Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.12.2008, Blaðsíða 4
GUÐMUNDUR Jónsson, fyrrver- andi forstöðumaður Byrgisins, var í gær dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í Hæstarétti fyrir kynferð- isbrot gegn þremur konum sem voru skjólstæðingar hans. Hann var enn- fremur dæmdur til að greiða þeim bætur að upphæð 800 þúsund til einnar milljónar króna. Hann var hins vegar sýknaður af ákærum um brot gegn fjórðu konunni. Að auki er Guðmundi gert að greiða sakarkostnað í héraði að upp- hæð rúmlega 3,7 milljónir króna sem og áfrýjunarkostnað málsins, tæp- lega 1,9 milljónir króna. Er þetta vægari dómur en Héraðs- dómur Suðurlands kvað upp í maí. Samkvæmt honum skyldi fangels- isvistin vera þrjú ár enda var Guð- mundur fundinn sekur um brot gegn öllum konunum fjórum, og gert að greiða þeim öllum bætur. Guðmundi var gefið að sök að hafa sem for- stöðumaður, meðferð- arráðgjafi og stjórnandi kristi- legra samkomna í Byrginu haft samræði og önn- ur kynmök við konurnar fjórar sem voru vistmenn þar og sóttu meðferð- arviðtöl hjá honum. Við ákvörðun refsingarinnar var litið til ungs aldurs eins brotaþolans og þess að brotin beindust að konum sem höfðu leitað í brýnni neyð eftir meðferð vegna vímuefnaneyslu. Seg- ir í dómi Hæstaréttar að ákærði hafi fært sér það í nyt með ófyrirleitni. Fær tveggja og hálfs árs fangelsi Guðmundur Jónsson 4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. DESEMBER 2008 Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16 Borðstofuhúsgögn Rúm Náttborð Gafla Erum einnig með : Yfir 200 tegundir af sófasettum Hornsófar/Tungusófar Svefnsófar/ Stakir sófar kr.89.900,- verð frá Nice 3ja sæta Verð Kr. 152.900,- Smíðum eftir þínum þörfum Íslensk framleiðsla Patti húsgögn Landsins mesta úrval af sófasettum Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is AF þeim 2.124 fasteignum sem aug- lýstar voru á uppboði hafa 147 íbúð- ir verið seldar í umdæmi sýslu- mannsins í Reykjavík. Aðrir hafa bjargað heimilum sínum á elleftu stundu. Nauðungarsölurnar eru orðnar fleiri í umdæminu en allt ár- ið í fyrra þegar 137 fasteignir seld- ust. Þær voru 91 árið 2006. Flestar fóru eignirnar í október, 49, í júní voru þær 23 en ein til tólf hina mánuði ársins. Sigríður Eysteinsdóttir, deild- arstjóri fullnustudeildar hjá sýslu- manninum í Reykjavík, segir al- gengast að veðhafar bjóði í þær íbúðir sem fara á uppboð. „Þeim nægir að bjóða inn á sinn veðrétt og bjóði enginn hærra eru þeir orðnir hæstbjóðendur og eig- endur íbúðanna,“ segir hún og út- skýrir að þó lán á uppboðsíbúð sé hugsanlega 30 milljónir króna geti veðhafa nægt að bjóða þrjár til að eignast hana. Hann bjóði ekki alla upphæðina þurfi hann þess ekki þar sem greiða þarf eins prósents sölu- laun í ríkissjóð. Sigríður segir einn og einn koma af götunni til að bjóða í íbúðir á upp- boði. „Það er ekki algengt.“ Mjög sjaldgæft sé að fólk fái fé umfram lán á uppboðsíbúðum. „Fólk ber áfram ábyrgð á þeim lánum sem engin greiðsla fæst upp í.