Sindri - 01.10.1922, Qupperneq 32
134
STEINSTEYPA
SINDRi:
3. Til þess að gera húsið hlýtt þarf skjóhegg úr hlýju efni
svo sem mó eða torfi, ekki þynnri en 20—25 sm. á þykt.
Það hefir gefist vel að gera tvöfaldan steypuvegg með víðu
loftholi og fylla það með mómylsnu. Ekki má gleyma að slíkt
tróð sígur1 og þarf því að vera greitt aðgöngu að geta bætt
ofan á það.
4. Loft og gólf þurfa að vera þjett og hlý. Svo má telja
vönduð bjálkaloft með þykku mótróði. Aftur eru einföld steypu-
loft auðvitað bæði köld og hljóðbær og þurfa því, sjerstakan
umbúnað t. d. að timburgólf sje lagt ofan á þau. Sje aftur
hlýtt eldhús eða fjós undir einföldu steypugólfi gengur mikill
hiti gegnum það og gætu því slík gólf verið hentug í fjós-
baðstofum.
Fleira veldur kulda en veggjagerðin ein. Gættina milli múrs
02 gluggakistna eða dyraumbúnings þarf að þjetta afarvand-
lega bæði fyrir vatni og vindi. Engar útidyr mega vera móti
norðri og því færri sem þær eru, þess hlýrra verður húsið og
súgminna. Við útidyr þarf ætíð að vera lítil lokuð forstofa
(bæjardyr). Opnir stigar eru hitaþjófar, því heita loftið leitar
upp um þá. Stigar eru best settir inni í húsi en miður er þeir
blasa við súg og útidyrum. Milliveggi, sem vita að köldum her-
bergjum eða forstofu, skal fóðra.
2. ELDHÆTTA. ROTTUR OG MVS.
Vátrygging húsa fyrir eldsvoða er þungur og óþarfur skattur
á öllum þjóðum, því nú má það heita hægur vandi að byggja
eldtraust hús. Ef hús er steinsteypt í hólf og gólf og veggir
ekki þiljaðir að innan, stafar því lítil hætta af eldsvoða önnur
en sú, að þakið getur brunnið. Mælir þetta mjög með því að
þilja húsin ekki að innan og steypa loft og gólf. Slík hús eru
og örugg fyrir rottum og músum ef vel er frá þeim gengið
og er þetta mikill kostur. Gegn rottum er engin vörn til hlítar
'önnur en sú, að byggja húsin svo að þær hafi þar hvergi
afdrep, hvorki í veggjum nje gólfum.
1 í einu húsi seig tróÖ í 81/2 ál. djúpu tróöholi um 12 þuml. á 3 fyrstu árunum.