Bankablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 19
Frétfir frá starfsmannafélögunum
Fréttabréf úr Búnaðarbanka
Aðalfundur starfsmannafélagsins var haldinn
22. febrúar. Fundurinn var vel sóttur og um-
ræður töluverðar um hin ýmsu hagsmunamál
starfsfólks.
8. janúar var haldin í Aðalbankanum jóla-
trésskemmtun fyrir börn starfsmanna bankans.
Eins og venjulega var þetta vel sótt skemmtun
og skemmtu gestir sér vel.
26. febrúar var árshátíð starfsmannafélags-
ins haldin í félagsheimili Fóstbræðra við Lang-
holtsveg, Færð var óvenju góð um þetta leyti
um allt land og notuðu félagsmenn utan af
landi sér það vel. Um 50 manns utan af landi
komu á samkomuna. Húsfyllir var og nutu
gestir góðrar skemmtunar.
Skemmtinefnd stóð fyrir tveim spilakvöld-
um á árinu og voru þau mjög vel sótt. Spiluðu
menn með spekingslegum svip, rétt eins og
þeir væru að sigra heiminn, og höfðu bæði
gagn og gaman af. Verðlaun voru veitt sigur-
vegurum af báðum kynjum, en ekki hef ég á
reiðum höndum, hverjir hrepptu þau, og er
það skaði. í nóvember sl. var haldinn dans-
leikur í samkomusal aðalbankans. Aðsókn var
feiknagóð. Stigu menn dansinn fram eftir nóttu
við mikla kátínu.
Sumarbústaðanefnd hefur unnið bæði mikið
og gott starf að undanförnu. Keyptur var
norskur sumarbústaður, sem stóð við Hafnar-
fjarðarveg og hýsti blómaverzlun Alaska. Húsið
var innréttað og lagfært að utan á staðnum, en
síðan flutt austur í Þjórsárdal og sett þar niður
á steyptan kjallara, sem þar var tilbúinn. Þetta
er fyrsta varanlega húsið, sem þarna rís, en
fyrir voru tvö ensk hjólhýsi, er keypt voru
fyrir þremur árum og hafa þjónað tilgangi
sínum prýðilega. Rafmagnsveitur ríkisins lögðu
rafstreng að húsunum í sumar. Batnar aðstaða
til dvalar mjög við það. Mest öll vinna, sem
þarna hefur verið framkvæmd, er unnin í sjálf-
boðavinnu af starfsfólki bankans, en á eng-
an jer hallað, þó sagt sé, að þar hefur Sig-
urður Kristjánsson unnið mest og best. Einnig
var farið vestur í Breiðuvík á Snæfellsnesi og
húsið þar yfirfarið og byggður kofi yfir vatns-
dælu. Nýting húsanna hefur alltaf verið mjög
góð á sumrin, en við tilkomu rafmagnsins ætti
ekki síður að vera hægt að nýta þau á vetrum.
Eins og öllum bankamönnum er kunnugt,
hefur skáklíf alltaf verið með miklum blóma í
Búnaðarbankanum og margir fræknir skák-
menn prýtt starfslið stofnunarinnar. Hinn árlegi
riddaraslagur fór fram í október. Stefán Þ.
Samtaka nú!
BANKABLAÐIÐ 19