Útvarpstíðindi - 16.03.1942, Side 11

Útvarpstíðindi - 16.03.1942, Side 11
Ragnar Asgeirsson. Pálmi Einarsson. Páll Zóphóniasson. mér komiÖ í hug, aÖ hægt væri að hafa einhvern landbúnaðardag eða bænda- dag hliðstæðan sjómannadeginum, sem upp hefur verið tekinn. Samvinna okk- ar við útvarpið hefur alltaf verið góð, svo að mér þykir líklegt, að við getum í framtíðinni aukið starfsemina, bæði til skemmtunar og fróðleiks fyrir fólk- ið, sem býr út um dreifðar byggðir. — Hvert er aðalmál Búnaðarþings- ins ? — Það má segja að aðalmálið, og mesta vandamálið sé verkafólkseklan við landbúnaðinn, þar horfir ekki væn- lega um þessar mundir. En um þetta efni mun ég ræða í erindi mínu: Astand og horíur. — Annars vil ég geta þess, sem gleður mig og bendir á áhuga fyrir ræktun landsins, þrátt fyrir allt og allt: Aðsóknin að bændaskól- unum er geysimikil, jafnvel meiri en að alþýðuskólunum. /s/enz/j \ornrœ\t. Klemenz Kristjánsson tilraunastjóri flytur erindi um kornræktina, Klemenz hefur nú stundað kornræktartilraunir í 19 ár, fyrstu fjögur árin í Reykjavík, í hinum svonefndu Aldamótagörðum, en nú samfellt 15 ár á Sámsstöðum í Fljótshlíð. Um og eftir aldamótin var kornyrkja reynd hér á landi, en það þótti ekki svara kostnaði. Nú er önnur raunin á, segir Klemenz. — Korn hef- ur þroskazt ágætlega, einkum bygg og hafrar. Köldustu sumurin 1937 og 1940

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.