Bankablaðið - 01.12.1977, Síða 41
Hannes Pálsson, formaður
skólanefndar
Bankamannaskólans.
Gert er ráð fyrir að fjölgað verði í skóla-
nefnd, svo einkabankarnir fái fulltrúa í skóla-
nefndinni, en jafnframt sé opnaður möguleiki
fyrir þátttöku sparisjóðanna í starfsemi skólans.
Saga þessa máls er í stuttu máli þessi: Með
bréfi dags. 30. maí 1972, skipaði skólanefnd
Bankamannaskólans nefnd, til að endurskoða
starfsemi Bankamannaskólans og að semja til-
lögur til skólanefndarinnar um breytingar á
starfsemi skólans. Tillögurnar, ásamt greinar-
gerð nefndarinnar voru sendar skólanefna með
bréfi dags. 19. sept. 1972. Tillögurnar voru
birtar í Bankablaðinu 39. árg., 2.—4. tbl. ’73.
Skólanefnd féllst í öllum meginatriðum á
niðurstöður nefndarinnar. Sendi skólanefnd til-
lögurnar, ásamt skýrslu til stjórnar bankanna
og til SÍB, með bréfi dags. 21. mars 1973.
En nú er orðið samkomulag um þetta mál
og ber að fagna því. Formaður skólanefndar
Bankamannaskólans er Hannes Pálsson, að-
stoðarbankastjóri Búnaðarbanka íslands, og
hefur hann ásamt Gunnlaugi G. Björnsyni,
skipulagsstjóra í Útvegsbanka íslands, setið í
nefndinni frá stofnun skólans árið 1959. Á al-
þingi 1961 var samþykkt allvíðtæk löggjöf um
breytta skipan bankamála. Landsbankinn var
þá gerður að viðskiptabanka og Seðlabankinn
skilinn frá honum að fullu og gerður að sjálf-
stæðri stofnun og þjóðarbanka (sbr. lög nr. 10
frá 29. mars 1961). Varð Seðlabankinn þá sjálf-
stæður aðili að skólanum og Björn Tryggvason,
aðstoðarbankastjóri, skipaður fulltrúi hans í
skólanefnd. Fulltrúi Landsbankans er nú Ari
Guðmundsson, starfsmannastjóri og fulltrúi
Sambands íslenskra bankamanna, Benedikt
Guðbjartsson, lögfræðingur.
V. AÐALNÁMSKEIÐ BANKAMANNA-
SKÓLANS FYRIR NÝLIÐA
Námskeiðið hófst í október og lýkur því
með prófi í desember, en skólanum verður
slitið 20. desember í samkomusal Landsbanka
íslands, Laugavegi 77. Nemendur á námskeið-
inu eru 70. Verður gerð grein fyrir úrslitum
prófa síðar í Bankablaðinu.
Bankamannaskólinn. Námskeið fyrir útibússtfóra að Sumarhótelinu Bifröst, 15. til 17. ágúst 1977. Benedikt
Guðbjartsson, lögfræðingur Landsbanka Islands, flytur fyrirlestur um fjárábyrgðir.
BANKABLAÐIÐ 4Í