Bankablaðið - 01.12.1944, Blaðsíða 45
BANKABLAÐIÐ
57
STARFSAFMÆLI
Halldór Stefánsson
bankaritari.
Elías Halldórsson
forstjóri Fiskveiðasjóðs Islands.
Helgi Eiríksson
skrifstofustjóri.
í síðastliðnum aprílmánuði
voru 25 ár liðin síðan Halldór
gerðist starfsmaður í útibúi
Landsbankans á Eskifirði, en
þar starfaði hann í mörg ár, en
síðan varð hann starfsmaður
aðalbankans í Reykjavík og nú
síðustu árin bókari við útibúið
við Klapparstíg.
Halldór er dulur í skapi,
ómannblendinn og lítið fyrir
það gefinn, að á honum beri,
en hann er traustur starfsmað-
ur, enda er samvizkusemi, gáfna-
far og menntun í bezta lagi.
Hann hefur vakið á sér at-
hygli sem rithöfundur og vænta
þeir sér mikils af honum, sem
á því hafa vit.
Samstarfsmenn Halldórs í
Landsbankanum óska honum
til hamingju með aldarfjórð-
ungs starfsafmælið og þakka
góða viðkynningu í daglegum
störfum.
Elías Halldórsson forstjóri
Fiskveiðasjóðs Islands átti 25 ára
starfsafmæli 12. maí s.l. Hann er
fæddur í Dýrafirði 4. maí 1901.
Lauk prófi frá Unglingaskóla ísa-
fjarðar 1916. Stundaði eftir það
skrifstofustörf á ísafirði til 1919
að hann réðist til íslandsbanka
12. maí það ár. Tók við útibús-
stjórastarfi á Seyðisfirði 1. sept.
1929 og var þar til 1. marz 1931.
Hefur síðan unnið í Utvegs-
bankanum í Reykjavík og verið
forstjóri Fiskveiðasjóðs og Iðn-
lánasjóðs.
Elías er vandvirkur og snyrti-
menni í störfum, yfirlætislaus og
prúður í framkomu.
Elias átti sæti í fyrstu stjórn
S.Í.B. og í ritstjórn Bankablaðs-
ins í 2 ár.
Hann hefur auk þess starfað
í ýmsum félögum utan bankans,
bæði á ísafirði og eftir að hann
kom til Reykjavíkur.
Helgi Eiríksson skrifstofu-
stjóri í Útvegsbanka íslands h.f.
í Reykjavík á 25 ára starfsaf-
mæli 16. þ. m. Hann er fæddur
í Reykjavík 21. maí 1900. Lauk
prófi frá Verzlunarskóla íslands
1918. Hann liefur unnið í bank-
anum í Reykjavík allan starfs-
tímann eða frá 16. desember
19J9-
Helgi hefur verið endurskoð-
andi í félagsskap bankamanna
í mörg ár.
A yngri árum var Helgi einn
af fræknustu íþróttamönnum
landsins, bæði í knattspyrnu og
frjálsum íþróttum. Hann var
lengi íslandsmeistari í hástökki
og fleiri íþróttagreinum. Golf-
meistari íslands var hann árið
>938.
Helgi Eiríksson er vel metinn
af starfsfólki bankans, enda er
hann gagnhollur í þess garð og
hinn bezti drengur.