Bankablaðið - 01.12.1977, Page 35
Við ákvörðun um skiptingu kostnaðar
á hina einstöku eigendur (banka), skal
hafa hliðsjón af stærð og fjölda starfs-
manna hvers banka um sig annars vegar
og nemendafjölda frá hverjum þeirra
hins vegar.
II. Skipulag.
1. Skólanefnd.
Skólanefndin er skipuð sjö fulltrúum,
einum frá Seðlabanka fslands, einum
frá Landsbanka íslands, einum frá Bún-
aðarbanka íslands, einum frá Útvegs-
banka Islands, tveimur frá einkabönk-
unum og einum frá Sambandi ísl.
bankamanna. Nefndarmenn skipta með
sér störfum. Þeir eru valdir til fjögurra
ára í senn.
Skólanefnd heldur fundi, svo oft sem
þurfa þykir. Óski einn eða fleiri skóla-
nefndarmenn eftir fundi, eða skóla-
stjóri, skal formaður nefndarinnar boða
til fundar svo fljótt sem auðið er.
Skólanefnd getur enga ályktun gert,
nema meirihluti hennar sé á fundi.
Rita skal í gerðabók allar samþykktir
og ályktanir skólanefndar og skulu við-
staddir fundarmenn undirrita fundar-
gerðina.
Formaður skólanefndar fylgist með
framkvæmd og samþykktum á ályktun-
um skólanefndar.
Fundargerðabók, afrit af skýrslum og
sendum bréfum, skulu vera í vörslum
formanns skólanefndar eða öðrum ör-
uggum og tiltækilegum stað„ ef henta
þykir.
2. Verkefni skólanefndar eru:
a) að ráða skólastjóra og setja honum
erindisbréf,
b) að ráða kennara í samráði við skóla-
stjóra,
c) að ákvéða námsskrá og annað, er
varðar stefnu og þróun skólans,
d) að útvega, í samráði við skólastjóra,
námsefni, bæði innlent og þýtt, og
skulu greiðslur fyrir samningu, þýð-
ingar og staðfærslu fræðirita, á-
kveðnar á fjárhagsáætlun, sbr. e-lið,
e) að semja, í samráði við skólastjóra,
áætlun um kostnað við skólahald ár
hvert, svo og stofnkostnað, ef um
er að ræða,
f) að taka afstöðu til annarra mála, er
varða viðgang og framtíð skólans.
3. Skólástjóri.
Starf skólastjóra skal vera fullt heilsárs-
starf, launað samkvæmt reglugerð um
störf og launakjör bankastarfsmanna
með eftirlaunasjóðsréttindum og öðr-
um kjörum, sem bankarnir veita starfs-
mönnum sínum.
4. Verkefni skólastjóra eru:
a) að sitja fundi skólanefndar að jafn-
aði og rita fundagerðir,
b) að undirbúa námsefni og leggja það
til samþykktar fyrir skólanefnd,
c) að raða í bekki og gera drög að
námsskrá,
d) að vinna að því að koma upp
kennsluefni fyrir skólann, í bókum,
ritum og á annan hátt,
e) að koma upp almennu safni af bók-
um og ritum í bankafræðum og að-
stoða ritstjóra Bankablaðsins við út-
vegun fræðilegra greina um banka-
mál,
f) að annast reikningshald vegna kostn-
aðar við skólahald og stofnkostnað,
ef einhver er,
g) að gera drög að áætlun um kostnað
við skólahald ár hvert,
h) að semja skýrslur um skólahald,
próf o. fh,
i) að annast önnur verkefni, er skóla-
nefnd kann að fela honum.
5. Kennarar.
Kennarar skulu vera kunnáttumenn,
hver á sínu sviði, t. d. deildarstjórar,
aðrir starfsmenn banka, eða kennslu-
kraftar fengnir utan bankans.
BANKABLAÐIÐ 35