Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 32
32 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 Hver óttast er lífið við æskunni hlær sem ærslast um sólríka vegi, og kærleikur útrás í kætinni fær, sé komið að skilnaðardegi. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjardóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Þín dóttir Guðrún Gerður. Elsku langafi. Nú eru dagar þínir liðnir hér í þessum heimi. Ég mun sakna þín, sakna þess að sitja með þér við gluggann og horfa á sjóinn. Þú varst í huga mér mikill skákmeistari, þú kenndir mér að tefla og það var gott að sitja lengi með þér við taflborðið, drekka kakó og eiga góða stund í rólegheitum. Nú verða þessar stundir ekki fleiri en minningarnar munu lifa að eilífu. Hjalti Rafn. HINSTA KVEÐJA ✝ Björn Guð-jónsson fæddist á Bjarnastöðum á Grímsstaðaholtinu í Reykjavík hinn 11. nóvember 1921. Hann lést á Hjúkr- unarheimilinu Sól- túni í Reykjavík hinn 30. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðjón Bjarnason, útvegsbóndi og grá- sleppukarl, f. í Reykjavík 28. ágúst 1888, d. 16. ágúst 1951, og Guð- rún Valgerður Guðjónsdóttir, hús- freyja, f. á Kotleysu í Stokkseyr- arhreppi 24. júní 1896, d. 22. janúar 1988. Björn var elstur fjögurra systkina sem eru: Þor- björg, f. 11. apríl 1923, Bjarni, f. 17. ágúst 1927, og Gunnar Ingi- bergur, f. 5. september 1941. Hinn 11. desember 1942 kvænt- ist Björn Ingu Jóelsdóttur, f. 24. apríl 1922. Foreldrar hennar voru hjónin Jóel Jónasson, f. 12. sept- ember 1894, d. 8. júní 1988, og Guðríður Ingvarsdóttir, f. 30. apr- Björn byggði hús sitt í túninu heima við Ægisíðu 66 ásamt konu sinni Ingu Jóelsdóttur og hefur fjölskyldan búið þar síðan. Björn lauk hinu hefðbundna skyldunámi í Miðbæjarskólanum í Reykjavík. Hann fór mjög ungur að sækja sjóinn, fyrst með föður sínum og tók síðan við af honum. Einnig vann Björn við síldveiðar í Hval- firði og á Norðurlandi. Á veturna vann hann hjá Eimskip (á Eyr- inni) og svo sem afgreiðslumaður hjá Sindra stáli. Björn hætti að róa árið 2002 og þar með lagðist útgerð af í Grímsstaðavörinni. Björn var einn af stofnendum Samtaka grásleppuhrognafram- leiðenda sem síðar urðu að Landssambandi smábátaeigenda og sat hann í stjórn þeirra félaga um árabil. Útgerðin átti hug hans allan, sérstaklega á vorin og sumrin. Þess á milli notaði hann tímann til að setja upp net og undirbúa vertíðina næsta vor. Fjaran við Ægisíðuna var hans félagsmiðstöð og þar var hann kóngur í ríki sínu. Margir komu þar við, keyptu rauðmaga og grá- sleppu og spjölluðu við Björn um lífið og tilveruna. Útför Björns verður gerð frá Neskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. íl 1900, d. 2. júlí 1957. Börn Björns og Ingu eru: 1) Þor- varður Ellert, f. 3. mars 1943, maki Steingerður Stein- dórsdóttir, f. 11. september 1962. Þau eiga tvo syni. Fyrri kona Þorvarðar var Hrafnhildur Mar- inósdóttir, f. 18. október 1946, d. 6. maí 1986. 2) Sigrún Björk, f. 21. desem- ber 1945, maki Ör- lygur Sigurðsson, f. 19. mars 1945. Þau eiga fjögur börn. 3) Guðrún Gerður, f. 31. maí 1947, vinur hennar er Jóhann Þór- arinsson, f. 10. maí 1942. Guðrún á þrjú börn. Maki Guðrúnar var Þórður Eiríksson, f. 21. apríl 1941, d. 16. júní 2000. 