Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 ✝ Helga Eiríksdóttirfæddist í Reykja- vík 17. september 1926. Hún lést á dval- ar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund 29. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Eiríkur Ketill Jónsson og Jenný Friðriksdóttir Weld- ing. Systkini Helgu voru Ingibjörg, Hall- dór, Eiríkur Halldór, Magðalena, Jenný María og Valgerður sem eru látin, eftirlifandi bróðir er Jón og hálfsystir Svala. Helga giftist 24. september 1949 Magnúsi Ágústssyni bifvélavirkja. Magnús lést 30. september 2000. Helga og Magn- ús eignuðust þrjú börn, þau eru Ágúst, Lilja og Jenný. Barna- börnin eru átta og langömmubörnin sjö. Útför Helgu fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Við bræður viljum minnast Helgu frænku, eða Helgu ömmu eins og við kölluðum hana þegar við vorum litlir, í örfáum orðum. Helga var góðhjört- uð og velviljuð kona sem reyndist okkur bræðrum og móður okkar (litlu systur sinni) mjög vel. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn til Helgu og Magga í Álftamýrina og síðar til Helgu í Dvergabakka. Helga hafði mjög gaman af íþróttum, sérstaklega af fótbolta og handbolta, enda mikill Fram-ari og ávallt stolt af merki Fram sem faðir hennar teiknaði. Við sendum aðstandendum samúðar- kveðjur. Hallsteinn og Valur Örn. Það fyllir mann sárum söknuði og hryggð að vita til þess að geta ekki heimsótt Helgu ömmu á ferðum okk- ar til Reykjavíkur. Alveg frá því að ég man eftir mér var alltaf jafn gott að koma heim til ömmu og afa, fyrst í Álftamýrinna og svo Dvergabakkann. Það kemur ekkert í staðinn fyrir vin- semdina og hlýjuna sem ríkti á heim- ilinu. Amma var góð og hlý mann- eskja. hún var þeim kosti gædd að geta látið öllum líða vel í kringum sig og var alltaf tilbúin að hlusta. Að koma til hennar var eins og að sleppa frá gráa hversdagsleikanum smá- stund. Hún sat yfirleitt og dúllaði sér við eitthvað, prjónaði litla sokka, perlufestar eða jafnvel myndaalbúm sem hún ætlaði að gefa. Hún var alltaf jafnglöð að sjá okkur og stökk af stað að ná í eitthvað gott í gogginn, þótt hún ætti frekar erfitt með gang. Þegar ég var lítil stelpa í heimsókn hjá ömmu og afa áttu þau litla spiladós sem amma trekkti iðu- lega upp og leyfði mér að hlusta á lag- ið. Þetta var lítil spiladós sem var í laginu eins og stelpa og strákur með lítinn hund sem sátu undir regnhlíf. Spiladósin söng lagið „Raindrops are falling on my head“ en þetta lag minnir mig alltaf á ömmu. Amma var mjög flink í höndunum og það er gaman að horfa á alla fallegu hlutina sem hún hefur gefið mér í gegnum tíðina. Vænst þykir mér þó um lítinn hvítan gullskó sem nafnið mitt er letr- að á með gullstöfum. Öll systkini mín eiga svona skó og strákarnir mínir líka. Þennan skó mun ég varðveita alla mína ævi sem og minninguna um ömmu í hjarta mér. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Elsku amma og langamma, þín verður sárt saknað. Guð geymi þig. Lilja Björg og fjölskylda. Helga Eiríksdóttir ✝ Jón Jónsson fráSetbergi fæddist á Bjarmalandi í Hörðu- dal 18. mars 1928. Hann lést á líknardeild St. Franciskusspít- alans í Stykkishólmi 26. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Jón Bergmann Jónsson, f. í Hlíð í Sauðafellssókn í Döl- um 2.2. 1893, d. 5.4. 1981, og Kristín Sig- ríður Guðmundsdóttir, f. á Dunk í Hörðudals- hreppi 16.4. 1887, d. 20.8. 1951. Systkini Jóns eru: Sigurfljóð, f. 17.6. 1918, búsett í Rekjavík, Margrét Kristín, f. 2.9. 1919, búsett í Reykja- vík, Þorleifur, f. 25.11. 1921, búsettur í Reykjavík, Jakob, f. 25.9. 1923, d. 15.12. 1998, Guðmundur, f. 2.9. 1925, búsettur í Reykjavík, og Ingunn, f. 6.8. 1931, búsett á Ísafirði. Jón kvæntist 1953 Ólafíu Þorsteins- dóttur, f. 30.4. 1932. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Þor- steinn Gunnlaugsson, f. 11.3. 1885, d. 14.10. 1958, og Þórdís Ólafs- dóttir, f. 27.8. 