Bankablaðið - 01.12.1977, Side 17
sína ráða, hjálpfýsi við náungann samfara hóf-
stilltri aðgát og drenglund þeirri, sem hvar-
vetna er rómuð um Hérað og á Fjörðum, þó
þar mest, er hann kynntist mönnum bezt.
Þórður var maður starfsins, iðjuleysi var hon-
um andstyggð, undirrót hins illa að hans dómi
og starfsgleði hans var rík og sönn. Af erfiðis-
vinnu virtist svo sem hann hefði ánægju eina,
hög hönd og hugur frjór lögðust þar á sveif
með atorku og kappi.
í starfi sínu fyrir Búnaðarbankann var hann
ötull og trúr, bar hag bankans og fólksins fyrir
brjósti.
Hann var stórhuga framkvæmdamaður og
studdi vel að alhliða uppbyggingu kauptúnsins
á Egilsstöðum.
Til þess að fást við veigamikil verkefni á
vaxandi stað þarf fjármagn og oft var þá til
Þórðar leitað.
Hann greiddi þar úr sem bezt hann gat og
mun ýmsum hafa þótt um of.
En sá sem lítur yfir Egilsstaðakauptún í dag
og sér uppbygginguna, getur tæpast verið á því
máli. Þórður lagði á margt gjörva hönd, tók
mikinn og virkan þátt í félags- og menningar-
lífi síns umhverfis. Hann var vel til forystu
fallinn og til hans var oftlega leitað og fjöl-
mörg voru þau trúnaðarstörf, er hann gegndi
um dagana.
Hann var vinmargur, vinfastur og trygg-
lyndur, ákveðinn í skoðunum, en enginn ein-
strengingur.
Við útför hans kom það glögglega í ljós,
hve einlæg var hryggð manna og harmur yfir
því að hann skyldi brott kvaddur í blóma lífs
síns, í miðri önn mikilla og margþættra starfa.
Það er bjart yfir minningu hans og ævistarfi
öllu. Blessuð sé sú minning. — Helgi Seljan.
Einar Pálsson,
forstjóri Reiknistofu bankanna
Haustið 1973 tók Einar Pálsson við starfi
forstjóra fyrir Reiknistofu bankanna, en þá
hafði um nokkurt skeið verið unnið að undir-
búningi stofnunar slíkrar sameiginlegrar reikni-
stofu fyrir allar íslenskar bankastofnanir.
Það var engin tilviljun, sem réði því, að
Einar var fenginn til að takast á hendur þann
vandasama starfa að móta og byggja upp frá
grunni þessa þjónustumiðstöð bankanna. Hann
hafði um átta ára skeið unnið að rafreiknimál-
um hjá IBM á íslandi og í Danmörku, lengst
af sem stjórnandi ýmissa deilda, enda vel til
mannaforráða fallinn.
Kynni mín af Einari Pálssyni hófust um það
bil ári áður en hann kom heim til starfa fyrir
bankana. Við, sem þá unnum að undirbúningi
reiknistofunnar, komum til Kaupmannahafnar
sem fyrsta áfanga á langri ferð, sem farin var
til að heyja sér fróðleik um rafreikna og raf-
reiknikerfi í bönkum. Einar tók á móti okkur
í Kaupmannahöfn fyrir hönd IBM, fór með
okkur í heimsókn í rafreiknideild Landmands-
banken og ók síðan með okkur til Roskilde,
sem var næsti áfangastaður.
BANKABLAÐIÐ 17