Bankablaðið - 01.12.1977, Page 22
Starfsmannafélag
V erzlunarbankans
Starfsemi Starfsmannafélags Verzlunarbank-
ans hefur verið margþætt og fjölbreytt þetta
árið.
Hún hófst strax á nýjársdag með jólaballi
fyrir börn starfsmanna. Ekki var þar við látið
sitja, því starfsmenn fengu sína árshátíð í
febrúar og þótti hún heppnast mjög vel.
Handknattleikslið bankans tók þátt í þremur
mótum á árinu og bezti árangur liðsins var
annað sæti í bankamótinu. Þá keppti liðið
einnig við handknattleikslið Bergens Bank, sem
hér var í boði Landsbankans og töpuðum við
með litlum mun.
Pá sátu einnig 3 fulltrúar S. V. í. þing SÍB,
sem haldið var í marz.
í vetur festi Starfsmannafélagið kaup á öðr-
um sumarbústað til viðbótar og strax í vor
fór hópur manna til undirbúnings, áður en
hinn nýi bústaður var fluttur austur, en bú-
staðurinn var uppkominn þann 17. júní og á
starfsmannafélagið nú tvo sumarbústaði í
Þjórsárdal og hefur nýting þeirra verið mjög
góð þetta sumar. Einnig var byggður geymslu-
skúr á staðnum. Þá ber einnig að geta þess,
að bankinn studdi mjög rausnarlega við bakið
á starfsmannafélaginu, og eigum við nú landið
og bústaðina svo til skuldlaust.
Sumarbústaður
Starfsmannafélags
Verslunarbankans.
Frá Alþýðubankanum
Aðalfundur F. S. A. var haldinn 18. marz
’77 og var fundarsókn mjög góð. Nöfn stjórn-
armanna voru birt í síðasta bankablaði.
í skemmtinefnd hlutu kosningu:
Ragnheiður Ólafsdóttir, Ragnheiður Þór-
ólfsdóttir og Soffía Antonsdóttir.
Eitt aðalmálefni fundarins var einkennis-
klæðnaður fyrir starfsfólk, og var sambvkkt,
að nýkjörin stjórn kannaði allar hliðar málsins,
en þó fyrst og fremst, hvort bankinn tæki að
einhverju leyti þátt í kostnaði með starfsfólki.
Samningar hafa þó ekki tekist og standa því
enn.
Veislur góðar hafa verið haldnar á árinu
með ágætri aðsókn, og sú síðasta þann 11.
nóvember, en hún var haldin í kveðjuskyni
fyrir okkar ágæta vinnufélaga, Guðmund Eiríks-
son, sem nú er horfinn til sinna gömlu heim-
kynna í Útvegsbankanum. í stöðu hans var
ráðin Kristín Jónsdóttir, reyndur bankamaður
úr Landsbankanum.
Enn hefur ekki verið ákveðið, hvenær árs-
hátíð skuli haldin, en undanfarin ár hefur hún
verið í nóvember.
22 BANKABLAÐIÐ