Bankablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 16
IN MEMORIAM
Pórður Benediktsson,
útibússtjóri á Egilsstöðum
Með Þórði frænda mínum Benediktssyni féll
í valinn góður drengur, dugmikill kjarkmaður
og samvizkusamur þjóðfélagsþegn, sem hvergi
lét sinn hlut eftir liggja. Bankablaðið hefir
beðið mig minnast hans örfáum orðum og er
það mér mjög ljúft.
Raunar voru persónuleg kynni okkar frænda
svo mikil, að persónan sjálf, hinn einlægi og
hjartahlýi maður stendur mér eðlilega miklu
nær en hinn trausti og atorkusami bankamaður.
Kynni okkar hófust, þegar ég var barn og
hann átti í raun sitt annað heimili hjá systur
sinni, móður minni.
Af einstakri eljusemi brauzt hann til náms,
vann eins og þjarkur öll sumur, en vinnusemi
var eitt helzta aðalsmerki hans.
Hann var gæddur ágætum námsgáfum og
við námið naut hann þess hæfileika að vinza
úr aðalatriðin, finna kjarna hvers málefnis og
mynda sér heilstæða skoðun á því, sem máli
skipti.
Hann hafði áður en hann fór í Kennara-
skólann kennt nokkuð og fallið það vel og
hafði farizt það mæta vel úr hendi.
Kennslan var aðalstarf hans í hartnær 20 ár.
Hann var traustur og farsæll skólamaður,
virtur og vel látinn af nemendum sem foreldr-
um. Egilsstaðaskóla mótaði hann á fyrstu árum
þess skóla og lengi býr að fyrstu gerð. Þar
var hvergi kastað til höndum, handahóf og
kæruleysi þekktust ekki í verkum Þórðar,
hann var heill og óskiptur í hverju verki, alúð
hans var næm og einlæg.
Stærðfræði var sú grein, er honum féll bezt
að kenna og lét bezt að fá nemendur til að
skilja.
Ágæt tölvísi hans og glöggskyggni í þeirri
grein, urðu honum án efa drjúgt veganesti í
starfi bankamannsins.
En í því starfi var hann ekki maður hinna
köldu staðreynda einna, sálarlausra talna, hann
hlaut þar sem annars staðar að láta eðliskosti
16 BANKABLAÐIÐ