Bankablaðið - 01.12.1942, Page 57

Bankablaðið - 01.12.1942, Page 57
BANKABLAÐIÐ 29 Áramótahugleiðingar Önnur heimstyrjöld hefir staðið meira en þrjú ár. Ekkert virðist benda enn til þess, að hún verði hinni fyrri skemmri. íslenzka þjóðin hefir engan mátt og engan vilja til þátttöku í hin- um ægilega hildarleik. En hún hefir þó ekki komist hjá því að verða her- numin, og land hennar aðsetustaður erlendra herja. Saga íslands er þegar skráð í sögu heimsstyrjaldarinnar. Þjóðin er komin undir „smásjá tveggja stórvelda“. Þar er hún og land hennar margfallt stærra og þýðingarmeira en séð verður með berum augum okkar sjálfra. Athygli beinist nú að landi og þjóð meir en nokkru sinni fyr. Á íslendinga er oft litið öfundaraugum, af því að vér erum friðsöm þjóð og hötum ófrið og allt fargan, sem í hjólfar hans fer. Vér getum verið stoltir.— En eigum vér skilið að heita friðsöm þjóð þó að vér séum vopnlaus þjóð? íslenzka þjóðin hefir aldrei aflað jafn mikils fengs og á árinu 1942. Hún hefir ausið gull úr g'reipum Ægis. íslenzkir sjómenn hafa siglt með afla skipa sinna um hættusvæði sjóorust- anna miklu á Atlandshafi. Þeir hafa dregið björg í bú. Ekki hafa þessar ferðir verið farnar án mannfórna." Margir íslenzkir sjómenn hafa frá stríðsbyrjun orðið að taka síðustu hvílu á mararbotni. Sorg og dimmir dagar hafa orðið hlutskipti margra sjómanna- heimila. En sjómaðurinn hefir ekki æðrast og siglir enn. Sjómennzkan er honum í blóð borin og hann er trúr sinni köllun. En á æðri stöðum í innanlandsmál- um hefir allt logað í eldi ósamlyndis og ósátta frá upphafi til ársloka 1942. Aldrei hefir í manna minnum jafnoft í ræðu og riti verið talað um lýðræði, allt fi'á stofnun þess fyrir meira en 1000 árum! Þrisvar á þessu ári hafa kjósendur verið keyrðir og kallaðir á kjörfundi. En þrátt fyrir alla þessa umhyggju fyrir lýðræðinu á ófriðar- tímum er Alþingi í lok ársins algjörlega ráðþrota að skipa ríkisstjórn. Aðra menn verður að sækja í önnur störf til þess að taka við forystu og framkvæmd þjóðmálanna. Dýrtíðin, er versti vágestur, sem sótt hefir íslenzku þjóðina heim í núverandi styrjöld. Meðan allar þjóðir halda verð- laginu í föstum skorðum er allt um þau mál látið reka á reiða. Engum til ágætis en öllum til áhyggju. Taumlaus dýrtíð er vel á veg komin að eyðileggja at- vinnumöguleika alls almennings með stöðvun framleiðslustarfanna. Verðgildi peninganna er margskert. Ekki kemur það sízt á herðar aldraðra manna og kvenna, sem hafa árum sam- an safnað nokkru fé til elliáranna. Þeirra hagur er nú lélegur orðinn. Þjóðin hefir aflað mikils fjár og eytt miklu. Hún er líka nýkomin frá fá- tækt og kreppu og hefir vanhagað um margt. Styrjöldin hefir bætt efnahag vorn a. m. k. til þessa. En oss hefir skort manndóm og nógu sterk bein til þess að þola góða daga. Vér erum á góðri leið að daga uppi með fullar hend- ur prentaðra seðla, en svo að segja kaupmáttarvana peningaseðla.

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.