Bankablaðið - 01.12.1977, Blaðsíða 14
Það var ofl þrekvirki, að koma
blaðinu úl...
VIÐTAL VIÐ BJARNA G. MAGNÚSSON, SEXTUGAN
Bjarni G.
Magnússon.
Fáir menn hafa unnið lengur að félagsmálum
íílenzkra bankamanna en Bjarni G. Magnússon,
félagsmálafulltrúi í Landsbanka lslands. Bjarni
varð sextugur 26. október sl. í tilefni þess
ræddi Bankablaðið við hann um félagsmála-
störf hans fyrr og síðar, því að enn er áhuginn
óskertur, þó að Bjarni hafi látið af öðrum
störfum en þeim, sem falla undir verksvið
hans sem félagsmálafulltrúa.
— Ég hóf störf í Landsbankanum í apríl-
byrjun 1943, og hef starfað þar óslitið síðan,
segir Bjarni, en hafði áður verið sumarmaður
í tvö ár. Ég var í endurskoðun ein 15 ár, síðan
í hlaupareikningsdeild álíka lengi, þar af deild-
arstjóri í um það bil 14 ár, unz ég tók við
embætti félagsmálafulltrúa árið 1973.
Áhugi minn á félagsmálum vaknaði snemma,
innan við fermingu. Pá átti ég heima í Vest-
mannaeyjum og starfaði mikið í Félagi ungra
jafnaðarmanna í fjölda ára. Haustið 1936 fór
ég í Samvinnuskólann og brautskráðist þaðan
vorið 1938. Á þeim tíma var ég m. a. ritari
Sambands bindindisfélaga í skólum. Eftir að
ég fluttist til Reykjavíkur, starfaði ég í Félagi
ungra framsóknarmanna og var til að mynda í
stjórn Sambands ungra framsóknarmanna allt
til 35 ára aldurs. Síðan hef ég aldrei komið á
stjórnmálafund! Ennfremur var ég með í að
stofna Kiwanisklúbb, þó að þar hafi ég ekki
verið mjög virkur, og hef starfað í félagsskap,
sem nefnist AKOGES og á uppruna sinn að
rekja til Vestmannaeyja.
Ekki munu hafa liðið nema 2—3 ár, eftir
að ég kom í Landsbankann, að ég var kosinn
í stjórn Félags starfsmanna Landsbanka íslands
og var m. a. formaður þess í allt að 10 ár.
I stjórn Sambands íslenzkra bankamanna átti
ég sæti nær óslitið um aldarfjórðungs 'skeið.
Nú, þá má geta þess, að ég var ritstjóri Banka-
blaðsins frá árinu 1944 og gegndi því starfi
einn í um eða yfir 30 ár. Það var oft þrekvirki
að koma blaðinu út, því að engir fengust til
að skrifa í það. En þetta tókst einhvern veginn,
og aldrei þurfti að borga krónu í taprekstur,
enda ekkert greitt fyrir vinnu við blaðið.
Um félagsstarfið almennt fyrr og nú er það
14 BANKABLAÐIÐ