Bankablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 42

Bankablaðið - 01.12.1942, Blaðsíða 42
14 BANKABLAÐIÐ DROPAR Heiðló á Heiði horfði hugfangin á litla drenginn sinn í vöggunni. Ljúfar minningar og unaðslegir draumar hrifu sál hennar hátt yfir hversdagsleikann. Og glókollurinn baðaði út höndunum og brosti, svo að litla andlitið ljómaði af fögnuði. Skildist henni að hann væri að breiða út faðminn móti lífinu, ljós- inu og móðurástinni. Heiðló hafði alizt upp á Heiði hjá for- eldrum sínum, og var hún elzt af fimm systkinum. — Umhverfi hennar var heiðin og háfjöllin. Hún elskaði frels- ið og hreinleikann, og undi sér hvergi betur en þar, sem víðsýnið og fegurðin blöstu við augum hennar. En nú var vetur, og fannbreiðan hjúpaði fjöllin og heiðina. Og yfir fann- breiðunni glitraði stjörnudýrð nætur- himinsins í allri fegurð sinni. Og yfir hyggðum mannanna hvíldi helgi jóla- næturinnar. En svo gerðist það, að myndir úr unaðslegu ævintýri gægðust fram í hugarheimi Heiðlóar. Það ævintýri hafði gerzt þegar konungssonurinn hennar kom frá fjarlægum löndum, og dvaldi hjá henni mestan hluta sumars- ins. Þá var hún kóngsdóttir, eins og hann var kóngssonur. Og þau byggðu sér fagra og skrautlega höll í landi drauma sinna, og lifðu þar í dýrðleg- um fagnaði. Og konungssonurinn mál- aði fagrar myndir af fjöllunum hennar, og sagði henni ótal ævintýri og sögur, og hann brá upp myndum frá fjarlæg- um löndum. Hann hafði farið um allar álfur heims og verið þar í flestum stærstu borgunum. Og allt þetta var henni unaðslegt og heillandi. — Og tíminn leið eins og flygi hann á þönd- um vængjum. — Og svo kom haustið, með hret og kulda, og skuggarnir færð- ust yfir heiðina og fjöllin. — Og kon- ungssonurinn varð að yfirgefa ástmey sína. En með honum gat hún ekki far- ið, því að rammar taugar bundu hana við heiðina og fjöllin heima. — En að skilnaði hétu þau hvort öðru órjúfandi tryggðum. En svo var það einn góðan veðurdag, að henni varð ljóst, að þriðja persónan mundi halda innreið sína í konungshöll draumalandsins, og þá varð þar svo unaðslega bjart og fagurt á ný. Og jafnvel höllin sjálf varð stærri, — hærra til hvelfingar og víðara til veggja. Og þegar hún virti fyrir sér hina un- aðslegu gjöf lífsins, henni til handa, þá birtist henni undursamlegri draumsýn en nokkru sinni áður. Og í þeirri sýn sá hún litla drenginn sinn sem undur- fagran ofurlítinn guð. 1 augum hennar varð hann svo ákaflega líkur myndum, sem hún hafði séð af Jesúbarninu. En við það breyttist litla baðstofan á Heiði, og varð að undurfögru musteri. En um musterið svifu ofurlitlar skín- andi verur, sem svo skipuðu sér um- hverfis vögguna. Og hún heyrði unaðs- lega tóna, sem ómuðu um musterið, og hcfu sál hennar í æðri heima unaðar og friðar. En að stundu liðinni breyttist sýnin. Musterið hvarf og við henni blasti heið- in og háfjöllin, þar sem hún þekkti hverja hæð og hvern hnjúk. Og það var
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.