4) Guðjón Jóel, f. 10. febrúar 1959, maki Helena Þuríður Karlsdóttir, f. 28. ágúst 1967. 5) Ásgeir, f. 5. mars 1960, maki Kristín Jónsdóttir, f. 23. nóvember 1960. Þau eiga þrjú börn. Barnabarnabörn Björns og Ingu eru átján. Í upphafi var lífið leikur. Alltaf logn, alltaf sól, alltaf úti að leika, en af og til – „Mamma, hvenær kemur pabbi að (landi)? „ Og svo fór að sjást í depil við sjóndeildarhringinn, sem skar hafflötinn og spekúlasjónin hófst um það hver væri að koma að. „Þetta er Jón í Görðum,“ „ nei, Sigurjón Jónsson,“ „Sigurjón annar?“ kannski Pálmar? Eyvindur fór ekki á sjó í dag. Bakkó? Stjáni í Björnshúsi er nýfar- inn svo ekki kemur hann strax. Ég sé það núna – þetta er pabbabátur.“ Já, allir voru þessir karakterar og margir fleiri hluti af því samfélagi sem ég ólst upp í og eru ljóslifandi fyrir hugskotssjónum mínum enn í dag. Þetta voru kallarnir. En þótt lífið væri leikur var sá leik- ur leikinn á leiksviði er smíðað var af alvöru lífsins. Og smátt og smátt blandaðist leikur barnsins alvöru uppvaxtar og lífs fullorðinna. – Við faðir minn deildum sama fermetra í nær hálfan annan áratug. Sumarlangt í árafjöld stóðum við í stafni á litla bátnum sem okkur báðum þótti svo vænt um og umgengumst sem vin, þekktum kosti hans og galla, mögu- leika og vissum hvað mátti bjóða hon- um og hvað ekki – allt eftir því hvern- ig vindar blésu. Og við drógum net. Og við töluðum. Og við þögðum. Og við rökræddum. Og við skömmuðumst. Og við hlógum. Faðir minn var ekki bara faðir minn. Hann var vinur minn, starfs- félagi minn og skipstjóri minn. Lífs- barátta hans á þeim árum var sam- tvinnuð lífi mínu. Lífsbarátta hans var líf mitt. Og þvílík forréttindi að fá að taka þátt. Hann sagði svo sem ekki margt um samskipti sín við sjóinn og náttúruna. Þess þurfti enda ekki. Það að fylgjast með, vera með, sjá hvernig hann brást við ýmsum aðstæðum, jafnvel ókomnum, kenndi meira en mörg orð. Hann bar virðingu fyrir sjónum. Ógnaði honum ekki heldur viðurkenndi vald hans. Launin voru farsæll ferill á sjó. Og þetta lærðist að heimfæra upp á hið daglega líf. Og ástin og virðingin fyrir móður minni. Ótakmörkuð. Hann rak mig í háleista þegar við bjuggumst til sjós síðla nætur eða árla morguns til þess að vekja ekki móður mína með fóta- takinu og áminnti mig um að ganga hægt um. Og barnabörnin. Afi, fjaran og þau – órofa samband. Það verður ekki á hallað hvort þau nutu meira samvista við hann eða hann við þau. Hann var þeirra og þau voru hans. Hann leyfði þeim ótakmarkað að vera með sér og taka þátt í störfunum í fjörunni eða hverju sem við bar – báð- um til gagns og ómældrar ánægju en börnunum til mikils þroska. Það er gott að fá að sofna eftir lang- an dag þegar þreytan hefur tekið öll völd. Og gleðilegt þegar dagsverkið hefur verið unnið af heiðarleik, sam- viskusemi, ósérhlífni, alúð, ást og væntumþykju. Ég mun ævinlega minnast föður míns með miklum kærleik. Við róum saman á hverjum degi. Ásgeir. Lífsbók tengdaföður míns hefur nú verið skrifuð. Saga hans er merkileg enda var hann stórbrotinn