Sindri - 01.10.1922, Blaðsíða 31
SINDRI
STEINSTEYPA
133
B. FÁEIN ATRIÐI í HÚSAGERÐ.
1. ÚTVEGGJAGERÐ OG HLÝINDI HÚSA.
Margur góður drengur hefir lent í því óláni, að byggja
steypu- eða steinhús með ærnum kostnaði, en síðan hefir
reynst ólíft í því fyrir kulda. Oftast stafar þetta af vanþekk-
ingu og eru því hjer gefnar fáeinar leiðbeiningar í þessu efni.
Á 34. mynd sjást mislangar línur, sem sýna hitatapið gegn-
um jafnstórt flatarmál af útveggjum með ýmsri gerð. Ef hita-
tapið er hjer um bil 12 gegnum einfaldan glugga er það 7
gegnum tvöfaldan, álíka mikið gegnum jafnstórt svæði af ein-
földum (25 sm. þykkum)
steypuvegg, 6 ef holrúm er
í veggnum en l1/2 ef holið
er 10 sm. þykt og fylt af
þurri mómylsnu. Þó tölur
þessar sjeu ekki nákvæmar
gefa þær hugmynd um mis-
muninn.
1. Einfaldur gluggi er þá
sárkaldur, tvöfaldur miklu skárri og þó hitaþjófur. Það borgar
sig mjög vel, að hafa alla glugga á íbúðarhúsum tvöfalda.
Nyrst í Noregi og Finnlandi er það alsiða, að gera glugga
þrefalda og er öll ástæða til þess við köldustu gluggana. Þá
er og mikil ástæða til þess, að gera ekki gluggana stærri eða
fleiri en nauðsyn krefur og hyggilegt að láta þá ekki ná svo
langt-niður sem venja er í kaupstöðum.
2. Einfaldir steypuveggir, veggir með loftholi og holsteina-
veggir eru langt of kaldir, að minsta kosti í sveitum, hvort
sem þeir eru þykkir eða þunnir. Vsti steinveggurinn ber húsið
og tekur móti veðri og vindi en er mjög hlýindalítill. Það
borgar sig þá best að gera hann þunnan en úr sterkri vand-
aðri steypu, sem lítið vatn gengur í. Má komast af með 10—12
sm. þykkan vegg á litlum húsum, ef veggir eru tvöfaldir og
bundnir saman eða slyrktarstoðir eru veggnum til stuðnings.
Ef steypan er vel gerð þarf ekki að sljetta (pússa) vegginn
að utan og sparar það mikið fje.
Einfaldur gluggi
Tvöfaldur gluggi
Einf. sleypuveggur
Tvöf. steypuveggur
Tvöf. steypuv. Mótróö
34. mynd. Hiiatap gegnum útveggi af ýmsri gerö.