1893, d. 27.1. 1970. Börn Jóns og Ólafíu eru: 1) Krist- vin Ómar, f. 12.4. 1951, Jón Bergmann, f. 26.11. 1952, Ólafur Ingimar, f. 9.8. 1957, Kristín Þorgerður, f. 2.9. 1959, d. 4.7. 1986, Þorsteinn, f. 9.2. 1966, og Sigurður Þór, f. 3.9. 1969. Útför Jóns fer fram frá Breiðaból- staðarkirkju á Skógarströnd í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Nú er hann afi minn farinn í ferða- lagið langa. Hann Jón afi minn var merkilegur og góður karl, svolítið sérvitur, en skemmtilegur. Þegar faðir minn hringdi og tilkynnti mér andlát hans þá hrönnuðust minningarnar upp í huganum og voru þær margar og skemmtilegar. Ég var í sveit hjá afa og ömmu í mörg sumur og var margt brallað þar og sagðar ófáar sögurnar. Einu sinni sem oftar var farið í það að reka fé úr túnum og var þá sest upp í hvíta Land Rover jeppann hans afa og keyrt um. Þetta voru svolítið magn- aðar ökuferðir, afi þeysti út um allt tún á eftir fénu og opnaði svo oft dyrnar og gólaði á kindurnar. Oft hugsaði maður um það hvernig þetta myndi enda. En svona var hann bara. Hann unni sveitinni sinni meira en öllu öðru og hafði gaman af því þegar maður kom til hans í heimsókn og var þá gjarnan spjallað um búskapinn og þjóðmálin. Þá var drukkið rótsterkt kaffi sem hellt var upp á á gamla mátann og borðað eitthvað gott með. Ekki má gleyma lambalærinu sem hann útbjó á sérstakan máta, það var með rófum skornum niður í teninga í ofnskúff- unni og er þetta kallað rófulærið hans Jóns afa á mínu heimili. Afa þótti líka ekki leiðinlegt að skeggræða pólitík við mann og þá helst svo að maður æsti sig. Ég man að eitt sinn er hann var að koma suður til mín þegar ég bjó í Hafnarfirði þá sótti ég hann á móti föður mínum upp á Kjala- nes og á leiðinni þá ræddum við pólitík og var blóðið í mér farið að hitna svolít- ið þegar afi segir allt í einu, ég er nú bara að stríða, Dísa mín. Hann hafði líka mjög gaman af langafabörnunum sínum og þótti alltaf vænt um þegar við komum við hjá honum í sveitinni þó það væri of sjaldan í seinni tíð. Þóttist ég sjá það á honum í sumar þegar við komum við hjá honum á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi að honum þætti gaman að sjá strákana mína. Minninganna leiftur lýsa ljúfar stundir, fagra rós. Upp í huga hæst þá rísa hamingjunnar skærust ljós. Lífið er í æðsta veldi einlæg stund er tekur völd. Er syngjum við í sólareldi saman þökk um ævikvöld. (Ellert Borgar Þorvaldsson.) Guð geymi þig, elsku afi minn. Þórdís og fjölskylda. Elsku afi Jón, nú ertu farinn frá okkur eftir löng og erfið veikindi. Ég var nú ekki há í loftinu þegar ég fór að vera hjá ömmu og afa á Set- bergi. Þar var alltaf mikið um gesta- gang og oftar en ekki voru barna- börnin hjá ykkur í lengri eða skemmri tíma. Það var margt brallað í sveitinni, við Halldór og Þórdís út- bjuggum okkur t.d. „hesta“ úr göml- um plaströrum og notuðum bagga- bönd fyrir beisli svo við hefðum nú einhverja stjórn á fákunum, svo þeystumst við niður afleggjarann ýmist með tvo eða þrjá til reiðar og yfirleitt á harðastökki. Ekki leið á löngu þar til við vorum farin að leggja á alvöru gæðinga, þau Hanni- bal, Freyju og Blesu, en ég fékk að vera á Blesu því hún var svo þæg og knapinn lítill og léttur. Það er mér mjög minnisstætt þegar afi kom að sækja mig á flugvöllinn í Stykkishólmi á gráa „Hilux“-jeppanum sínum, þetta var árið 1985 og verkfall í skólanum mínum í Reykjavík. Ég fékk að sitja við hliðina á flugmanninum með stýrið fyrir framan mig og afi sagði við mig að ég hlyti bara að hafa verið aðstoðarflugmaður, eftir þau orð afa míns fannst mér ég stækka um helming. Það var svo árið eftir sem mamma dó en þá breyttist lífið mikið, ég fluttist þá alveg í sveitina til pabba og fór í heimavistarskólann að Laugum í Sælingsdal. Þú, afi minn, varst nú ekkert hrifinn af því að ég færi í þenn- an skóla en sást það svo þegar fram liðu stundir að mér leið vel þar og