Morgunblaðið - 05.12.2008, Síða 2
KOSTNAÐUR skattgreiðenda
vegna þrifa á Alþingishúsinu sökum
eggjakasts á húsið að undanförnu fer
að nálgast eina milljón króna. Þetta
segir Karl M. Kristjánsson, aðstoð-
arskrifstofustjóri Alþingis.
Aðspurður segir hann menn hafa
neyðst til þess að láta háþrýstiþvo
húsið reglulega síðustu vikurnar þar
sem það sé eina leiðin til þess að ná
eggjaleifum af húsinu. Segir hann að
fram að því hafi Alþingishúsið ein-
ungis verið skolað án háþrýstings
þar sem mælt sé gegn því að húsið sé
háþrýstiþvegið. Ástæðan er sú að
endurtekin notkun heits vatns með
þrýstingi er talin geta valdið
skemmdum á steinfúgunni milli
steinanna í byggingunni, ásamt því
að kalla á aukið viðhald í framtíðinni.
Segir Karl að gluggar hússins þoli
ekki háþrýstiþvottinn vel þar sem
vatn og múrleðja smjúgi meðfram
gluggakarminum við hvern þvott.
Nálgast
milljónina
Eggin dýr Háþrýstiþvottur er ekki
talinn æskilegur fyrir Alþingishúsið.
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
FLEYTING krónunnar, sem hófst í
gær, gekk ágætlega að mati Geirs H.
Haarde forsætis-
ráðherra. Hann
sagði á fundi með
fréttamönnum í
Stjórnarráðinu
síðdegis í gær að
krónan hefði
styrkst um tæp
9% þá um daginn
og gengisvísitalan
lækkað um 8,2%.
Framkvæmdin
við fleytinguna hefði gengið vonum
framar og þótt veltan á markaðnum
hefði ekki verið mikil, miðað við það
sem var á undanförnum mánuðum,
þá hefði hún verið umtalsverð.
Geir kvað þetta gefa fyrirheit um
að efnahagsáætlun, sem byggist á
því að koma traustum fótum undir
gengi krónunnar, gæti náð fram að
ganga. Hann minnti og á spár um að
verðbólga mundi ganga hratt niður á
næstu tólf mánuðum tækist að
styrkja gengi krónunnar. Þótt einn
dagur væri ekki mikið þá væri þetta
góð vísbending.
Frumvarp um lækkun launa
æðstu embættismanna ríkisins verð-
ur lagt fram á fundi ríkisstjórnarinn-
ar í dag, að því er Geir taldi í gær.
Það verði síðan lagt fram á Alþingi í
næstu viku. Þá sagði Geir að eftir-
launafrumvarpið kæmi vonandi eftir
nokkra daga.
„Fleytingin gekk vel“
Frumvarp um launalækkun æðstu embættismanna ríkisins lagt fram í ríkis-
stjórn í dag og á Alþingi í næstu viku Varað var við hruni banka í síma
Geir H. Haarde
ÞAÐ er engu líkara en að kaþólski presturinn
Piotr Gardon sé í beinu sambandi við almættið
sjálft þar sem hann blessar líkneski heilagrar
Barböru í Bolungarvíkurgöngunum í gær. Þegar
betur er að gáð kemur í ljós að það sem virðist
vera óvenjuleg tenging prestsins við hið æðra er
í raun rör í lofti ganganna.
Barbara er verndardýrlingur námuverka-
manna í kaþólskri trú en dagur hennar er 4. des-
ember og var hennar því minnst á fram-
kvæmdasvæðinu við Ós í Bolungarvík í gær.
Komu hátt í 200 slóvenskir verkamenn saman í
göngunum af því tilefni. Þeir hlýddu á bæn séra
Gardons um örugga vegferð en auk hans ávarp-
aði sr. Agnes Sigurðardóttir hópinn.
