Sindri - 01.10.1922, Síða 25
SINDRI
STEINSTEVPA
127
þjappað niður með hæfilega stórum járn- eða trjepjakk, svo
holan fyllist algerlega. Nú kann að fara svo, að steinlímið
renni eigi aðeins út í glufuna milli steinanna og fylli hana,
heldur út úr henni. Við þessu verður ekki gert á annan hátt
en að fylla glufuna yst með einhverju, t. d. hampgöndli. Það
má kippa honum von bráðar burtu. Þá hafa og verið gerðar
smátengur, sem þrýsta ávölum listum yst inn í glufurnar og
eru þær teknar frá þegar lokið er að fylla samskeytin. Vilji
nú aftur steinlímið ekki fylla glufurnar nægilega verður að
nota þunt járn, til þess að reka það út í þær, eða gera stein-
límið þynnra. Reynslan leiðbeinir fljótt í því hvað best henti,
en hversu sem verkið er unnið, þurfa samskeytin að fyllast
algerlega af steinlímirm niður i botn, nema allra yst, svo
drepa megi þar dálitlu lagi af steinlími, er samskeytin eru
fægð og sljettuð.
Múrarar nota sjaldan þessa aðferð, sem hjer er lýst, heldur
sletta steinlíminu af slettireku á steinana og einnig á enda
þeirra. Þetta geta tæpast aðrir en alvanir menn og vill þó
misjafnlega ganga.
Ef steinar ganga helst til hátt upp, er þeir eru lagðir ofan
í steinlímið, má klappa gætilega eða þrýsta á þá, en varlega
skal ýta þeim fram eða aftur, því þá vill stundum steinlíms-
lagið undir þeim rótast (slitna sundur). Beri aftur of lágt á
þeim verður ekki hjá því komist að taka þá upp og leggja
þykkara lag af steinlími undir þá. Verður þá að gera það með
slettireku (»múrskeið«) og gá þess að ekkert fari niður.
Rjettast er það, að b/eyta alla steina uel (garðkanna, blautur
sópur) áður þeir eru lagðir í vegg. Annars sjúga þeir um of
vatn úr steinlíminu.
3. SAMSKEYTAFÁGUN.
í hlöðnum veggjum verða ætíð samskeytarifur á yfirborðinu
milli steinanna. Þær þarf að fylla vel og vandlega, svo bæði
lokist rifan algerlega og yfirborð samskeytanna verði sljett og
laglegt. Til þess er notað deig úr sementsblöndu (1 : 2), sem
drepið er í rifuna og sljettað að utan með rifujárni. Þetta er