eign- aðist mína bestu vini þar fyrir lífstíð. Þú fylgdist alltaf vel með mér og hringdir oft í mig, bæði heim að Háa- felli og í skólann. Þegar einhver skóla- félaginn kom hlaupandi og sagði að það væri karlmaður í símanum að spyrja eftir Málfríði þá vissi ég að það varst þú, afi, því að enginn annar kallaði mig því nafni. Við spjölluðum um margt, þú sagðir mér frá vélsleðum og bílum sem þú varst að spá í, þú sagðir mér frá því þegar þú vannst í Reykjavík sem ung- ur maður og þú sagðir mér frá hest- unum þínum sem voru þér svo kærir. Þú komst stundum í heimsókn til okkar að Háafelli á „Scout“-jeppanum þínum og þá höfðum við eitthvað gott í matinn handa þér, þú kunnir sko vel að meta það. Ég átti hryssu hjá þér sem mamma hafði átt sem hét Meyja en þú hafðir það á orði við mig einn vordag ár- ið 1993 að ég þyrfti að yngja upp og fá hross sem mundi nýtast mér því hryss- an var orðin gömul. Það var svo um sumarið sem Kobbi og Leifi, bræður þínir í Litla-Langadal, hringdu í pabba og báðu hann að hjálpa til við að skipta um þak á gamla húsinu þar, á æskuslóð- um þínum. Ég fór með og eyddi þeim degi með þér á Setbergi. Við löbbuðum um stóðið og þar voru tveir veturgamlir folar, báðir rauðtvístjörnóttir. Þú sagðir að ég mætti velja annan hvorn hestinn í staðinn fyrir Meyju gömlu sem ég gerði. Hesturinn var svo kominn að Háafelli eftir nokkra mánuði og gaf ég honum nafnið Hektor. Þetta varð svo ljómandi góður reiðhestur og það gladdi þig mikið. Elsku afi minn, nú veit ég að þér líður vel og ert kominn á betri stað að hitta hana mömmu, dóttur þína. Hvíldu í friði. Þín dótturdóttir, Málfríður Mjöll. Jón Jónsson  Fleiri minningargreinar um Helgu Eiríksdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN GUÐMUNDSSON pípulagningamaður, Sléttuvegi 19, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðjudaginn 2. desember. Útförin verður auglýst síðar. Vigdís Pétursdóttir, Kristín Jónsdóttir, Sveinbjörn F. Strandberg, Pétur Ingi Sveinbjörnsson, Jóhann Örn Sveinbjörnsson, Dana Rún Heimisdóttir, Björn Þór Sveinbjörnsson. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TÓMAS ÞORVALDSSON, Gnúpi, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þriðjudaginn 2. desember. Jarðsungið verður frá Grindavíkurkirkju þriðjudaginn 9. desember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Björgunarsveitina Þorbjörn í Grindavík. Eiríkur Tómasson, Katrín Sigurðardóttir, Gunnar Tómasson, Rut Óskarsdóttir, Stefán Þorvaldur Tómasson, Erla Jóhannsdóttir, Gerður Sigríður Tómasdóttir, Jón Emil Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, NJÁLL GUÐMUNDSSON, Blöndubakka 15, lést á hjartadeild Landspítalans laugardaginn 22. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Hjartans þakkir fyrir veittan stuðning og vináttu, einnig bestu þakkir til þeirra sem önnuðust útför hans, fyrir yndislega fallega kveðjustund. Sigríður Júlíusdóttir, Þórður Njálsson og fjölskylda, Júlíus Njálsson, Hafliði Ólafsson og fjölskylda. ✝ Elskulegur faðir okkar, afi og langafi, HANS PETER LARSEN, Baldursgötu 16, Reykjavík, andaðist á Vífilsstöðum mánudaginn 1. desember. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 8. desember kl. 13.00. Hjörtur Dagfinnur Hansson, Helgi Hilmar Hansson, Ástvin Hreiðar Gíslason barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÚN GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR frá Bala Stafnesi, Stapavöllum 19, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, sunnudaginn 30. nóvember. Útför hennar fer fram frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði laugardaginn 6. desember kl. 14.00. Guðmundur H. Ákason, Guðrún Gunnarsdóttir, Jón Gunnarsson, Guðrún Gunnarsdóttir, Kristþór Gunnarsson, Ásrún Rúdólfsdóttir, Guðmundur G. Gunnarsson, Þórhalla M. Sigurðardóttir, Þjóðbjörg Gunnarsdóttir, Reinhard Svavarsson, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.