolf Diesel: Þó að þú lilæir þeim heimskingjum að, sem hér muni í ógöngum lenda, þá skaltu ekki að eilífu efast um það, að aftur mun þar verða haldið af stað, unz brautin cr hrotin lil enda.

x

Sjómaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.