Sjómaðurinn - 01.12.1943, Síða 39

Sjómaðurinn - 01.12.1943, Síða 39
S JÓM AÐURINN 21 hefði jafnan hlotið það hlutskifti að vera „i stak“, vegna þess, að engan álti hann lagsmanninn, kom það aldrei fyrir, að hann léti einni ýsuhröndu meir í sinn hlut (,,stak“) né keilubrýni eða karfa, þótt afgangs væri, enda var þá eigi um neina út- deilingu brennivíns að ræða, sem frcistaði bans til neinnar hvinnsku eða undanbragða. 1 fám orð- um sagt, var Snæsi ráðvandur maður og trúr í stöðu sinni, en liinsvegar Idédrægur nokkuð og værugjarn. — Jónas formaðiir réri um morguninn og aflaði vel. Með aðfallinu brimaði svo, að eigi varð róið út aftur, en á meðan hann var á sjónum, lét liann Brand vinnumann sinn bregða sér út á Bakka, til þess að sækja sér viðbót nokkra af brennivíni og og ýmsum vörum öðrum, er honum þótti sig vanhaga um, er að veizlunni kæmi síðar um dag- inn, en nú fór svo fyrir Brandi, sem öðrum hæði fyrr og síðar, að hann féklc sér fullmikið í koll- inn, viltist fram í fjöru, lagðist þar fyrir og sofn- aði undir klettum nokkrum ofarlega og nærri flæðarmáli og fannst hann eigi né föggur tians fyrri en langt var iiðið kvöldsins, og kom sér það eigi vel fyrir þá félaga lians, sem heima biðu þess, að lirært væri upp vatnið fyrir þeim og þeir fengi iðraró sína og endurnæringu Hásetar Jónasar liöfðu slórt hér og þar um daginn og lifað á sníkjum, en nú voru ílestir þeirra komnir beim í búð sína og sofnaðir, nema Snæsi, sem beið þess að sjá, liver endir þar á yrði. Formaðurinn liafði einnig sofnað í kórrúmi sínu, en var nú vakinn með þeirri fregn, að Braridur væri lcominn fram og nú væri tími kominn til þess, að skifta herfángi þvi, er liann hefði meðferðis, brennivíninu og lummunum. Þrír strákar liöfðu læðst inn í búðina, komið sér fyrir í auða rúminu, innan um alla lóðarlaup- ana, til þess að sjá og heyra livað fram færi, án þess að nokkur yrði þeirra var. Jónas formaður sat nú á réttum beinum í rúmi sínu; lcertisljóstýra ein logaði í skrínuloki hans og álta potta kúturinn var þar við annan enda skrín- unnar. En í milli knjáa sér og i kjöltu sinni bafði liann trog eitt stórt, kúfað af lummum, en til fóta mörg trog önnur og minni; voru það soðningar- trog liáseta lians og tók hann nú eitt og eitt þeirra fram í senn og taldi nokkrar lummur úr stóra troginu í bin minni, misjafnlega margar í hvert þeirra. Kallar nú formaðurinn fram í myrka búð- ina og segir: „Er nokkur ykkar -vakandi, piltar? Yiljið þið elcki konia bingað og taka á móti brennivinslögg- inni ylckar?“ Enginn svaraði, nema Snæsi, er færir sig innar og segir: „Þeir eru allir sofandi, en ég skal taka á móti minni; ég er búinn að bíða eftir lienni í allan dag og engan dropa fcngið.“ „Þegiðu, sjóskrímslið þitt! Og farðu svo með trogin til piltanna, en éttu nú ekkert frá þcim! Hérna eru átján lummur lianda honum Linda í Láginni og 13 lianda lionum Fúsa i Selinu, cllefu lianda honrim Árna í Asi og sjö iianda þér, — allt eftir verðleikum livers og eins, eftir því sem vera bcr.“ „Af liverju er þessu svona misjafnt skift? En get ég ekki fengið löggina mína? Ég vil heldur sleppa þessum fáu lummum, ef ég fæ þess betur útilátna löggina mína! Það er svo dimmt hérna og flórinn svo glerliáll, að ég er ekki viss um að ég geti fært þeim það, nema ég fái ljós.“ „Þegiðu, strákur, og gerðu eins og ég segi þér! Ég er ekki vanur því, að strákar standi uppi í liárinu á mér og hafi á móti því, scm ég segi þeim að gera.“ „Jæja, jæja, fáðu mér þá eitthvað; ég get boiáð öll trogin til þeirra í einu, svo að ég þurfi eklci að fara margar ferðir í þessu myrkri.“ „Nei, eitt í einu! Hérna er trogið hans Linda!“ Nú tók Snæsi við troginu og paufaðist fram eftir flórnum, unz hann féll kylliflatur og lummurnar þutu liver í sína áttina og tók hann til að leita þeirra og tína þær upp. Kallar formaðurinn þá höstuglega til hans og segir: „IJvað er nú? Datztu, ófétið þitt?“ „Nei, það var ekkert; ég held að ég liafi hrasað um fót á manni eða eittlivað þcss konar, en er nú búirin að firiria flestaliar lummurnar lians Linda míns, sem sefur svo íast, að ég get ekki vakið hann.“ „Hvað segirðu, drengur? Hrasaðirðu um fót á manni? Eru nokkrir liér inni, aðrir en þeir, sem í rúmunum eru? Komdu tiingað og færðu honum Fúsa þetta.“ „Hann sefur, karlinn; en ég skal reyna. Líklega eru hér einhverjir fleiri einni en við eigum von á, því mér fannst, að einhver brygði fyrir inig fæti. Það getur liafa verið hann Skerflóðsmóri, skömm- in sú arna, sem alltaf er að flækjast fyrir manni. — En hvenær fæ ég löggina mína, Jónas minn?“ „Ef þú ekki þegir eins og hnakkakýldur þorskur eða dauðskorin skata, skaltu enga „lögg“ fá. Hana nú, og farðu svo með, þetta handa lionum Fúsa, en passaðu þig að detta nú ekki.“ )

x

Sjómaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómaðurinn
https://timarit.is/publication/714

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.