“ Selji lán- veitandinn íbúðina seinna fyrir hærra verð en hann fékk hana á eigi að nýta söluandvirðið til að greiða niður lán þess sem missti hana. Vésteinn vill íbúðina á uppboð Vésteinn Gauti Hauksson sagði frá því í Kastljósi í fyrrakvöld að hann hefði ákveðið að hætta að greiða af íbúð sinni. Hann hafi reiknað út að í 17 prósenta verð- bólgu hækkaði lánið hans hratt. Honum reiknaðist til, út frá þeim forsendum, að frá desember 2008 til desember 2009 hækki lánið úr rúm- um 31,6 milljónum króna í rúmar 36,5 milljónir. Verðbæturnar færu úr tæpum 7,2 milljónum í rúmar 12,5 milljónir. Hann vonist til þess að lágmarka tap sitt með því að íbúðin fari nú á uppboð og einnig að hann geti greitt eftirstöðvarnar af lánunum án þess að fara í gjaldþrot. Hann tapi alltaf peningum en tapi minna með því að láta bjóða íbúðina upp strax. „Það er ekki lögbrot að hætta að borga og gjaldþrot er ekki endilega fylgifiskur,“ sagði Vé- steinn. Jón Bjarki Bentsson, hagfræð- ingur í greiningu Glitnis, segir ólík- legt að íbúðalánin hækki jafn bratt á næsta ári og síðustu misserum. „Það sér fyrir endann á þeirri þró- un,“ segir hann. „Enginn spáir sautján prósenta verðbólgu næstu tólf mánuði. Svartsýnasta verð- bólguspáin er spá Seðlabankans upp á rúm fimm prósent. Það þýðir að lánin hækka ekki nándar nærri jafn mikið og Vésteinn gefur sér í út- reikningum sínum. Segja má að hann tvíreikni verðbólguna inn í lánin því sautján prósenta verðbólg- an hefur nær öll verið reiknuð inn í lánin og er ástæðan fyrir því hvað þau hafa hækkað mikið.“ Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, vonar að gripið verði til frekari aðgerða en ríkisstjórnin hefur boðað, til að aðstoða fólk í fjárhagsvanda. Hann undirbýr nýj- ar tillögur og segir að fólk ætti ekki að þurfa að grípa til sömu ör- þrifaráða og Vésteinn. „Ýmislegt er gert fyrir atvinnulífið og kröfuhafa bankanna og einnig þarf að koma til annarra aðgerða fyrir íbúða- lánaskuldara en þeirra sem fresta vandanum.“ Morgunblaðið/Golli Til sölu Ekki er nóg með að fjöldi tilbúinna eigna sé nú til sölu heldur standa hálftilbúnar eignir víða. 147 íbúðir á uppboð Alls hafa 2.124 íbúðir verið auglýstar til nauðungarsölu á þessu ári í Reykjavík en 147 verið slegnar á uppboði ÚTAFAKSTURSÓHÖPPUM er- lendra ferðamanna á bílaleigu- bílum fækkaði um 31,5% á þessu ári miðað við árið í fyrra og á sama tíma fækkaði slösuðum um 74%. Sjóvá Forvarnahús upplýsir þetta. Segir að helsta ástæða umferð- aróhappa hjá erlendum ferðamönn- um hafi verið ókunnugleiki á vega- kerfinu, sérstaklega malarvegunum. Farnar voru ýmsar leiðir til að upplýsa þá um akstur á íslenskum vegum. T.d. hefðu spjöld verið sett á stýri bílanna með upp- lýsingum um akstur í dreifbýli, gerð varnaðarmerki á ensku þar sem ekið er af malbiki yfir á mal- arvegi, námskeið og fundir haldin með starfsmönnum bílaleignanna o.fl. Færri óhöpp í umferðinni UM TVÖ hundruð björgunarsveit- armenn munu í dag taka þátt í leit að rjúpnaskyttu sem saknað hefur verið síðan um síðustu helgi. Leitað er á Skáldabúðaheiði í uppsveitum Árnessýslu. Að sögn Odds Krist- inssonar hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg taka björgunarsveitir af öllu Suður- og Vesturlandi þátt. Leitarmenn munu notast við hunda, en einnig verður leitað á fjórhjólum og hestum. Aðspurður segir Oddur að radíus hringsins sem leitað verði innan sé um 11 km. Svæðið afmark- ast af Stóru-Laxá annars vegar og hins vegar af þjóðveginum. Segir hann bændur á jaðri leitarsvæðisins hafa svipast um eftir manninum. 