Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 Elsku hjartans Þórir minn, mikið ofboðslega er þetta sárt, að horfa á eftir svona ungum og efnilegum dreng eins og þér. Þú varst alltaf svo hress og kátur, með þinn sér- staka, skemmtilega húmor. Það kom öllum gjörsamlega á óvart að eitthvað hefði verið að hjá þér, al- veg sama hvern maður spyr, enginn Þórir Árni Jónsson ✝ Þórir Árni Jóns-son fæddist í Reykjavík 8. júlí 1991. Hann lést 24. nóv- ember sl. Þórir var sonur hjónanna Kol- brúnar Þórisdóttur, f. 3.7. 1958, og Jóns B. Guðlaugssonar, f. 31.12. 1959. Systkini Þóris eru þau Axel Helgi, f. 1.10. 1992, og Herdís Brá, f. 2.2. 1996. Þórir var nem- andi í Mennta- skólanum í Kópavogi en stundaði jafnframt tónlistarnám við Tónlistarskóla Kópavogs. Jarðarför Þóris Árna verður gerð frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag kl. 15. hafði merkt neitt, ekki einu sinni núna þegar fólk horfir til baka þá sáust aldrei nein merki um það. Ég vildi óska að þú hefðir beðið um að- stoð, því hana hefði auðveldlega verið hægt að fá, því þú átt- ir marga, marga góða að, bæði fjölskyldu og vini. Ég man gleðina hjá okkur í fjölskyldunni jólin 1990 þegar vitn- eskjan um væntanlega fæðingu þína kom í ljós, því flestir voru orðnir úr- kula vonar um að foreldrar þínir myndu láta verða af því að eignast börn. En þegar amma þín og afi fengu jólapakkann frá foreldrum þínum var jólakort utan á honum og inn í kortið var búið að festa litla barnasokka og fyrir ofan þá var skrifað júlí, þvílík gleði. Svo fæddist þú, 8. júlí 1991, í rafmagnsleysi, raf- stöðin á fæðingarheimilinu var biluð svo Raddý, sem var viðstödd, þurfti að lýsa upp með vasaljósi svo ljós- móðirin sæi hvað hún væri að gera. Ári seinna fæddist Axel Helgi og svo fjórum árum seinna Herdís Brá, svo ykkur fjölgaði hratt. Þú fékkst viðurnefnið Dubbi, og varst alveg yndislega skemmtilegur strákur. Ég man alltaf eftir því þegar þú varst um tveggja ára og ég var dag- mamma með þig. Einn daginn þeg- ar þú varst nýfarinn að tala sast þú við eldhúsgluggann hjá mér næst- um allan daginn, því á plani rétt við húsið stóð stór vörubíll og átti hann hug þinn allan. Þú sast og horfðir á bílinn og sagðir aftur og aftur „vhá dló bítlh“ og síðan þá þegar ég og Bjöggi sjáum stóra bíla dettur þetta alltaf upp úr okkur, „vhá dló bítlh“. Þetta var svo sætt. En elsku Þórir minn. Það kemur víst alltaf að leiðarlokum hjá okkur öllum en ég vildi að þín leið hefði verið svo miklu lengri því hæfileikar þínir voru svo margir. Þér gekk mjög vel í skóla, og var mannsheil- inn nokkuð sem þú hafðir mikinn áhuga á og ætlaðir að læra um, af hverju heilinn virkaði eins og hann gerir. Enda lastu mikið um manns- líkamann og heilann. Þú lærðir bæði á víólu og píanó og varst orð- inn nokkur fær enda búinn að æfa í mörg ár. Þú varst nýbyrjaður að æfa taekwondo í Björkunum í Hafn- arfirði og varst alveg heillaður af þeirri íþrótt og áttir að fara að fá gula beltið, bílprófið var á næsta leiti og þú varst að fara að skila inn umsókninni fyrir ökuskírteininu þannig að margt spennandi var framundan hjá þér, Þórir minn. Þú varst einstakt barnabarn og komst til ömmu þinnar á hverjum degi og þið borðuðuð saman. Mikið á amma þín eftir að sakna þess að þú komir til hennar í hádeginu, þið voruð svo miklir vinir og þú gerðir svo margt fyrir hana. Við kveðjum þig með söknuði, elsku Þórir Árni, minning þín mun lifa að eilífu. Elsku Kolba, Jón, Axel, Herdís og mamma, þið eigið alla okkar samúð. Halla, Björgvin, Katrín Þóra, Bjarni, Jón Atli og Ásdís. Elsku Þórir minn. Þú varst örugglega ein sérstak- asta manneskja