Heilagrar Barböru minnst í Bolungarvíkurgöngum
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Þórarni Gíslasyni um að hann sæti 16
ára fangelsisvist fyrir manndráp í íbúð við Hringbraut í
Reykjavík í október í fyrra. Var hann fundinn sekur um
að hafa slegið mann í höfuðið með slökkvitæki svo að höf-
uðkúpa hans brotnaði og hann lést.
Þórarinn neitaði sök en talið var sannað að hann hefði
verið „að langmestu leyti í óminnisástandi og því væri
ekki byggjandi á reikulum framburði hans“. Blóðblettir á
fatnaði hans, blóð á slökkvitækinu, tækni- og blóðferla-
rannsókn lögreglunnar og framburður vitna sýndi hins
vegar fram á að Þórarinn hefði slegið manninn þremur
þungum höggum í höfuðið með slökkvitækinu. Sá sem
fyrir höggunum varð höfuðkúpubrotnaði og fékk mikla
heilablæðingu sem dró hann til dauða að kvöldi. Var talið
að Þórarni hefði átt að vera ljóst að höfuðhöggin myndu
leiða manninn til dauða.
Var dómur héraðsdóms um 16 ára fangelsisvist því
staðfestur og Þórarni gert að greiða systkinum hins látna
skaðabætur að upphæð rúmlega hálfa milljón króna sem
og áfrýjunarkostnað málsins. Hafði Þórarinn krafist
sýknu fyrir Hæstarétti en til vara að refsing hans yrði
milduð. Ríkissaksóknari krafðist hins vegar þyngingar
refsingarinnar.
Staðfesti 16 ára fangelsi
vegna Hringbrautarmáls
Morgunblaðið/Júlíus
Sannað Blóðferlasérfræðingur lögreglu á vettvangi en
niðurstöður hennar höfðu afgerandi áhrif á dóminn.
INGIBJÖRG
Sólrún Gísladótt-
ir utanrík-
isráðherra sendi
frá sér orðsend-
ingu í gærkvöldi
vegna frétta-
flutnings af fundi
viðskiptanefndar
Alþingis í gær.
Þar var vitnað til
ummæla Davíðs Oddssonar seðla-
bankastjóra um að hann hefði upp-
lýst leiðtoga stjórnarflokkanna á
fundi í júní sl. um stöðu íslensku við-
skiptabankanna. Svo skrifar hún:
„Formenn stjórnarflokkanna áttu
engan fund með seðlabankastjóra í
júnímánuði síðastliðnum. Slíkur
fundur var hins vegar haldinn þann
8. júlí. Þar féllu ýmis orð af hálfu
seðlabankastjóra en hann sagði hins
vegar ekki að 0% líkur væru á að
bankarnir myndu lifa af erfiðleikana
á fjármálamörkuðunum.“
Enginn
fundur í júní
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Geir sagði, aðspurður um viðtal
við Davíð Oddsson seðlabanka-
stjóra í dönsku blaði nýverið, að
hann teldi að stærsta fréttin í því
væri ummæli Davíðs um Evrópu-
sambandið en ekki hann sjálfan.
Geir var spurður um þau orð Dav-
íðs á fundi viðskiptanefndar Al-
þingis í gær að stjórn Seðlabank-
ans hefði varað ríkisstjórnina við
því í júní að 0% líkur væru á því að
bankarnir myndu lifa af.
„Hann mun vera að vitna í sím-
tal við mig sem ég man nú ekki
sjálfur eftir,“ sagði Geir. Það sem
skipti máli væri að Seðlabankinn
hefði allt þetta ár haft miklar
áhyggjur af stöðu viðskiptabank-
anna, þótt e.t.v. hefði mátt lesa
annað út úr stöðugleikaskýrslu
bankans frá í maí. „Það sem sagt
er í svona símtali er náttúrlega
ekki opinber afstaða bankans.“
Um það að Davíð sneri aftur í
stjórnmálin sagði Geir að öllum
sem vildu væri það frjálst hér á
landi. Menn gerðu það ekki sem
opinberir embættismenn, en hvað
þeir gerðu þegar þeir létu af emb-
ætti væri ekki hans mál.
Man ekki eftir símtalinu