Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 20
Opið hús Gler í Bergvík 6. og 7. des. kl. 10-15. Blásið í gler fyrir jólin Kúnst Glerblástur er kannski ekki fyrir hvern sem er og vanda þarf verkið. Morgunblaðið/RAX Rautt Lífgar upp á umhverfið. Upplyfting Glös fyrir stóra og smáa. Listamenn Sigrún Einarsdóttir (2. f.v.) ásamt Jonatan Waalin, Amy Kruger og Laura Puska. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Jólahelgin hér hjá mér hefur verið fyrstuhelgina í desember frá því okkar sagahófst fyrir tuttugu og sex árum. Þettaer því orðin gamalgróin hefð,“ segir Sigrún Einarsdóttir glerlistakona en hún ætl- ar að vera með opið hús í glerblástursverk- stæði sínu á Kjalarnesi nú um helgina. „Fólk getur komið í heimsókn og séð hvernig gler- blástur fer fram, en við erum fimm sem ætlum að blása þessa daga. Auk mín og Ólafar systur minnar verða hér tveir Danir, þau Amy Kru- ger og Jonatan Waalin en þau fengu sína gler- blástursþjálfun í Kostaboda-skólanum og svo verður líka einn nemi frá Finnlandi, hún Laura Puska.“ Auk þess er þessa einu helgi á ári hægt að kaupa á fimmtíu prósent afslætti öll þau gler- listaverk sem hafa „lent í skúffunni“ eins og Sigrún kallar það, en það eru lítillega útlits- gölluð verk. Önnur verk í galleríinu verða seld með 15% afslætti um helgina. Ungbarnaglös „Ég reyni alltaf að vera með eitthvað nýtt og núna verð ég til dæmis með lítil barnaglös, svipuð þeim sem ég hef gefið ungbörnum í minni fjölskyldu í vöggugjöf með nafni þeirra á. Þetta hefur vakið mikla lukku og mér finnst gott að bjóða upp á þessi litríku og glaðlegu glös núna í kreppunni,“ segir Sigrún sem einn- ig hefur búið til jólakúlur úr gleri til að hengja upp í glugga og engar tvær þeirra eru eins. Að sjálfsögðu verður boðið upp á kaffi, piparkökur og djús, til hressingar fyrir gestina, en Sigrún segir suma gestina hafa haldið tryggð við sig í öll þessi ár og koma ævinlega til hennar þessa helgi. En svo eru alltaf ný andlit líka enda allir velkomnir. „Það er ákveðinn kjarni sem hefur stundum beðið hér fyrir utan áður en ég opna, til að næla sér í bestu hlutina.“ Jólalegt Litríkar skálar fyrir alls kyns góðgæti. 20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · Kringlan, sími 568 0400 · www.myndlist.is Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu S ig urð ur G uð m und sso n Erró S o ffía S æ m und sd ó ttirÁ uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna. Þá verður „Auminga Ísland“ eftir Sigurð Guðmundsson boðið upp og eins verk eftir Sossu, Soffíu Sæmundsdóttur, Tolla, Óla G. Jóhannsson og Erró. Listmunauppboð í Galleríi Fold mánudaginn 8. desember kl. 18 og þriðjudaginn 9. desember kl. 18 Verkin verða sýnd í Galleríi Fold við Rauðarárstíg: föstudag kl. 10-18 (öll verk), laugardag kl. 11–17 (öll verk), sunnudag kl.12–17 (öll verk), mánudag kl. 10–17 (öll verk) þriðjudag kl. 10–17 (verkin sem ekki eru boðin upp á mánudag)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.