sem ég hef verið svo heppin að kynnast. Þú varst með svo einstakan húmor og þú náðir alltaf að fá alla til að hlæja með skyndilegum athugasemdum þínum. Það skipti ekki máli hver umræðan var, þú bara sagðir það sem þér datt í hug á hverri stundu. Ég á svo margar góðar minningar með þér. Óteljandi jólaboð þar sem við sátum og spjölluðum um ýmsar greinar í Nýjustu vísindum og það sem var að gerast í heiminum. En yfirleitt var það þannig að þið strákarnir spiluðu Risk og við stelp- urnar gerðum grín að ykkur og þið að okkur. Við eyddum svo miklum tíma saman þegar við vorum krakkar, enda var mamma að passa þig. Ég man þegar við gistum saman og ætluðum að taka spólu. Við vorum heillengi að reikna út hvaða spólu væri best að taka til að fá sem mest nammi fyrir afganginn, svo þegar við vorum búin að reikna út að það væri best að taka gamla spólu, þá hófst sú raun að velja spólu. Það tók alltaf svo langan tíma og við pældum alveg heilmikið í hverri mynd, en samt enduðum við alltaf á sömu spólu, Regnboga Birtu. Ég hef ekki tölu á hversu oft við horfð- um á þá mynd. Þótt þessar stundir virðast kannski ekki merkilegar þá eru þær það dýrmætasta sem ég á, því þær eru stundir mínar með þér. Þú munt alltaf eiga stað í hjarta mínu. Þín frænka, Sigríður Kolbrún (Sigga Kolla.)  Fleiri minningargreinar um Þórir Árna Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Sigrún Magn-úsdóttir fæddist í Reykjavík 29. jan- úar 1954. Hún lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 25. nóvember síðastliðinn. For- eldrar Sigrúnar eru Magnús K. Geirs- son, f. 18. sept- ember 1931, og Bryndís Magn- úsdóttir, f. 16. febr- úar 1936. Systkini Sigrúnar eru Geir, f. 5. ágúst 1960, og Unnur, f. 30. nóvember 1968. Sonur Sigrúnar og Sigurðar Kristinssonar er Magnús, f. 12. júní 1971. Eiginmaður Sigrúnar er Guð- laugur Rúnar Hilmarsson, f. í Reykjavík 10. maí 1953. For- eldrar hans eru Hilmar Guð- laugsson, f. 2. des- ember 1930, og Jóna Guðbjörg Steins- dóttir, f. 6. desem- ber 1928. Sigrún og Guðlaugur voru gef- in saman 24. maí 1975. Sonur þeirra er Hilmar, f. 29. júlí 1981, sambýliskona Lilja Dögg Valþórs- dóttir, f. 25. maí 1982. Sigrún starfaði lengst af á skrifstofu Rafiðnaðarsambands Íslands og Lífeyrissjóðs Lífiðnar, síðar Stafir. Hennar helstu áhugamál voru fjölskyldan, sum- arhúsið, ferðalög, matseld og öll handavinna, sér í lagi bútasaum- ur. Útför Sigrúnar fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Elsku Sigrún Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Takk fyrir öll árin okkar. Kveðja Guðlaugur R. Hilmarsson. Sigrún Magnúsdóttir, mágkona mín og systir, hefur kvatt. Þegar litið er til baka er margs að minn- ast. Didda, eins og hún var nefnd innan fjölskyldunnar, var róleg og yfirveguð kona. Hún lagði metnað sinn í að búa fjölskyldu sinni hlý- legt og notalegt heimili. Það var alltaf gott að koma til Diddu. Í hennar húsum var eins og skarkali lífsins stoppaði við dyrnar og hjá henni leið öllum vel. Hún vann allt sem hún gerði af nákvæmni og umhyggju, hvort sem það var að matreiða, taka á móti gestum eða annað það sem hún hafði áhuga á. Didda hafði mjög gaman af allri handavinnu eins og að mála, útbúa blómaskreytingar eða annað sem var til prýði og allt gerði hún vel. Bútasaumur var þó það sem henni þótti einna skemmtilegast að gera og eftir hana eru mörg teppi, dúk- ar og annað það sem hún hefur saumað. Hún var stóra systir sem alltaf var gott að leita til og hún var alltaf tilbúin til að hjálpa öðr- um og leiðbeina. Didda og Gulli eiginmaður henn- ar voru samhent hjón í því sem þau tóku sér fyrir hendur. Hvort