maður, vinnuþjarkur, hraustur, kvartaði aldrei, lífsglaður, húmoristi og höfð- ingi heim að sækja. Við leiðarlok er margs að minnast og er ég þakklát fyrir að hafa kynnst honum. Mér finnst ég ríkari fyrir vik- ið. Mér þótti óskaplega vænt um hann og einkenndist vinátta okkar af ein- lægni og virðingu. Þó að ég hafi að- eins tilheyrt fjölskyldunni í ellefu ár finnst mér eins og ég hafi verið partur af henni í miklu lengri tíma. Í upphafi þegar ég kynntist tengdaföður mínum var ég svolítið feimin, svona eins og gengur og ger- ist, en hann tók mér strax opnum örmum og því kom t.d. aldrei annað til greina en að gista á Ægisíðunni þegar ég hef dvalið í Reykjavík. Ég hef notið þess að vera og gista á Ægisíðunni. Ég og tengdafaðir minn ræddum oft um lífsins gagn og nauð- synjar og hann sagði mér sögur af sjónum og því sem brallað var í gamla daga. Lífsskoðun hans og lífssýn hafði áhrif á mig enda var hann mikill hug- sjónamaður og mér finnst hann í eðli sínu hafa verið jafnaðarmaður því fyr- ir honum voru allir jafnir. Hann var í eðli sínu dulur og hafði oft ekki mörg orð en hnitmiðuð. Tengdafaðir minn hafði gaman af ferðalögum og áttum við Guðjón því láni að fagna að ferðast með tengda- foreldrum mínum nokkrum sinnum. Þau ferðalög eru dýrmæt minning í dag enda voru þau hjón skemmtilegir ferðafélagar. Einnig eru minnisstæð- ar heimsóknir þeirra til okkar á Ak- ureyri. Tengdafaðir minn vann alla tíð mikið og hlífði sér hvergi. Það var ekki hans stíll. Hann hafði farið í hné- skipti og eftir að „nýju“ hnén voru farin að gefa sig kvartaði hann ekki þótt hann væri stundum sárþjáður. Hann gerði aftur á móti grín að þessu öllu saman og sagði gjarnan að enska hnénu og því þýska kæmi illa saman. Það sýndi sig hversu viljasterkur hann var þegar við Guðjón giftum okkur. Þá stóð hann teinréttur við hlið sonar síns staflaus og haggaðist hvergi. Hann ætlaði sér að standa sína „pligt“ og það gerði hann með sóma. Það verður okkur ætíð dýrmæt minning og gerði daginn enn gleði- legri. Tengdapabbi var grásleppukarl alla sína ævi. Eftir að hann hætti að róa fór heilsu hans að hraka og í árs- byrjun 2007 varð ekki aftur snúið. Hann dvaldi fyrst á Landakoti og svo á Sóltúni þar sem hann andaðist sl. sunnudag. Mér er efst í huga þakklæti fyrir góð kynni, virðing og vinátta. Blessuð sé minning tengdaföður míns. Helena. Björn Guðjónsson  Fleiri minningargreinar um Björn Guðjónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Einar Sigurðssonfæddist 1. maí 1936 í Reykjavík. Hann varð bráð- kvaddur 27. nóv- ember sl. Foreldrar hans voru hjónin Ragn- heiður Einarsdóttir, f. 22.6. 1900 í Garða- hverfi, d. 30.5. 1985, og Sigurður Magn- ússon skrifstofustjóri, f. 27.9. 1901 í Stykk- ishólmi, d. 21.7. 1973. Einar var fjórði í hópi sex systkina, hin eru María, f. 1.6. 1932, d. 5.6. s. ár, Geirlaug, f. 1933, Magnús, tvíburabróðir Ein- ars, f. 1936, Júlíana, f. 1939, og Gunnar, f. 1942. Einar kvæntist Ingibjörgu Stein- grímsdóttur 3.6. 1967, en þau skildu. Dóttir Einars og Dóru Gróu Jónsdóttur er Katrín, f. 28.5. 