Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 Morgunblaðinu hefur borist mikill fjöldi greina og pistla frá lesendum um ástandið í efnahagsmálum landsins. Margir höfundar lýsa áhyggjum sínum af þróun mála og margir gera tillögur um leiðir út úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Morgunblaðið leggur áherslu á að gera þessum umræðum góð skil í blaðinu á næstunni. Skoðanir fólksins Á TÍMUM tómlætis ráðamanna sem eiga engin svör við beinskeytum spurningum almennings,væri ef til vill ráð fyrir þá að taka verulega til í eigin ranni og segja bara sannleikann því hann er alltaf bestur til árangurs, en það er eins og það sé vettlingur yfir heilanum á þorra þingmanna og þeirra sem hafa með alla ráðstjórn að gera um þessar mundir. Áleitnum spurn- ingum eins og hvað gerðist og hvað er að gerast, hvað mun gerast er nánast svarað eins og almenningi komi þær ekki við. Mig langar t.d. til þess að fara í skaðabóta- mál við Lansbankann en því miður er búið að setja nánast hryðjuverkalög á okkur sem áttum í sparipeningasjóði þess banka. Það er siðferðisleg skylda og krafa vor að stuldurinn verði ekki lögverndaður, annars verður allt vitlaust, ekki er viturlegt að hengja smáþjófa og taka ofan fyrir þeim stóru. Eitt er þó alveg á hreinu. Þjóðin vill að þeir mein- gölluðu ólánspésar sem teymt hafa allan skarann nánast að heljarbrún verði tukthúsaðir sem fyrst og látnir svara til saka strax. Þeir verði hundeltir á hjara veraldar ef þurfa þykir. Ekki láta tímann gefa þessu sjálftökufólki forskot sér til framdráttar og undanskota lengur en orðið er. Rýmum því tukthúsið á Skólavörðustígnum nú þegar og gefum þeim syndaaflausn sem þar sitja nú inni fyrir að hafa stolið sér til matar eða drukkið ótæpilega á almanna- færi. Þeir þarna á Spáni kunna held ég ágæt skil á rann- sóknarréttinum og væru alveg ábyggilega tilbúnir að veita okkur aðstoð hvernig honum má beita. Í landi lýðræðis má aldrei beita minnihlutakúgun og of- ríki. Það vekur andúð og fyrirlitningu á þeim sem henni beita en því miður er það svo að henni er og hefur verið beitt ótæpilega hér á landi um árabil. Það er eins og spillt- ir ráða- og embættismenn séu fastir í einhvers konar hlekkjum hugarfarsins. Svona á þetta að vera því þetta hefur alltaf verið svona. Einn ágætur hugvitsmaður sagði einhvern tímann að hugmyndaauðgi væri mikilvægari en þekking. Væri það ekki bara vel til fundið, ágæti Geir, Valgerður, Ingibjörg eða Sigfússon að nota hug- myndaauðgina í ríkara mæli, t.d. láta nú mann ársins gossa fyrir fullt og allt. Hann er búinn að skapa svo ófyr- irgefanleg vinnubrögð í sínum starfa að út yfir allan þjófabálk tekur. Þið þarna kokhraustu kempur í brúnni náið aldrei sátt við almenning fyrr en þið hafið tekið ær- lega til í marmarabankanum. Menn verða að víkja ef sættir eiga að takast. Einnig er mikilvægt að skapa nýtt andrúmsloft á Alþingi, vandaðri áherslur í samskiptum sín í milli án þess að vera eilíflega með hnútuköst og nei- kvætt orðfæri sem við almenningur höfum fengið meir en nóg af. Góð skapgerð, kurteisi og skilningur eru oft fé- lagar. Umfram allt virðið skoðanir fólks, hlustið á mót- mæli, en umfram allt farið eftir eigin sannfæringu, og ef hún er ekki til staðar þá bara takið ykkur frí frá störfum. Ekki tel ég viturlegt nú um stundir að boða til kosninga, en ef þessir ráðamenn sem hnípnir horfa nú í gaupnir sér ætlast til þess að fá atkvæði frá þeim þúsundum sem eiga nú um sárt að binda, verða þeir að leysa úr læðingi krafta- verk. Allir stjórnmálaflokkar deyja að lokum á því að éta eigin lygar ofan í sig. Þannig er nú það. Rannsóknarréttinn strax Hilmar Hlíðberg Gunnarsson fv. verslunarmaður og mótmælandi. „Kóngar að síðustu komast í mát og keisarar náblæjum tjalda.“ (Þorst. Erlingss.) Það hlýtur að vera áleitin hugs- un hjá mörgum nú um þessa mundir, þegar lýðræðið í þjóð- félagi okkar hefur hlotið svo hroða- legt skipbrot sem raun er á, hvernig skuli bagla saman þennan brotna keip og gera sjófæran aftur. Að flestra dómi er hann reyndar gjöró- nýtt brak sem fer beint á áramóta- bálköstinn, skipstjóri og áhöfn uppvís að valdahroka og afglöpum í starfi, sem gerir hana óstarfhæfa þar til rannsókn hefur farið fram. Mesta áhyggjuefnið hlýtur þó að vera að það er eins og mannlegt of- læti, völd og peningagræðgi, yfirtaki og afskræmi allar góðar stefnur og strauma. Kristindómurinn og önnur trúarbrögð misnotuð til auðsöfnunar og yfirgangs fámennrar valdastéttar ríkja, fasismi, nasismi og allir þessir ismar sömuleiðis og lýðræðið þar ekki undanskilið. Frjálshyggjan hefur séð fyrir því. Hvað er þá til ráða? hljótum við að spyrja. Þarf maðurinn svo þröngar lagaskorður til að lifa í sátt og sam- lyndi í þessum heimi að allt sé heft í fjötra.Samt hefur hann þetta æðsta og mesta boðorð allra boðorða að fara eftir: „Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra.“ Og manninum var gefin sú náð- argáfa að greina gott frá illu, hugsa og nota sköpunarhæfileika sína til velferðar sjálfum sér og öðrum. – En það er einmitt meinlokan í þessu öllu saman. – Maðurinn gleymir svo gjarnan að taka tillit til annarra. Eins og núna þegar ríkisstjórn þessa lands finnur ekki köllun sína til að taka tillit til fólksins í landinu en ber sér á brjóst í algjöru ráðleysi og lokar sig af í glerhúsi sjálfsblekkingar valda- hrokans. Af hverju í ósköpunum kallar hún ekki til eitthvað af þessu velmenntaða fagfólki sem úir og grúir af í þjóð- félaginu og hrópar nú á götum úti á þátttökuheimild og upplýsingar um stöðuna? Fólkið, sem lifir og hrærist í þessu þjóðfélagi og heldur því gang- andi. Fólkið, sem er orðið yfir sig uppgefið á að vera bara þögul burð- ardýr og taglhnýtingar uppþornaðra flokka, sem halda enn að þeir geti skákað í skjóli flokksaga og drottn- unarvalds, hvaða ófæru sem hús- bóndavaldinu þóknast að leiða það út í. Það eru því miður fáir jafn einarðir og sjálfstæðir í hugsun eins og Krist- inn H. Gunnarsson, að fylgja sann- færingu sinni og eiðsvarinni þing- skyldu, og greiða sitt atkvæði eftir því en ekki skipun misviturra flokks- formanna. Honum sé heiður og þökk fyrir gott fordæmi, sem mætti verða öðrum þingmönnum alvarlegt um- hugsunarefni. Og landsmönnum öll- um tilefni til að endurskoða flokks- aga, flokkakerfið og framkvæmd lýðræðisins.Vonandi berum við gæfu til að byggja aftur upp á grunni lýð- ræðisins, betra og heilbrigðara þjóð- félag en rústir þessa einveldis auðs- hyggjunnar bera vott um. Fólkið í landinu er vel menntað, tápmikið og hæfileikaríkt, landið gjöf- ult og gott með ótæmandi möguleika til alls konar rannsókna og framþró- unar. Okkur er: „… upp í lófa lögð / landið, þjóðin, sagan“… til þess að allir geti búið við góð kjör og farsælt samfélag, 100 ára gamli ungmenna- félagsandinn væri hollt veganesti til að rifja nú upp og sækja góð ráð til. Það sýnir saga nýliðinnar aldar. Varla vilja ungmenni þessarar nýju aldar, með alla sína menntun og starfsþrek, verða eftirbátar afa og ömmu, sem réðust á erfiðleikana með tvær hendur tómar og léttan mal. En kjörorðið: „Íslandi allt“ gaf þeim þrek og þor. Tökum þeirra fallna merki upp nú og berum fram til sigurs! Lýðræði – eða smákóngavald? Guðríður B. Helgadóttir húsmóðir og skógarbóndi ÞAÐ er óhætt að segja að krón- an hafi siglt í strand. Tilraunin til að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli mis- tókt algerlega. Um þetta þarf ekki að deila. En hvað skal gera? Svo virðist sem stefnan sé að setja krónuna aftur á flot. Höldum okkur við sjómanna- málið. Krónan var eins og trilla á út- hafinu sem reyndi að fiska meðal risavaxinna verksmiðjutogara. Trill- an strandaði á skeri og laskaðist. Hún tapaði trúverðugleika. Nú er hún komin í slipp. Við ætlum að fylla í götin og senda hana aftur til veiða … „með skaddað stýri og laskaða vél“. Að setja krónuna aftur á flot er glapræði. Trillan hefur ekkert á út- hafið að gera. Það er fullreynt. Að- eins ein raunhæf lausn er í boði: Fara í aðildarviðræður við ESB og tengja krónuna við EUR um leið með stuðningi Evrópska seðlabank- ans. Þetta er leið sem allmargir hafa bent á og er að mínu viti eina raun- hæfa leiðin út úr efnahagsvand- anum. Eina langtímalausnin. Það er mjög mikilvægt að átta sig á því að krónan er ekki lengur með í leikn- um. Krónan er í raun ekki lengur til sem gjaldmiðill. Íslendingar sitja uppi með platpeninga, nokkurs kon- ar Matadorpeninga. Ljósi punkt- urinn við þær hrikalegu efnahags- þrengingar sem við nú göngum í gegnum er að við höfum fengið svar við mikilvægri spurningu er lýtur að gjaldeyrismálum. Við getum ekki haldið uppi sjálfstæðum gjaldmiðli. Tökum á vandamálinu og þá mun Ísland og Íslendingar eiga glæsta framtíð! Aðeins ein raunhæf lausn Magnús Pálmi Örnólfsson, hag- fræðingur og MBA. Starfaði á gjaldeyrismarkaði í tæp 10 ár. Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Kerti úr sama pakka geta brunnið mismunandi hratt og á ólíkan hátt. Munið að slökkva á kertunum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.