Bankablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 11

Bankablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 11
Hins vegar verður starfsmanni, sem starfað hefur a. m. k. 10 ár í banka og náð hefur 45 ára aldri, ekki sagt upp með skemmri upp- sagnarfresti en 6 mánuðum. Með þessu er eldri starfsmönnum veitt sérstök vinnuvernd í starfi. Þá er nýtt ákvæði um uppsagnarfrest laus- ráðinna starfsmanna. Hann er tveir mánuðir frá byrjun næsta mánaðar að telja. Opnunartími — skipulagsbreytingar (gr. 12.1.). Kröfur SÍB um aukið atvinnulýðræði, áttu ekki miklu fylgi að fagna meðal bankanna. Þó náðist eitt veigamikið atriði fram: Hafa skal samráð við viðkomandi starfsmannafélag um allar meiriháttar breytingar á skipulagi, opnun- artíma, umhverfi á vinnustöðunum og starfs- aðstöðu. Launaseðill (gr. 12.2.). Við launagreiðslu skal starfsmaður fá launa- seðil, þar sem tilgreind eru föst laun, fjöldi yfirvinnustunda, og sundurliðun einstakra tekna og frádráttarliða. Með þessu ætti starfsmanni að vera kleift að fylgjast betur með launa- greiðslum sínum, en áður hefur verið. Lágmarkskjör (gr. 12.4.). Kjör samkvæmt kjarasamningnum eru lág- markskjör. Enginn starfsmaður má lækka í launum eða öðrum kjörum frá því, sem nú er samkvæmt kjarasamningnum eða sérsamning- um. Ef starfsmaður hefur betri kjör en í samn- ingnum segir, skulu þau haldast. Gildistími (gr. 13.1.). Kjarasamningurinn gildir frá 1. júlí 1977 til 1. okt. 1979. Endurskoðunarréttur (gr. 13.3.). Heimilt er að endurskoða kjarasamninginn á samningstímabilinu, m. a. ef breytingar verða gerðar á umsaminni vísitölutryggingu launa. Lífeyrisréttindi starfsmanna einkabankanna. Um lífeyrisréttindi starfsmanna einkabank- anna er fjallað í sérstakri bókun, sem vísar til fylgisskjals með samningnum þar sem m. a. segir: „Falli starfsmaður frá eða verði fyrir ör- orku sem bótaskyld sé, þá munu einkabankarn- ir, eftir því, sem við verður komið, tryggja sjóðsfélögum sambærilegar bætur og starfs- menn einkabankanna njóta“. — Afsakið læknir, — en hvernig — Til hvers ætlar þú að nota lánið? hef ég það? BANKABLAÐIÐ 11

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.