1966, maki Jónas Kristjánsson. Börn eru Dóra Gróa Þórðar Katr- ínardóttir, Berglind Hrund Jón- asdóttir, Auður María Jónasdóttir, Kristján Jónasson og Örn Frosti Katrínarson. Einar ólst upp í foreldrahúsum í Hafnarfirði og átti þar heima lengi áður en hann flutti til Reykjavíkur. Nú síð- ast bjó hann á Dval- arheimili aldraðra við Norðurbrún 1 í Reykjavík. Einar gekk í Mennta- skólann í Reykjavík og varð stúdent það- an 1956. Hann nam síðan viðskiptafræði við Háskóla Íslands og útskrifaðist þaðan sem viðskiptafræð- ingur 1962. Einar starfaði um tíma hjá Sparisjóði Hafnarfjarðar en síðan um langt skeið hjá embætti Skatt- stjórans í Reykjavík. Einar tók mikinn þátt í íþróttum, bæði hand- bolta og knattspyrnu og var m.a. í gullaldarliði FH, sem varð Íslands- meistari í handbolta í mörg ár, fyrst 1956. Hann keppti einnig með landsliðinu. Einar lét sér annt um FH alla tíð og hélt ávallt sam- bandi við sína gömlu félaga úr íþróttunum. Til hinsta dags var hann mikill áhugamaður um bæði handbolta og knattspyrnu. Útför Einars verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin kl. 13. Tengslin milli tvíbura verða ávallt öðruvísi en milli annarra systkina. Þau verða dýpri og nán- ari en um leið verða andstæðurnar skarpari, því að samkeppnin og samanburðurinn eru ávallt fyrir hendi bæði inn á við og út á við. Þessi tengsl eru mér ljós, er ég minnist tvíburabróður míns, Einar Sigurðssonar, en útför hans verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag. Það gat svo sannarlega skorist í odda milli okkar í æsku og ekki síður þegar við vorum orðnir full- tíða menn. En eitt var alltaf himin- ljóst. Þegar til alvörunnar kemur standa slíkir bræður saman gegn- um þykkt og þunnt, þeir eiga þá afdráttarlausu kröfu hvor á annan. Einar var gjörvulegur á velli og hafði mikið keppnisskap, sem átti eflaust sinn þátt í því, að hann varð snemma afreksmaður í íþróttum, bæði í knattspyrnu og handbolta. Hann var fastamaður í handbolta- liði FH á árunum kringum 1956, en þá var félagið Íslandsmeistari í fleiri ár í þeirri grein og hann var einnig í landsliðinu, sem vann marga fræga sigra hér heima og ekki síður á erlendum vettvangi. Ennfremur keppti Einar með liði FH í knattspyrnu. Þessar íþróttir áttu hug hans allan alla tíð og und- anfarin ár hringdi hann gjarnan í mig að minnsta einu sinni í viku til þess að ræða við mig um ensku knattspyrnuna og frammistöðu einstakra liða og leikmanna á þeim vettvangi. Hér heima hélt hann ávallt með sínu gamla félagi, FH. Drengskapur í íþróttum skipti hann miklu máli og honum gat orð- ið heitt í hamsi, þegar hann varð vitni að ljótum leik, hvort heldur í handbolta eða knattspyrnu og var þá óspar á sína meiningu. Þá var hann einnig góður skákmaður. Keppnisskapið hjá ungum manni sagði einnig til sín í námi. Einar var vel skipulagður og skrifaði góðar tungumálaglósur, sem ég naut vissulega góðs af í mennta- skóla, en þar lásum við tvíburarnir gjarnan saman. Ég minnist þess hve glósurnar voru aðgengilegar, ekki síst sökum þess að Einar hafði afar fallega og læsilega rit- hönd. Þó að íþróttirnar tækju mik- inn tíma mátti ekki vanrækja nám- ið og það var athyglisvert, hve vel hann nýtti upplestrarfrí fyrir próf á vorin. Einar varð fyrir