Bankablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 7
Kjarasamningar -
helsiu nýmæli
Form og uppsetning.
Kjarasamningurinn er í nokkuð breyttu formi
frá því, sem áður var. Hann skiptist í þrettán
kafla og er uppsetning samningsins í samræmi
við tiltekið form eða staðal, sem aðilar vinnu-
markaðarins hafa komið sér saman um. Kafla-
skipting á að vera skýrari og auðveldar á að
vera fyrir starfsmenn að fletta upp í samn-
ingnum. Er þar sérstaklega vakin athygli á
efnisyfirlitinu fremst í samningnum.
Mánaðarlaun (gr. 1.1.2.—1.1.3.).
Mánaðarlaunin 1. júlí hækkuðu almennt um
tæplega 18%, en launaflokkar 7 og 9 fengu
þó nokkuð meiri hækkun eða um 20 og 19%.
Launatöflur eru birtar á öðrum stað í blaðinu.
Þar að auki koma eftirfarandi hækkanir:
4% 1. desember 1977, þó eigi lægri fjár-
hæð en kr. 5.000.
3% 1. júní 1978, þó eigi lægri fjárhæð en
kr. 5.000.
3% 1. september 1978, þó ekki lægri fjár-
hæð en kr. 4.000.
3% 1. apríl 1979.
3% 1. júlí 1979.
Launaflokkar — launaþrep (gr. 1.1.5.—
1.1.7.).
Við röðun í launaflokka skal taka tillit til
starfsaldurs og menntunar og jafngildir eitt ár
í starfi einu þrepi í launaskala. Fyrri starfs-
aldur er ákveðinn með hliðsjón af eftirfarandi
reglum:
a) Bankastörf reiknast að fullu.
b) Fullgild skrifstofustörf hjá ríki og sveitar-
félagi reiknast að fullu.
c) Við ákvörðun starfsaldurs skal tekinn til
greina starfsaldur hjá öðrum atvinnurek-
endum, eftir því sem sú starfsreynsla kemur
að notum í viðkomandi starfi.
Hér er um nýjar reglur að ræða, þar sem
starfsaldur skal metinn eftir ákveðnum lág-
marksreglum. Slíkar reglur voru ekki fyrir
hendi áður, og höfðu því bankarnir mun frjálsari
hendur en nú er við röðun í launaflokka. Það
skal tekið fram, að hér er um lágmarksréttindi
að ræða, þannig að starfsmenn geta verið í
hærri launaflokki eða þrepi en þessar reglur
segja til um.
Þeir starfsmenn, sem telja sig eiga starfsaldur
til góða í samræmi við ofangreindar reglur, þurfa
að skila vottorðum þar um frá fyrri atvinnurekend-
um. Vakin er athygli á, að starfsaldur skiptir ekki
aðeins máli við röðun í launaflokka, heldur einnig
varðandi lengd orlofs og rétt til launagreiðslna í
veikindum.
Þá eru í gr. 1.1.6.—1.1.7. reglur um til-
færslur milli þrepa og launafl.
Þegar starfsmaður hefur náð 5 ára starfs-
aldri, á hann rétt á launum, ekki lægri en
samkvæmt launaflokki 6.3.
Þá segir, að starfsmaður skuli hækka um
minnst eitt launaþrep um hver áramót, þar til
launaflokki 7.3. er náð. í þessu felst, að til
þess að ná launaflokki 7.3., getur þurft allt að
8 ára starfsaldur, en eins og áður segir, getur
starfsmaður náð hámarkslaunum mun fyrr.
Hækkun eftir 10 og 15 ára starf (gr.
1.1.8.).
Eftir að hafa starfað 10 ár í banka, hækka
mánaðarlaun um 5% og eftir 15 ára starf
hækka mánaðarlaunin um 6%. Hér er miðað
BANKABLAÐIÐ 7