Bankablaðið - 01.12.1942, Page 35

Bankablaðið - 01.12.1942, Page 35
BANKABLAÐIÐ Aðalfundur Sambands íslcnzkra bankamanna Aðalfundur S. í. B. var haldinn í samkomusal Útvegsbankans 29. okt. síðastliðinn. Forseti sambandsins, Bjarni Sig- hvatsson, setti fundinn og bauð fundar- menn velkomna. Fundarstjóri var kos- inn Adolf Björnsson og fundarritari Björn Ólafs. Forseti flutti skýrslu stjórnarinnar og fer hún hér á eftir: Á starfsárinu hefir stjórn sambands- ins haldið sjö fundi, en sambandsfundir hafa engir verið haldnir, nema aðal- fundurinn. Á þessu tímabili hefir sambands- stjórn ekki ráðist í neitt nýtt, heldur lagt áherzlu á að halda í horfinu, enda ekki hægt um vik vegna ríkjandi styrj- aldarástands og óvissrar framtíðar. Verðlagsuppbótarmálið. Eitt af því fyrsta, sem kom til kasta stjórnarinnar, var að skrifa stjórnend- um bankanna ítarlegt bréf, þar sem hún fór fram á, að þeir tiltölulega fáu starfs- menn bankanna, sem ekki fá fulla upp- bót á grunnlaunin eða þeir, sem hafa hærri grunnlaun en kr. 650.00 um hvern mánuð, fengju leiðréttingu mála sinna. Var sýnt með ljósum rökum fram á, að hér væri um misrétti að ræða, sem leið- rétta þyrfti, enda ekki um „princip- mál“ að ræða, þar sem dæmi voru til þess, að ýrnsir menn, sem taka laun eða þóknun hjá bönkunum, en fá aðallaun sin annars staðar frá, hafa yfir kr. 650.00 í grunnlaun á mánuði saman- lagt, en fá samt greidda fulla verðlags- uppbót af launum sínum úr hvorum stað, og einnig hægt að benda á stofn- anir, þar sem starfsmönnum er greidd full verðlagsuppbót án áðurnefndrar takmörkunar. Bréf þetta var sent fulltrúaráði Út- vegsbankans og bankaráðum Lands- bankans og Búnaðarbankans. Svaraði bankaráð Landsbankans þessari mála- leitan neitandi, en fulltrúaráð Útvegs- bankans og bankaráð Búnaðarbankans gáfu ekkert formlegt svar. Leiðrétting fékkst þó nokkur á þessu seinna í sam- bandi við grunnkaupshækkanir, sem seinna voru veittar, og fá þessir menn nú fulla verðlagsuppbót af 10.000 kr. árslaunum. Bankablaðið'. Sambandsstjórn fól Þorsteini Jóns- syni, bankafulltrúa, Landsbankanum, að gegna aðalritstjórastörfum við Banka- blaðið á starfsárinu, en hann gegndi því starfi einnig síðastliðið starfsár. Gjaldkerastarfið var falið Adolf Björns- syni, Útvegsbankanum, sem einnig gegndi því starfi síðastliðið ár. Aðeins eitt blað hefir komið út á ár- inu og mun það stafa af vanheilsu aðal- ritstjórans, sem hefir ágerzt eftir því sem liðið hefir á árið. Annars gerði sambandsstjórn ráðstafanir til að stuðla að því, að Bankablaðið kæmi reglulega út, bæði með því að ýta undir ritstjór- ann og aðra starfsmenn bankanna að senda blaðinu greinar.

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.