því óláni að ánetjast áfengi og lenti síðan í al- varlegu slysi árið 1993, þar sem hann hlaut mikið höfuðhögg og varð öryrki eftir það. Þó að hann næði sér að nokkru leyti aftur varð hann samt aldrei fullkomlega sam- ur maður á eftir. En hann sagði skilið við Bakkus. Áhugi hans á íþróttum dvínaði ekki og eftir sem áður fylgdist hann vel með á þeim vettvangi. Samband okkar tvíburanna var alltaf náið þó að árin liðu. Um nokkurra ára skeið fórum við í sumarferðalög saman, fórum t.d. eitt sumarið í meira en viku ferða- lag til Egilsstaða og Kárahnjúka, þegar framkvæmdir þar voru að byrja og höfðum báðir jafn mikla ánægju af. Einnig sóttum við gjarnan kvikmyndahús saman, nú síðast í Háskólabíó fyrra sunnu- dag. Þegar ég kvaddi Einar fyrir framan heimili hans á dvalarheim- ili aldraðra að Norðurbrún 1 þá um kvöldið var hann hress og ekki að sjá að hann væri á förum. Skyndi- legt fráfall hans kemur því vissu- lega á óvart, en nú er hann allur. Blessuð sé minning Einars Sig- urðssonar. Magnús Sigurðsson. Ég er einn! Núna, þegar ég hugsa um þig, finn ég hvað ég er ofsalega einn. Ég var vinur þinn. En þú varst einn. Og ég var einn. Við vorum einir! FH – félagið þitt frá barnsaldri – var líka mitt. Þannig kynntumst við. Kæri vin. Hvernig á ég að minnast þín? Einn besti maður sem ég hef kynnst, en einn sá gæfulausasti líka. Ég bar virðingu fyrir þér alla tíð og við vorum bestu vinir hvern einasta dag með- an lífið okkar féll saman. Á okkur var tíu ára aldursmunur og við drengirnir í FH bárum tak- markalausa virðingu fyrir þér og öðrum íþróttamönnum í félaginu okkar. Frábærlega menntaður og um- talaður íþróttamaður, sem spilaðir landsleiki fyrir landið þitt Ísland, bæði í handknattleik og knatt- spyrnu undir stjórn Hallsteins Hinrikssonar og Alberts Guð- mundssonar. Einar var einstakur félagi. Hann var dulari en dulustu menn gátu verið. Allt sem maður sagði Einari var læst í hans höfði og traustari var hann en aðrir menn. Hann elskaði Hafnarfjörð svo mikið að hann gat varla talað um hann. Sama mátti segja um FH. Hann átti það til að stara á mig í mínútu og spyrja svo: „Hverjir eru bestir?“ Hann átti fáa vini en góða og ég var einn af þeim. Gulleintak af manni, bestur af öllum, hetja, sem ekki gleymist. Þegar hann komst ekki sjálfur fyrir boltann hrinti hann næsta manni fyrir skotið. Hann var ein af hetjum Hall- steins. Skólabókardæmi um að ef þú vilt eitthvað getur þú að minnsta kosti reynt. Þvílíkir fé- lagar! FH-ingar frá morgni til kvölds. Hann var meiri FH-ingur og meiri Hafnfirðingur en flestir gerðu sér grein fyrir. Þrátt fyrir gáfur, vit og skyn- semi og frábæran íþróttaferil gekk Einar ekki alltaf gyllta braut. Hann var þrátt fyrir allt einfari, talaði fátt og skipti sér ekki af öðr- um. Hann gekk lengstum einn. En öllum sem kynntust honum var ljóst að þar fór drengur góður sem mat allt það góða, sem prýða má traustan mann. Hann lenti í mörgum áföllum í lífinu og að því kom að ein raunin var öðrum erfiðari. Hann er dáinn. Guð geymi þig Einar. Ævar Harðarson. Einar Sigurðsson  Fleiri minningargreinar um Einar Sigurðsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.