Bankablaðið - 01.12.1977, Qupperneq 26
tungum. Nýting sumarbústaðarins var lítil á
s. 1. sumri, bæði vegna þess að hann var ekki
keyptur fyrr en svo seint, að félagsmenn voru
búnir að ráðstafa sumarleyfum sínum, og einnig
vegna þess að ýmsar umbætur á lóð og við
sumarbústaðinn tóku lengri tíma en búist var
við, en félagsmenn unnu allt slíkt í sjálfboða-
vinnu.
Félagsstarfið á þessu ári hefur tekið mikinn
svip af kjarabaráttu þeirri, sem staðið hefur
yfir mestan hluta starfsársins. Peirri baráttu
er nú lokið, með þeim sögulega hætti, að báðir
aðilar slíðruðu sverðin og var þó hvorugur
vígmóður. Ber að fagna því sérstaklega að
samnningar, sem allflestir geta unað vel við,
hafa tekist, án þess að til verkfalla kæmi.
Þátttaka í atkvæðagreiðslu um kjarasamning-
ana og niðurstaða hennar staðfestir betur en
nokkuð annað, hvert viðhorf bankafólks til
samninganna er. Þó að í meginatriðum hafi
vel tekist í nýgerðum kjarasamningum, er ljóst,
að einstakir starfshópar í bönkum hafa ekki
sambærileg kjör og starfsbræður þeirra við
sömu störf á hinum frjálsa vinnumarkaði.
Þann mismun þarf að jafna, þannig að sam-
bærileg störf verði greidd með sömu launum,
hvar sem þau eru unnin.
Starfsmannafélag
Landsbanka íslands
Skákferð bankans til Englands
Eftir nær 20 ára baráttu tókst skáksveit
Landsbankans loks að hreppa 1. sætið í skák-
keppni stofnana, á því herrans ári 1977. Sveitin
var þannig skipuð:
1. borð Bragi Kristjánsson,
2. ,, Jóhann Örn Sigurjónsson,
3. „ Hilmar Viggósson,
4. „ Leifur Jósteinsson.
Þar sem öll sterkustu fyrirtækin í Reykja-
vík senda jafnan lið í keppni þessa, þykir tölu-
verður álitsauki fylgja sigri. Enda var nú mikill
hugur í mönnum að fylgja þessu eftir og halda
á fjarlægari mið. Eftir töluverðar vangaveltur
varð England fyrir valinu, og skyldi teflt þar
á opnu alþjóðlegu skákmóti, svo og att kappi
við starfsbræður í National Westminster Bank,
London.
Því var það, að föstudaginn 13. september
var skáksveitin mætt út á Keflavíkurflugvelli,
með þeirri undantekningu þó, að Bragi Kristj-
ánsson, sem hættur var störfum í bankanum,
var ekki með, en í hans stað kominn 1. vara-
Skáklið Landsbankans, talið frá vinstri: Jóhann Örn Sigurjónsson, Hilmar Viggósson og Vilhjálmur Pálsson.
Á myndina vantar Leif Jósteinsson.
26 BANKABLAÐIÐ