Bankablaðið - 01.12.1977, Page 3

Bankablaðið - 01.12.1977, Page 3
BANKABLADIÐ 43. árg. - 3. tbl. des. 1977 Útg.: Samband fsl. bankamanna Blaðið unnu: Gunnar Eydal Björg Árnadóttir Ábm.: Sólon R. Sigurðsson Skrifstofa: Gunnar Eydal Björg Árnadóttir Bankablaðið er prentað í 2500 eintökum Efnlsyf irlit: 4 Nýir kjarasamningar SÍB og bankanna 7 Kjarasamningar — helstu nýmæli 11 Launatöflur 14 Það var oft þrekvirki, að koma blaðinu út .. . 16 In memoriam 19 Frá starfsmannafélögunum 32 Fréttir 34 Nýr samningur um Bankamannaskólann 36 Á námskeiði hjá dönskum 37 Bankamannaskólinn skólaárið 1977 Forsíðumynd: Frá allsherjaratkvgr. um nýjan kjarasamning Setnlng og prentun: FORMPRENT Nýir samningar Sólon R. Sigurðsson. Hinn 1. nóvember sl. voru nýir kjarasamningar SIB og bankanna undir- ritaðir. Voru þá liðnir sjö mánuð'" frá því að samningum var sagt upp og kröfur lagðar fram. Það má því segja, að hægt hafi gengið, en mest er þó um vert, að samningar tókust, án þess að til verkfalls bankamanna kæmi. Þessir nýju samningar bankamanna eru sögulegir, af því að þeir eru hinir fyrstu, sem gerðir eru við bankana, eftir að lög um kjarasamninga starfsmanna í eigu ríkisins voru samþykkt á Alþingi. Samningurinn ber þess líka merki, að unnið hafi verið eftir nýjum reglum. Mörg ný atriði koma nú inn í samn- inga bankamanna, sem verið hafa um árabil í samningum ann- arra launþegahópa og mörg veigamikil atriði náðust nú fram, sem ekki hefði tekist, án hins nýja samningsréttar. Stjórn SÍB ákvað í upphafi, að hinn almenni félagsmaður skyldi hafa tækifæri til að hafa áhrif á bæði kröfugerð og endanlegan samning. Því var kröfugerðin send öllum félags- mönnum SIB og á seinasta sambandsþingi var samþykkt að bera nýjan kjarasamning undir alla félagsmenn í allsherjar- atkvæðagreiðslu. Þetta hefur sýnt sig í að hafa verið rétt á- kvörðun. í nýafstaðinni atkvæðagreiðslu um hinn nýja samning, var þátttakan mjög góð, eða 91% þeirra, sem á kjörskrá voru, en um 90% þeirra sem atkvæði greiddu, samþykktu samninginn. Þessi mikla kjörsókn gefur fyrirheit um aukinn samtakamátt bankamanna. Þessi mikli áhugi kom líka vel fram á þeim 18 fundum, sem haldnir voru víðsvegar um landið, til kynningar á samningnum, en alls sóttu um 840 manns þessa fundi. Nú er það sameiginlegt verkefni stjórnar SÍB, stjórna starfs- mannafélaganna og trúnaðarmanna að viðhalda þessum áhuga. í þessum tilgangi mun fræðslustarfssemi sambandsins stór- aukin og í desember hafa þegar verið haldin þrjú námskeið fyrir trúnaðarmenn, og ráðstefna með stjórnarmönnum aðildar- félaganna er fyrirhuguð. Auk þessara námskeiða eru tvö stór verkefni á dagskrá. I fyrsta lagi endurskoðun laga sambandsins og undirbúningur aukaþings, sem tillögur laganefndar verða lagðar fyrir til endan- afgreiðslu, en áður en til þess kemur, verða tillögurnar kynntar ítarlega í öllum starfsmannafélögunum. í öðru lagi er undir- búningur fyrir þing norrænna bankamanna, sem haldið verður hér í Reykjavík um mánaðamótin ágúst/september 1978.

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.