200 manns leita í dag                                   ! "   # $  % &  '$$        ( !   ")* +)&&!  , & ')$  ' ")  $ - # - + .   !  / $" - & '" (&+ .       (  !      & "$       # (    $    '   # $") ' " /  ")  !  $         0 1 $  2 3       VALGERÐUR Sverrisdóttir hefur ákveðið að sitja ekki lengur sem for- maður Fram- sóknarflokksins en til næsta flokksþings framsókn- armanna í jan- úar nk. Hún tók sem kunnugt er sæti Guðna er hann sagði af sér þingmennsku og formannsembætti. Í yfirlýsingu segist hún vera að fylgja þeirri sannfæringu sinni að endurnýjun sé nauðsynleg í stjórn- málum. Valgerður ætlar að sitja áfram á þingi þar sem hún hefur setið í rúm 20 ár. Hættir sem formaður Hver eru áhrif verðbólgu á lánin? Verðbólga hefur veruleg áhrif á greiðslubyrði lána. Sjá má áhrifin með reiknivél Íbúðalánasjóð. Tökum dæmi af tíu milljón króna láni til tutt- ugu ára á 4,9 prósenta vöxtum og með uppgreiðsluákvæði. Sé verð- bólgan 2,5 prósent greiðist að lokum rúmar 20,3 milljónir fyrir lánið. Sé verðbólgan 5 prósent hækkar sú upphæði í tæpar 26,7 milljónir króna. Sé verðbólgan hins vegar 17 prósent allan lánstímann er heildar- endurgreiðslan rúmar 111,3 milljónir fyrir lánið. Verðbólgan á næsta ári? Vandi er um slíkt að spá en í Pen- ingamálum Seðlabankans stendur að spáin fyrir fyrsta ársfjórðung sé 22,7 prósent, fyrir annan 17 prósent, þann þriðja 12,6 prósent og fjórða ársfjórðunginn 5,5 prósent. S&S FULLNÆGJANDI lagaheimildir virðast hafa verið fyrir aðgerðum sem lögreglan á Suðurnesjum greip til gegn hælisleitendum í september sl. Þetta er helsta niðurstaða úttekt- ar LOGOS lögmannsþjónusta sem unnin var fyrir Rauða kross Íslands. Engu að síður er í skýrslu fyr- irtækisins bent á hvar finna mætti að aðgerðunum. Samkvæmt upplýs- ingum frá hælisleitendum voru þannig í einhverjum tilfellum teknir munir sem varla hafi verið tilefni til að leggja hald á. Sumir segist ekki hafa notið aðstoðar túlks og hafi sú verið raunin hafi verið erfitt fyrir lögreglu að leita samþykkis hæl- isleitendanna fyrir húsleit og kynna þeim heimild til hennar. Hið sama gildi um þá skyldu að tilkynna þeim rétt sinn til að fá skipaðan verjanda. Þá segi þrír hælisleitendur að þeir hafi verið handjárnaðir meðan á leit- inni stóð. Sé sú raunin hafi verið um handtöku að ræða en lögregla hafi eingöngu rétt til að handtaka mann hafi hann framið brot sem sætt geti ákæru. Ekki sé útséð með að skilyrði hafi verið til að handtaka hælisleit- endur hafi það verið gert. ben@mbl.is Aðgerðir lögreglu í samræmi við lög Á vettvangi LOGOS telur lögreglu hafa haft heimildir til leitarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.