Bankablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 10
Aðbúnaður og hollustuhættir (gr. 6.).
Ný ákvæði eru um aðbúnað og hollustu-
hætti. Vísað er til ákvæða heilbrigðisreglugerð-
ar nr. 45/1972 og reglugerðar um húsnæði
vinnustaða nr. 225/1975. Þá er vísað til laga
um öryggisráðstafanir á vinnustöðum. Reglur
þessar hafa verið sendar trúnaðarmönnum á
vinnustöðum.
Tryggingar (gr. 7.1.).
Almenn ákvæði um tryggingar eru í svipuðu
formi og áður, en tryggingarfjárhæðir hækka
verulega. Dánarslysabætur eru frá 500 þús. —
2.6 millj., eftir fjölskyldustærð hins látna. Bæt-
ur vegna örorku eru 55 þús. fyrir hvert örorku-
stig, þó þannig, að hvert örorkustig á bilinu
25—50% verka tvöfalt og hvert örorkustig
frá 51—100% verka þrefalt.
Tryggingarfjárhæðir þessar eru endurskoðað-
ar tvisvar á ári, miðað við breytingar á fram-
færsluvísitölu.
Ýmis ný ákvæði er að finna um tryggingar,
svo sem um tryggingarskilmála, sérstakar ferða-
tryggingar, ákvæði um bætur fyrir tjón á
persónulegum munum o. fl.
Yfirvinna í veikindafjarveru (gr. 7.5.).
Ákvæði um greiðslu í veikindum starfsmanna
eru óbreytt hvað dagafjölda snertir, nema hvað
reglur um starfsaldur geta þar breytt nokkru
um, á sama hátt og með orlof.
Yfirvinnu- og álagsgreiðslur skal einnig
greiða í veikindum. Ef um er að ræða vaktaálag
eða fasta yfirvinnu, svo sem fyrir síðdegisvakt-
ir, skal þetta greitt frá upphafi veikindanna.
Eftir að starfsmaður hefur verið veikur í eina
viku, hefjast greiðslur vegna tilfallandi eða
óreglulegrar yfirvinnu. Er það reiknað út á
þann hátt, að tekið er meðaltal slíkrar yfir-
vinnu síðustu 6 mánuðina, áður en til veik-
indanna kom. Sérstök ákvæði gilda, ef starfs-
maður er óvinnufær af völdum slyss á vinnu-
stað eða á leið til og frá vinnu.
Barnsburðarfrí (gr. 7.6.).
Ákvæði um barnsburðarfrí gilda nú einnig
ef kona tekur kjörbarn.
Eins og áður, gilda ákvæðin um barnsburðar-
frí aðeins um fastráðnar konur, en í sérstakn
bókun er sérákvæði um barnsburðarleyfi, þegar
kona, sem ekki hefur fengið fastráðningu, fer
í barnsburðarfrí. í þeim tilfellum skál hún
njóta ekki lakari kjara en á almenna vinnu-
markaðinum, þ. e. miðað við reglugerð um
greiðslu atvinnubóta í fæðingarorlofi.
Vinnuföt (gr. 8.).
Ef starfsmaður ber sérstakan einkennisfatn-
að vegna starfs síns, skal hann fá hann sér að
kostnaðarlausu. Sama gildir, ef sérstök hlífðar-
föt eru nauðsynleg, t. d. vinnusloppur.
Staðgenglar (gr. 9.1.).
Reglur um staðgengla, sem gegna stöðu yfir-
manna eru nú rýmri en áður var. Starfsmaður,
sem gegnir stöðu yfirmanns, fær nú sömu
laun og yfirmaðurinn, ef hann gegnir starfi
hans lengur en 5 vikur samfellt eða 7 vikur
á hverjum 12 mánuðum.
Fullorðinsfræðsla, endurmenntun —
endurhæfing (gr. 10.).
Ný ákvæði eru í samningnum um fullorðins-
fræðslu og endurmenntun, og skal stjórn Banka-
mannaskólans hafa forgöngu um námskeið á
sem flestum sviðum vegna sérþjálfunar starfs-
manna.
Þá eru sérstök ákvæði um launalaust leyfi.
Gefa skal starfsmanni kost á allt að sex mánaða
launalausu leyfi eftir a. m. k. 5 ára starf eftir
nánar ákveðnum reglum.
Uppsagnarfrestur — reynslutími (gr.
11.2.).
Gagnkvæmur uppsagnarfrestur fastráðinna
starfsmanna er þrír mánuðir eins og áður var.
10 BANKABLAÐIÐ