Bankablaðið - 01.12.1977, Page 34
Nýr samningur um
Bankamannaskólann
Benedikt E.
Guðbjartsson.
Bankamannaskólinn.
Þegar samninganefndir bankamanna og
vinnuveitenda þeirra undirrituðu nýgerða kjara-
samninga, var undirritaður nýr samningur um
starfsskipulag Bankamannaskólans. Er hér um
að ræða merk tímamót, sem geta verið upphaf
að nýju og öflugu starfi skólans.
Fram til þessa hefur Bankamannaskólinn
verið almennur skóli fyrir alla bankana og beint
starfi sínu fyrst og fremst að því að sinna ný-
liðaþjálfun ásamt endurþjálfun og framhalds-
námi í formi námskeiðahalds.
í bréfi skólanefndar Bankamannaskólans frá
21. marz 1973, komu eftirtalin atriði fram,
sem skólanefndin lagði áherslu á, varðandi
eflingu og endurskoðun á starfsemi skólans:
a. Markmið skólans er fyrst og fremst að auka
menntun og hæfni starfsmanna bankanna
og gera þá færari til að gegna störfum sínum.
b. í öðru lagi að auka allan veg bankamanna
og þær kröfur, sem gerðar eru til þeirra,
en það hlýtur að verða sameiginlegt hags-
munamál bankanna sem vinnuveitenda og
bankamanna sem stéttarsamtaka.
c. í þriðja lagi að fá aukna viðurkenningu á
bankafaginu sem starfs- og stéttargrein og
að stuðla að viðurkenningu á hugtakinu
bankafræðingi innan skólakerfisins.
Með hinu nýja samkomulagi færumst við
nær ofangreindu markmiði. Eru líkur til þess
að skólinn geti nú í ríkara mæli snúið sér að
sérhæfðri kennslu sem lið í framhaldsnámi,
svo og stjórnunarnámi og einstökum námskeið-
um, t. d. til upprifjunar eða kynningar á nýjum
þjónustugreinum eða breyttum starfsháttum
o. s. frv.
Hinn nýi samningur er þannig:
Samningur um starfsskipulag
Bankamannaskólans.
I. Eignaraðild, skipting kostnaðar o. fl.
1. Bankamannaskólinn er sjálfstæð stofn-
un í eigu bankanna. Sambandi ísl.
sparisjóða skal gefinn kostur á þátt-
töku með réttindum og skyldum eig-
enda. Samband ísl. bankamanna er aðili
að skólanum.
2. Bankarnir ábyrgjast fjárhagslegan grund-
völl skólans, með greiðslu fjárframlags
fyrir hvert skólaár í senn, samkvæmt
fjárhagsáætlun, sem skólanefnd, með
aðild skólastjóra, leggur fram í upp-
hafi hvers skólaárs.
34 BANKABLAÐIÐ