Bankablaðið - 01.12.1944, Blaðsíða 42
54
BANKABLAÐIÐ
HVENÆR BYGGJA
BANKAMENN ?
Aldrei hefur neinn fundur bankamanna
verið jafn þéttsetinn og þegar stofnfundur
Byggingarfélags bankamanna var haldinn
í fundarsal Útvegsbankans föstudaginn 6.
október s.l. Voru þá samankomnir 86
bankamenn úr öllum bönkunum í Reykja-
vík til þess að bindast samtökum um gamalt
en sígilt áhugamál stéttarinnar.
Áður liefur oftar cn einu sinni verið
bent á, í Bankablaðinu, að eitt af höfuð-
viðfangsefnum samtaka bankantanna ætti
að vera það, að stefna að og ná því takmarki,
að allir bankamenn eignist hús fyrir sig
og sína fjölskyldu. Var því máli nokkuð
komið áleiðis árið 1937 af þáverandi stjórn
Sambands íslenzkra bankamanna. Auðvelt
var þá að afla hentugra lóða á ýmsum góð-
um stöðum í bænum. Þá hafði einnig verið
unnið að því, að liægt hefði verið að fá
hagkvæm lán, eftir því sem þá var um að
ræða, og með góðum kjörum. Þó féll málið
fyrir borð. Húsnæðisleysi var óþekkt fyrir-
brigði og bankamenn höfðu yfirleitt lítinn
áhuga á málinu. Leitað var þátttöku og
örfáir voru þá ákveðnir í að stofna bygg-
ingarfélag. Fyrir það er málið ennþá óleyst.
Harma Jiað margir og má engan undra.
Þrátt fyrir dýrtíð rís nú hvert húsið af
grunni eftir annað. Hvort tveggja húsnæð-
isleysi fólksins og peningamergð margra
knýr til nýbygginga. í öllum stéttum á hið
fyrrnefnda fólk heima, þó að efnahagur
þess sé mismunandi og margbreytilegur. í
bönkunum starfa án efa margir menn, sem
á einn eða annan hátt eru í liúsnæðisvand-
ræðuni. Ungt fólk, sem vill stoína bú, ann-
að sem býr við ónógt húsnæði og fólk, sem
á yfir höfði sér uppsögn liúsnæðis, Jjcgar
minnst varir og fyrirvaralaust. Astand hús-
næðismálanna er herfilegt í höfuðborginni
og raunar allsstaðar þar, sem athafnalífið
liefur vaxið á síðustu árum.
Á Jjessu Jaarf að ráða bót, og Jjó að bygg-
ingarkostnaður sé geypilegur í dag, getur
sú íramtíð verið skannnt undan, að sá
kostnaður hríðfalli. Tækni nútímans ger-
breytir svo öllu vinnulagi, að með þátttöku
hennar geta vinnulaun, sem nú eru aðal-
kostnaður húsbygginganna, orðið aðeins
lítill þáttur þeirra í náinni framtíð.
Þess vegna er vel farið, að frekari dráttur
hefur ekki orðið á stofnun byggingarfélags
bankamanna. Félaginu hefur verið valin
stjórn, sem er skipuð fimm ágætum mönn-
um úr öllum bönkunum. Þeir munu nú
litast um eftir hentugum byggingarlóðum
og liafa augun opin fyrir öllum aðgerðum,
er geta orðið til framdráttar hinu nýstofn-
aða félagi. í því starfi þurfa Jjeir stuðning
allra félagsmanna. Mun hann ekki eftir
talinn. Einnig má vænta þess, að stjórnir
bankanna styðji þetta mikla velferðar- og
hagsmunamál bankamanna. Ef öll góð öfl
snúast til samtaka í byggingarmálinu, má
vænta árangurs fyrr en síðar. En umfram
allt, látið áhugann, sem nú er vakinn, ekki
dol'na eða deyja út. í öllum málum mæta
menn erfiðleikum, en með bjartsýni og
samtökum sigrast Jjcir. Þannig á að fara
unr ltúsbyggingar bankamanna.