Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI Jólamynd fjölskyldunnar er komin, geggjuð grínmynd sem kemur öllum í rétta jólaskapið! ATH. SÝND MEÐ ÍSLEN SKUT ALI OG E NSKU TALI VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA FRÁ RIDLEY SCOTT, LEIKSTJÓRA AMERICAN GANGSTER OG GLADIATOR. S.V. – MBL. NEW YORK TIMES - POPPLAND - ROGER EBERT SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI - NEW YORK POST - H.J. MORGUNBLAÐIÐ SÝND Í ÁLFABAKKA ZACH EFFRON OG VANESSA HUDGENS GERA ALLT VITLAUST Í HIGH SCHOOL MUSICAL 3! SÝND Í ÁLFABAKKA ÍSLENSKT TAL SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Á SELFOSSI SÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI Madagascar er ein vinsælasta teiknimynd allra tíma! TWILIGHT kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára BODY OF LIES kl. 10:10 B.i. 16 ára NICK AND NORAH´S... kl. 8 LEYFÐ MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ IGOR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ TWILIGHT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára RESCUE DAWN kl. 8 B.i. 16 ára QUARANTINE kl. 10:20 B.i. 16 ára MADAGASCAR 2 m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ IGOR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ TWILIGHT kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára MADAGASCAR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ MADAGASCAR m/ensku tali kl. 6 - 8 LEYFÐ PASSENGERS kl. 10:20 B.i. 12 ára SPARBÍÓ 550 krr á allar sýningar merktar með appelsínugulu SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA „...ef ykkur líkaði við fyrri myndina, þá er þessi betri.“ - Roger Ebert S.V. Mbl LEIKKONAN Kirsten Dunst er komin með nýjan mann upp á arminn. Sá heitir Jacob Soboroff og er leikstjóri. Samband þeirra hófst er þau unnu sam- an að heimildarmynd um kosningakerfi forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Sambandið hefur verið staðfest af vini Dunst en einnig sást til þeirra versla saman í New York. Dunst hefur áður átt í ástarsambandi við leikarann Jake Gyllenhaal, Razorlight- meðliminn Johnny Borrell og leikrita- skáldið Jeff Smeenge. Fyrr í þessari viku var dæmt Dunst í vil í máli gegn aðdáanda sem sat um hana. Christopher Smith, sem kveðst vera ást- fanginn af henni, hafði brotist fimm sinn- um inn á heimili hennar og valdið henni miklum ótta. Hann var dæmdur í nálg- unarbann. Reuters Sæl Kirsten Dunst er vonandi ástfangin. Með nýjan ástmann Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is FYRIR stuttu kom út ný breið- skífa Singapore Sling, Perversity, Desperation and Death. Þó sveitin sé þegar búin að halda útgáfu- tónleika, gerði það í Þýskalandi fyrir skemmstu, eiga Íslendingar enn eftir að heyra hana flytja efni af breiðskífunni. Úr því verður bætt í kvöld þegar sveitin stígur á stokk í þeim fornfræga stað Grand Rokk. Henrik Björnsson, höfuðpaur sveitarinnar, segir að það hafi freistað hennar að spila á Grand Rokk enda langt síðan hún kom þar fram síðast. „Svo er það líka skemmtilegur tónleikastaður og á vonandi eftir að sækja í sig veðr- ið.“ Eins og Henrik rekur söguna er nokkuð síðan sveitin lauk við Perversity, Desperation and Death, en hún var tekin upp á ýmsum stöðum, þar á meðal í Berlín og æfingahúsnæði sveit- arinnar. Reyndar stóð til að ljúka við skífuna í æfingaplássinu en sveitin hrökklaðist þaðan undan vatnsflóði og lauk við verkið í hljóðveri. Upphitunarsveitir í kvöld eru Kid Twist, sem er ný af nálinni, og svo æringjarnir í Evil Madness, sem sendu frá sér sína aðra breið- skífu á dögunum en hafa ekki leik- ið á tónleikum alllengi. Ein- hverjum kemur kannski á óvart að Henrik og félagar hafi fengið Evil Madness til upphitunar en fyrir honum var þetta einfalt mál: „Evil Madness er einfaldlega eitt af mínum uppáhalds böndum og þegar við bætist að þeir eru vinir mínir kom ekki annað til greina.“ Eins og getið er kynnti Singa- pore Sling plötuna nýju í Þýska- landi fyrir stuttu og Henrik segir að eflaust eigi hún eftir að spila meira ytra á næsta ári, því nú standi yfir samningaviðræður við nokkur fyrirtæki um útgáfu á plötunni í Bandaríkjunum, Ástr- alíu og eins um Evrópuútgáfu. Singapore Sling snýr aftur Dökkt hanastél Platan nýja var tekin upp víða og stundum við miður góðar aðstæður. Singapore Sling er ekki bara hljómsveit held- ur er það líka hanastél sem varð til á Raf- fles hótelinu í Singapore á millistríðs- árunum, hrist saman úr gini, kirsuberjabrandíi og Benedictine-líkjör með sóda- vatni að smekk. Í bókinni frægu Fear and Loat- hing in Las Vegas eftir Hunter S. Thompson ræðir ein sögupersónan um þá iðju að skola Singapore Sling niður með mescal-brennivíni. Á Raffles-hótelinu kostar einn Singapore Sling 24,70 dali, sem samsvarar um 3.500 kr. Einn Singapore Sling, takk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.