Bankablaðið - 01.12.1944, Side 24

Bankablaðið - 01.12.1944, Side 24
36 BANKABLAÐIÐ Að sjálfsögðu var meginorsök banka- stofnunarinnar sú, að ríkisstjórnin þurfti mjög á fé að halda til þess að geta staðið straum af hernaðarútgjöldunum. En hug- mynd að stofnun voldugs banka á Bret- landi var þó engan veginn ný af nálinni, enda höfðu þegar starfað nokkrir bankar þar í landi, eins og þegar hefur verið á minnzt, þegar Englandsbanki var stofnað- ur. Bankarnir í Genúu á Ítalíu og Amster- dam í Hollandi höfðu verið stofnaðir mörgum árum áður og gefið hina beztu raun. Einnig höfðu brezkir fjálmálafröm- uðir haft kynni af bönkum þeim, er störf- uðii í Hamborg og Svíþjóð. Var það sízt að undra, þótt þeir menn, sem kynnzt höfðu bankastarfseminni erlendis, teldu ástæðu til þess að ætla, að unnt væri að reka banka með góðum árangri á Englandi og bæta þannig úr brýnni þörf hins opin- bera og alþjóðar. Þeir menn, sem telja má að eigi frum- kvæðið að stofnun Englandsbanka, eru fyrst og fremst hinn mikilhæfi og frægi Skoti William Paterson, Charles Montagu, sem síðar varð Halifax lávarður, og Mich- ael Godfrey. Kom tillagan um bankastofn- unina frá nefnd kaupsýslumanna og við- skiptafrömuða í Lundúnum, er starfaði að því að finna ráð og leiðir til þess að ráða bót á fjármálavandræðum ríkisins. En því fór fjarri, að menn væru á einu máli um þessa nýjung. Voru það einkum stjórnar- andstæðingar, sem beittust gegn hugmynd- inni að bankastofnuninni og munu þeir að sjálfsögðu fyrst og fremst hafa óttazt það, að stjórnin myndi nota sér bankann að bakhjarli og styrkjast þannig í sessi. En lögin um stofnun bankans voru þó sam- þykkt í brezka þinginu í aprílmánuði árið 1694. Þeir Montagu og Godfrey munu hafa reynzt skeleggastir við undirbúning banka- stofnunarinnar, enda þótt Paterson muni hafa átt hugmyndina að stofnun hans eigi síður og lagt á góð ráð um framkvæmd málsins. Paterson var maður framsýnn og hugmyndasnjall. Var hann um flest á und- an samtíð sinni, stórhuga og framtaksfús og lét mörg og merk stórmál til sín taka. En ástæðan fyrir hinum mikla þætti Mon- tagus og Godfreys í sambandi við fram- kvæmd málsins liggur í augum uppi öllum þeim, sem kynnt hafa sér viðhorfin í Bret- landi og þá fyrst og fremst Lundúnum á þessum tíma. Montagu var mikilhæfur stjórnmálamaður og beitti sér af alefli fyrir því á þingi, að lögin um stofnun bankans næðu fram að ganga. Godfrey naut mik- illa vinsælda í höfuðborginni og varð fyrsti aðstoðarbankastjóri Englandsbanka. Munu vinsældir jjær, er hann átti að fagna í borginni mjög hafa ýtt undir það, að lög- in um bankastofnunina náðu fram að ganga árið 1694. Því hefur og verið liald- ið fram, að Vilhjálmur þriðji hafi verið einn af stofnendum bankans og hefur Jaess verið látið getið opinberlega, þar sem hann var nefndur einn stofnandi hans í áletrun á myndastyttu af honum, sem stóð í and- dyri gamla bankahússins. Þó er það skoðun manna nú orðið, að sú muni ekki hafa verið raunin, heldur hafi hér verið um að ræða kænskubragð af hálfu hinna fyrstu forstöðumanna bankans til þess að afla hinni ungu stofnun vinsælda meðal þjóð- arinnar. Hinn 21. júní 1694 hófst hlutafjársöfnun og var lienni lokið á tíu dögum og allt hlutafé innborgað. En það var 1,2 millj. sterlingspund. Var Jrá kosið bankaráð og bankastjórn. í stofnskrá var ákveðið, að þeir einir skyldu liafa atkvæðisrétt á stofn- fundi bankans, sem ættu minnst hlutafé fimm hundruð sterlingspund. Einnig var Jiar ákveðið, að stjórn bankans skyldi skip-

x

Bankablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.