sem það var að halda veislur, byggja sumarbústað eða ferðast. Það var okkur öllum mikið áfall þegar hún greindist með krabba- mein fyrir rúmu ári en hún tók því með einstakri ró og æðruleysi. Eiginmaður hennar, Gulli, studdi hana og hjálpaði í veikindum henn- ar, hann var hennar klettur í ólgu- sjó. Á þessari kveðjustund viljum við þakka Diddu fyrir samfylgdina og senda Gulla, Magga, Hilmari og Lilju innilegar samúðarkveðjur. Missir ykkar er mikill. Megi Guð vera með ykkur. Áslaug S. Svavarsdóttir og Geir Magnússon. Sigrún Magnúsdóttir  Fleiri minningargreinar um Sig- rúnu Magnúsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Gunnar Hjaltestedfæddist í Reykja- vík 25.4. 1935. Hann andaðist á Landspít- alanum fimmtudaginn 27. nóvember síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Guðríður S. (Lóa) Hjaltested, f. 26.4. 1909, d. 23.4. 2003, og Erlingur E. Hjaltested bankamaður, f. 10.1. 1907, d. 15.4. 1987. Bræður Gunnars: Stef- án Bjarni Hjaltested, f. 11.2. 1940, og Kristján Björn Hjaltested, f. 8.9. 1945. Hinn 5.10. 1957 kvæntist Gunnar Gyðu Þorsteinsdóttur, f. 5.5. 1935. Foreldrar hennar voru Sigríður Kristmundsdóttir og Þorsteinn Sig- urðsson. Börn Gunnars og Gyðu eru: 1) Halla Hjaltested, f. 19.4. 1957. Maki Guðjón Þór Guðjónsson. Dóttir þeirra er Auður Ýr Guðjónsdóttir. Dóttir anum. Sölumennska var honum í blóð borin og gerðist hann sölumað- ur um árabil hjá frænda sínum Krist- jáni Þorvaldssyni við samnefnda heildverslun. Einnig var hann sölu- maður hjá heildversluninni Andra í nokkur ár. Árið 1974 hóf hann ásamt fjölskyldu sinni rekstur söluturns v/ Kleppsveg allt til ársins 1984. Sá rekstur var í hjáverkum með öðrum störfum Gunnars. Seinna starfaði hann einnig hjá Kreditkortum og ferðaskrifstofunni Atlantik. Árið 1987 hóf hann störf hjá Brunabóta- félagi Íslands, síðar Vátrygging- arfélagi Íslands, og vann þar allt til ársins 1999. Gyða hafði þá greinst með alzheimersjúkdóm og sinnti hann konu sinni af mikilli alúð og hlýju eftir það. Gunnar var fé- lagsmaður í Oddfellowreglunni í tugi ára og eignaðist fjölda vina á þeim vettvangi. Hann hafði unun af stangveiði og fluguhnýtingum og var fastagestur í Laugardalslaug- inni. Gunnar verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Höllu og Stefáns Dag- finnssonar er Íris, maki Kjartan Freyr Jónsson, dóttir þeirra Karen Júlía. Sonur Guðjóns Þórs og Ás- laugar A. Sigurð- ardóttur er Guðjón, sambýliskona Elísabet Eir Eyjólfsdóttir. 2) Lóa S. Hjaltested, f. 2.8. 1958. Maki Sig- urður Sigurgeirsson. Börn þeirra eru Sig- urgeir og Gyða Björk. 3) Erlingur Hjaltested, f. 20.1. 1960. Maki Birna K. Sigurð- ardóttir. Börn þeirra eru Halla Karí og Atli. 4) Helga Hjaltested, f. 19.11. 1962. Maki Elvar J. Ingason. Börn þeirra eru Gunnar Ingi, Anna Lilja og Linda Katrín. Gunnar lauk versl- unarprófi frá VÍ 1956. Skömmu síðar fetaði hann í fótspor föður síns og gerðist bankamaður í Útvegsbank- Fjúkið var frostkalt og nóttin dimm þegar tengdafaðir minn lokaði augunum í hinsta sinn. Gunnar Hjaltested gat ekki meir. Tengdur við tæki og tól í marga mán- uði. Úthaldið mikið, vonin svo sterk, hjartað og hugurinn vildi heim. Vegurinn varð grýttari við hvert fótmál, vegatálmar sem drógu úr voninni smátt og smátt. Nú hefur hann sagt sitt síðasta orð, og þau voru nú ansi mörg í gegnum tíðina. Hann elskaði samræður, um- ræður og einræður. Hafði frá mörgu að segja og skoðanir á öllu. Gunnar átti ekki bara sjoppuna inni við sundin blá heldur líka strák- inn sem ég var skotin í. Það var ágætt að kynnast karlinum fyrst og undir- búa jarðveginn. Við vorum mestu mátar þó aldursmunur væri töluverð- ur og spjölluðum mikið saman yfir af- greiðsluborðið. Sonurinn ekki eins málgefinn, en gaf mér þó stundum kók og Lindubuff ef svo bar undir. Mörgum árum síðar varð Gunnar tengdafaðir minn. Heppin ég að eign- ast svo skemmtilegan tengdaföður að ég tali ekki um alla fjölskylduna. Ein- stakur hópur fólks sem hefur gert líf mitt svo miklu ríkara. Gunnar þar fremstur í flokki, einskonar íslenskur „Godfather“ sinnar fjölskyldu sem átti þó ekkert skylt við þann ítalska. Mikill karakter og gleðigjafi, stór í sniðum og það fór honum vel. Krullað hárið sem hann var svo stoltur af og gránaði ekki fyrr en á spítalanum. Faðir hans samdi um það vísu þegar hann var lítill og mamma hans grét þegar klippa þurfti hárið, hann þótti of stelpulegur. Margir fagrir ljósir lokkar, liðast yfir kollinn þinn, sannkallaður engill okkar, ertu hjartans vinurinn Matmaður var hann mikill og af- bragðskokkur. Matur voru hans ær og kýr og sorglegt að sjá hann fast- andi í langan tíma með einungis „hvítu steikina“ beint í æð, eins og hann orðaði það. Gyða og Gunnar tóku vel á móti mér og sýndu mér alla tíð eindæma hlýju og vinsemd. Yndislegu jóla- og matarboðin í gegnum tíðina, þá var Gunnar í essinu sínu og lék við hvern sinn fingur og sleikti hvern sinn fing- ur þegar smakka þurfti súpur eða sósur. Þá var hann glerfínn og greiddur, rjúpnailmur í lofti og ég sagði „Mikið ertu fínn“. „Já er ég ekki alveg eins og engill á peysuföt- um?“ Ljós jólanna kvikna eitt af öðru eins og barn sem fæðist. Á meðan slokkna önnur skær ljós sem lýst hafa okkur í gegnum lífið. Og er það ekki undarlegt, allt heldur áfram, umferðin, innkaupin, fólk á ferð og samt er allt breytt og verður aldrei eins. Það er söknuður eftir kankvísu brosi, augnatilliti, glettni og góðum stundum. Við fórum ekki til Noregs eins og til stóð, í skerjagarðinn í suðri. Í huganum verður Gunnar með næst þegar ég sigli milli skerja. Ég mun bera kveðju hans frá eyjunni í norðri. Ég trúi og treysti á að hann muni eiga góða inn- komu í ríki Drottins. Minningin um skemmtilegan og kátan tengdaföður og afa barnanna lifir í hjörtum okkar og hug. Birna Katrín. Að kveðja hann Gunnar tengdaföð- ur minn og stórvin er mér alveg ómögulegt. Svo ég geri það ekki, heldur þakka ég honum þær lexíur og viðmið sem hann viðhafði í samskiptum sínum við menn og málleysinga. Hann Gunnar kenndi þeim sem læra vildu hvernig átti að vera ástríkur og gefandi eiginmaður, faðir, afi, langafi og félagi. Það kom svo berlega í ljós hvílíkt góðmenni hann Gunnar var, og hve þrautseigur hann var, þegar hún Gyða okkar varð veik af alzheimersjúkdómnum, sem ágerðist mjög hratt hjá henni. Marg- ur hefði gefist upp, en ekki hann Gunnar. Hann var þrautseigur og ástríkur í allri umönnun Gyðu sinnar, þar til sá tími kom og varð ekki umflúinn að Gyða varð að fara í umönnun fagfólks. Í blíðu og stríðu lofaði hann í upphafi, og hjá Gunnari stóðu orð eins og stafur á bók. Vinátta okkar Gunnars tengdist meðal annars ólæknandi veiðidellu okkar beggja. Sögur af okkur við veiðar og gleðskap í Urriðaá og öðr- um ám yrðu efni í góða bók, en eru geymdar í hjarta mér um aldur. Í gegnum veikindi Gunnars, sem hóf- ust snemma á þessu ári, var Gunnar lengstum bjartsýnn og jákvæður. Þó fór svo að lokum að þrótturinn mink- aði og þvarr, og hann kvaddi okkur, sem eftir stöndum full saknaðar og þakklætis fyrir að hafa átt þennan góða dreng að. Þakka þér Gunnar minn, þakka þér. Guð blessi þig. Þinn Guðjón Þór. Gunnar Hjaltested  Fleiri minningargreinar um Gunn- ar Hjaltested bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.